Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.04.1918, Síða 5

Bjarmi - 01.04.1918, Síða 5
BJARMI 53 glöggt liversu umhorfs var i herberg- inu. Húsgögnin voru af skornum skamti, en eigi að síður var vistlegur blær á herberginu. Yfir borðinu, sem þakið var blöðum og bókum, hjekk andlitsmynd af móður lians, sem hann hafði látið gera eftir, að hann »komsl í útlegðina«, eins og hannkomst slundum sjálfur að orði, þegar hann átli tal við Tómas vin sinn. Og yfir dyrunum hjekk saumað spjald með ritningargrein, það liafði Helga syslir hans gefið honum í jólagjöf seinustu jólin, sem hann var heima. »Guð er kærleikur«. Hann las orðin aftur og aftur, og jafn margar óskir fæddust í hjarta hans um það, að veslings Helga litla systir hans kæmi auga á kærleika Guðs. Hún kom sjálf með spjaldið til hans, nokkru eftir að hann fór að heiman; hann hafði gleymt því heima, og var eiginlega búinn að einselja sjer, að sækja spjald- ið einhverntíma, en Helga varð fyrri til. Hún var kátínan sjálf eins og vant var, og lét dæluna ganga á meðan hún stóð við um alt og ekkert. Ragnar virti liana nákvæmlega fyrir sjer. Var hún nokkuð breytt eftir þennan stutta tima? Einungis örari og málskrafsmeiri en vant var? Eða var það hann sjálfur, sem var orðinn svo óvanur að hlusta á masið i henni? »Af liverju glápirðu svotia á mig?« spurði hún þá all í einu. »Heldurðu að jeg sje full?« Honum varð dauðbilt við. Drukkin! var hún það? Og enn þá — löngu síðar — mörgum vikum eftir að Helga varpaði að honum þessari nöpru spurningu, fanst Ragnari hann liorf- ast í augu við sorglega staðfestingu i orðasveiminum, sem liafði einnig náð eyrutn hans um það, að Helga systir hans væri farin að »súpa á«. (Frarnh.). Um kristnihald eftir 1850. Eftir sr. Gullorm Vig/ússon, Stöð. II. Með þvi að Bjarmi hefir mælst til að jeg, sem nú er þegar 73 ára að aldri, ljeti honum í tje það sem jeg man frú næst- liðinni öld um kristnihald hjer á landi í þeini hjeruðum, sem jeg dvaldi í, bæði á undan skólaárum mínum og eftir að jeg varð þjónandi prestur, svo sem fyrst í Fljótsdalshjeraði, þar sem jeg ólst upp til þess er jeg var 18 ára, síðan í Skaga- firði, Eyjatirði, Norðurþingeyjar-prófasts- dæmi og nú síðustu 30 árin hjer i Suður- múla-prófastsdæmi, þá er mjer Ijúfl að skýra honura frá nokkruin greinum þessa máls, sem vaka i endurminningu minni, eftir því sem jeg veit sannast vera og rjettasl. Ilinar lielstu tegundir kristnilialdsins, sem jeg vil drepa á, eru þessar: Mess- urnar óg kirkjuræknin, og í sambandi við það koma innleiðslur og fyrirbænir fyrir sjúkum, altarisgöngurnar og þjón- usta sjúkra i lieimahúsum; því næst hús- lestrarnir, húsvitjanir presta, barnaupp- fræðingin, brúðkaupin með því helgi- haldi, er þeim voru samfara, bæna-siðir, trú og siðferði, guðrækni og reglusemi presta og safnaða. Alt hið ujiptalda voru andleg bönd, er á siðastliðinni öld, að minsta kosti fram yfir 1870 og sumstaðar nokkuð lengur, jafnvel fram að aldamót- um, tengdu saman presta og söfnuði. Fess utan voru veraldlegu böndin, sem lijeldu þessum tveim aöilum saman. Prestarnir innheimtu sjálfir tekjur sinar beint úr vasa safnaðanna. í allri sveitastjórn voru prestarnir jafnan í og með hreppstjórun- um, einkum hvað bókfærslu og reikninga snerti. Mörg af öllum þessum andlegu og ver- aldlegu viöskiftaböndum eru nú með öllu slitin og upphafin af þingi og þjóð, eða af breyttum aldarhætti, og þau fáu, sem enn við loða, miklu veikari og haldminni en áður var. Konuinnleiðslur og sjerstakar fyrir- bænir fyrir sjúkum, altarisgöngur og þjón- usta sjúkra, þaö er nú alt niðurlagt eða stendur á stöku stað með sáralitlu lifs- marlci; hin andlega þörf safnaðanna fyrir það með öllu útdauð; húslestrum ekki haldið uppi, hvorki á virkum eða helgum

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.