Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.1919, Síða 5

Bjarmi - 01.06.1919, Síða 5
BJARMI 85 á landi, auk heldur allur sá fjöldi ófróðra manna um þessi efni, sem þeir hafa safnað undir merki Sálar- rannsóknafjelagsins. PeUa fjelag mun því bresla eitt af aðalskilyrðunum, sálfræðilega sjerþekking, til þess að geta rannsakað með vísindalegri glögg- skygni og nákvæmni þessi dularfuliu fyrirbrigði, og það hefir lika marga þeirra manna brostið, sem andatrú- armennirnir íslensku hampa mest málstað sinum til styrkingar, þólt þeir að öðru leyti hafi verið, að minsta. kosti sumjr hverjir, merkir vísindamenn. Á þessum leyndardóms- fullu svæðum tilverunnar veltur alt á rólegri og vísindalegri nákvæmni og alhugun, sem aldrei á samleið með lileypidómum og trúarákafa. En samkvæmt ræðum og ritum forkólfa þessa fjelagsskapar, munu æði margir vantrej'sta þeim til slíkra rannsókna. Starf þessa fjelags mun því að öllum líkindum fremur verða kappsamlegt trúboðsstarf meðal almennings, en vísindalegl rannsóknastarf í hóp gagn- rýninna og allsendis óhlutdrægra vísindamanna. Til trúboðsins þarf að aíla fjár handa trúboðunum og þar eru óbreyltir fjelagar Sálarrann- sóknafjelagsins góðir sluðningsmenn. Eins og áður er sagl eru andalrú- in og guðspekin náskyldar. En þó sannast á þeim, að frændur eru frændum verstir; guðspekin hefir lengstum hafl horn í síðu andatrúar- uinar og finnur anda opinberunum hcnnar margt lil foráttu. Hún dreg- nr heldur engar dulur á að hún eigi ekki samleið með lfrislindómi kirkj- nnnar og er að því leyti löluvert hreinskilnari en andalrúin. Uppruni hennar er austan úr Himalayafjöll- um í Tibet. Þar hefir um marga tugi þúsunda ára setið leynileg sveil hinna mestu spekinga heimsins sem nefnist »Hin mikla hvíta slúka«. þessir vísu feður geyma leynilega fjársjóði liinn- ar æðstu speki og i Ijósi hennar ligg- ur allur heimurinn opinn fyrir sjón- um þeirra. þeir eru hinir æðstu læri- feður guðspekinnar. Frá þeirri speki eru runnin öll aðallrúarbrögð heims- ins. En mennirnir hafa ekki skilið innsta kjarnan í þessari miklu speki, og engin trúarbrögð hafa því að geyma hinn algilda sannleika, en sá sannleikur, sem í þeim finst, er úl- slreymi frá hinu mikla »hvíta ljósi« guðspekinnar. Mannkynið liefir aðeins komið auga á dauf geislabrot frá þessu ljósi í myrkri vanþekkingar- innar um hin æðstu sannindi og hin- ar dýpstu gátur tímans og eilífðarinn- ar, og þess vegna hefir það til skams tíma vaðið í villu og reyk um tilorðn- ing heimsins og mannsins og fram- þróun og fullkotnnun mannsandans. Sú leynda speki hefir aðeins verið eign sárfárra lærisveina Himalaya- vitringanna og kristna kirkjan liefir frá öndverðu verið hennar versli óvinur. Guðspekin þykist vilja safna öllum sannleikskornum í hinum margvíslegu trúarbrögðum heimsins i eina allsherjar trúarbragðasamsteypu, undir ægishjálmi spekinganna þarna austur frá. í þeirri alheimstrú á mað- urirnn að fá fullnægju sinna dýpstu þarfa. Mannsandinn nær takmarki fullkomnunarinnar nteð fjölmörgum tilverusligbreytingum, endurholdgun- um og sálnaflakki; með þeim slfeldu hamskiftum hinnar jarðnesku tilveru bælir hann smátl og sinátt fyrir brol sín og yfirsjónir i jarðlífinu, uns hann hverfur að lokum lil hinna æðri stöðva tilverunnar og missir að mestu einstaklingseðli sitt. Hjer er mjög lljólt yfir sögu farið og mörgum undarlegum lilutum slepl í þessari speki. Guðspekin er sambland úr lieiðnum,

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.