Bjarmi - 01.04.1919, Síða 6
54
BJARMI
Setið er nú meðan yært er.
Fjesýslumaður á Austfjörðum skrif-
aði ritstj. Bjarma langt brjef í haust
sem leið með miklum rökstuddum
aðfinningum við boðskap þann, sem
Har. prófessor Níelsson flutti þar í
sumar. Sami maður skrifar 6. febr.
þ. á. meðal annars:
»Mjer íinst skörin vera komin það
langt upp i bekkinn, — trúvillufarg-
anið orðið svo magnað, að þeir megi
ekki þegja lengur, sem sjá og skilja
hvað ér að gerast.
Jeg skýrði frá því sem hjer gerðist
»prívat«, samt svo vel sem jeg gat í
stuttu brjefi. Og meira átti ekki að
þurfa; síst eftir að fram eru komnar
ritsmíðar E. Kvarans: 1. afmælishug-
leiðingin um H. N., þar sem hann
segir, að þeir sem sjeu á annari
skoðun en H. N. »þori ekki« að
blusta á ræður hans, af ólla fyrir því
að verða honufn sammála, og 2. stofn-
fundarræður andatrúarfélagsins nýja,
þar sem Einar kvaðst blygðast sín
fyrir að vera að benda þjónum
kirkjunnar á liið eina, er »megi gera
menn frjálsa,« sem sje »andatrúar
sannleikann«. Meiri brýningar en þetta
ættu að vera óþarfar. Og jeg ætla nú
enn að lifa í þeirri von, að þið, kæru
vinir, sem sjáið hvílíkur háski er á
ferðum, takið saman ráð ykkar til
öflugrar og rækilegrar varnar gegn
þessu fargani. T'að er helst ekki fyrir
aðra en fagmenn að hefja vörnina,
en auðvitað getum við hinir slutt og
hjálpað. En verði ekkert gert, sje jeg
ekki betur en að allur þorri lands-
lýðsins verði lagstur á öfugu sveifina
fyr en varir, og þaö fyrirhafnarlaust
af hálfu afvegaleiðendanna.«
Bjarmi er samdótna þessum hátt-
virta vini sínum, og er óskiljanlegt
hvað kennimannastjett landsins er
þögul eftir aðrar eins árásir og fram-
komu i stofnfundarræðunum. AU-
flestum kennimönnum, bæði eldri og
yngri stefnunnar, mun þykja guðspek-
in og andatrúin fara alt of geyst, og
sumir vara við þeim öfgum i stól-
ræðum sínum, en blöðin ná miklu
lengra en stólræður. Og það er áreið-
anlegt, að virðing alþýðu fyrir áhuga
prestastjeltarinnar fer ekki vaxandi,
ef hún hagnýtir sjer ekki blöðin
frekar en að undanförnu í þessum
málum.
Ritstj. Bjarma.
Raddir almennings.
Hvert stefnir?
»Pann tima niun að bera, að menn
þola ekki hina heilsusamlegu kenningu,
heldur safna sjer kennendum eftir girnd-
um sinum, eftir því, sem eyrun klæja, og
snúa eyrum sínum burt frá sannlcikan-
um, og snúa sjer að hjegiljum«- 2 Tím.
4. 3.-4. »Pjer eiskaðir, trúið ekki sjer-
hverjum anda, heldur reyndið andana
livort þeir sjeu frá Guði, því margir fals-
spámenn, eru farnir út i heiminn. Af
þessu getið þjer þekt anda Guðs. Sjerhver
andi, sem -viðurkennir að Jesús Kristur
hafi komið í holdi, er frá Guði, og sjer-
hver andi, sem ekki játar Jesúm, er ekki
frá Guði, og hann er andkristins andi, ..
og nú þegar er liann í heiminum«, 1. Jóh.
4. 1,—2.-3.
Peir liafa umsnúið sannleika Guðs í
lýgi. Róm. 1. 25.
Eigið engan hlut i verkum myrkursins,
sem ekkert gott hlýst af, heldur ílettið
miklu fremur ofan af þeim. Efesus 5. 11.
Hver, sem trúir Guðs heilaga orði i
ritningunni, þarf ekki að efa það að sálin
deyr ekki með líkamanum, heldur. lifir
hún um alla eilífð. Petta er skírt tekið
fram í Guðs orði á ýmsum stöðum t. d.
í Pessal. 4. 13.—14. og 18. v. »Ekki vil jeg
hræður láta yður vera ókunnugt um þá,
sem sofnaðir eru til þess að þjer sjeuð