Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.04.1918, Blaðsíða 7

Bjarmi - 01.04.1918, Blaðsíða 7
BJARMI 55 breyltar trúarskoðanir at'máð að mestu. En alt þetta hafði áður mikil áhrif á kirkjuferðirnar eða^messu' fjöldann. Alt fram á síðasta tug 19. aldarinnar stóðu messurnar talsvert lengur yíir en nú; þá var svo margt, sem lengdi þær, stundum það, að ræður sumra þresta voru afarlangar og þess utan seint born- ar fram. Engar fratnburðarreglur kendar, fyr en prestaskólinn var stofnaður. En það sem mest teygði guðsþjónustuna, voru hinar mörgu fyrirbænir af stól, skriftamálin fjTrir embætti og altarisgöng- urnar, barnaskírnir í kirkju og barna- spurningar á kirkjugólfi (sem þó hvort- tveggja fóru að verða æ sjaldgæfari eftir 1860, óvist hvers vegna). Af hinni löngu guðsþjónustu má vera að leitt hafi það, að meira ráp út og inn um kirkjuna átti sjer þá stað, en nú, og meiri ókyrð hvíldi yfir guðsþjónuslugjöröinni yfirleitt. En þó var drykkjuskapurinn lijer verstur vöftur í vaðmálinu, að þvi er til siðl'erðisins kom undir guðsþjónustugjörðinni. Purfti ekki marga óreglumenn lil að spilla góð- um siðum. Nokkrir höfðu brennivínspela í vasanum, og áttu undir guðsþjónustunni erindi út úr kirkjunni til þess undir kirkjuveggnum að súpa á pelanum. Frá þessum mönnum átti sjer einkum stað lágskraf inni i kirkjunni undir sjalfri prjedikuninni, og sjerstaklega þegarbarna- spurningarnar byrjuðu á gólfinu í fram- kirkjunni eftir að búið var að syngja sálminn ofan úr stól. (Framh.). fí--------------- Raddir almennings. -■ .......... —jj Eftirbreytnisvert. Kenslukona skrifar 17/12 f. á.: » . .. Ann- ars er kirkju- og kristniliald likt hjer og að undanförnu. Sra (N. N.) prjedikar yfir hálftómum bekkjum. Guð gefi að bráðum verði breyting á því, svo að; sannur guðs- ótti og kærleiki gagntaki björtu manna. Ef þeir vissu livilíku hnossi þeir hafna með þvi, að lítilsvirða og hafna kenning- um og náðarboðskap frelsarans og hví- líka unun og hvíld er hægt að fá með bæninni! Það liefi jeg svo oft reynt; í sumar var jeg t. d. einu sinni í slæmu skapi, fanst gengið á bluta minn og mjer gjört rangt til og leið mjer mjög illa eins og ætíð, er óvildarneisti fær að setjast að i huga manns, þá fanst rnjer alt í einu, sem hvíslað væri að mjer: »þetta batnar ekki fyr en þú biður Drottin að lijálpa þjer«, jeg lagði frá mjer lirífuna og gekk á afvikinn stað, kraup á knje og bað Drottinn að eyða óvild og leiðindum úr liuga mínum, og jeg fjekk bænheyrslu þá samstundis og sneri aftur til fólksins glöð og hress í huga«. Nokkur bænarvers. Sálar mín sjón, um sæinn og frón nú starir á styrjaldar æfi, með hræðslu og lirylling á hamfarar trylling, á sáranna, táranna svæði. Er ekki neitt, er getur breytt ilskunnar eldverka grúa, og heftir morðhöndu og hörmunga vöndu sem böli í blessun kann snúa? Hæstum á slól, er helg náðar sól Guð faðir, Guðs son, Guðs andi, þangað skal snúa, og því einu trúa að bót fmni böl hvert og vandi. Er sviðu min sár, sæt bænar tár, jeg sendi þjer, bróðir minn blíði, ástkæri Jesú, ætíð mjer gafst þú liuggun og styrk þá í stríði. Friðþæging þín fyrir og pín, bænlieyr mig bróðir og herra, lát stríðið linna, lát alla finna, að náð þín í neyð ei kann þverra. Frelsisins sól að föðurs hástól, berðu fram bænina mína, að blóðuga undu og blóðþyrsta mundu stöðvi og stríð Ijeti dvina. Friðarins lind, friðar þín mynd sje þrykt inn í þjóðanna hjarta með sátt og samlyndi sannan frið bindi og leiði á ljósveginn bjarta.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.