Bjarmi - 01.11.1919, Page 8
176
ÖJARMl
viðkynningu sína meðal Svía, en auð-
sjáanlegt er, að liún hefir verið ein-
hliða. Hann segir t. d. ekkert um
aðalheimatrúboðsfjelag Svía, sem kent
er við Fosterlandsstiftelsen, nje um
kristniboð þeirra, og því er heldur
ekkert heildaryfirlit yfir kirkjumál
Svia á vorum dögum í erindinu.
12. Um erlendar bœkur skrifar ritstj.
Finst Bjarma þar óþarflega einhliða
sagt írá nýguðfræðisbókum og blöð-
um, því það eru sannarlega góð er-
lend guðrækileg rit, sem mest erindi
eiga til prestanna. Þeir fá meir en
nóg af hinu á námsárunum.
Síðast í ritinu er loks stutt grein
um prestafélagið eftir Magnús Jóns-
son dócent og önnur lengri, eftir bisk-
up, um samdráttinn milli kirkju vorr-
ar og þjóðkirkna Norðurlanda, er fer
í sömu átt og áður hefir staðið hjer
í blaðinu.
Enda þótt Bjarmi sje þeirrar skoð-
unar að Prestafjelagsritið flytji of-
mikið af guðfræði og henni sumri
vafasamri, en ofiílið af þeirn »bygg-
indum, sem í hag koma« við safnaða-
starfið, þá eru þau þó með, sjerstak-
lega í erindum þeirra síra Bj. Jóns-
sonar og síra Fr. Friðrikssonar, og
vonandi er, að um 100 útgefendur
sjái vel um að útbreiða bókina.
fí- = -.......==3\
Hvaðanæfa.
Heima.
Dr. theol. Jón Helgason, hiskup fór
til Kaupmannahafnar snemma í oldób.;
bauö háskóli Dana honum aö koma til
að flytja þar erindi um kirkjusögu íslands.
Hans er von heim aftur um miðjan nóv.
Síra Kjartan Helgaso'n prófastur í
Ilruna fór til Ameríku með Lagarfoss 9.
októb. til að flytja erindi um ísland og
íslenskar bókmentir meðal Vestur-íslend-
inga i vetur. Fjelagið »íslendingur«, sem
stofnað var í Reykjavík í vor sem leið,
sendir hann og ver til pess landssjóðs-
styrk þeim sem fjelaginu er ætlað næsta
ár. Ritstjóra Bjarma er velkunnugt um
hvernig þjóðernistilfinningin og trúartil-
finningin eru nátengdar hjá rnörgu rosknu
fólki íslensku vestra, og þykir því mjög
vænt um að fyrsti sendimaður »íslend-
ings« skyldi vera góður prestur.
Sr. Friðrik Friðriksson kom heim
frá Danmörku seinast í september og K.
F. U. M. og K. starfa nú í öllum deild-
um eins og venjulega um þetta leyti árs.
Á hverju sunnudagskvöldi alt árið, er,
eins og mörgum er kunnugt, haldin al-
menn kristileg samkoma í húsi K. F. U.
M. En fyrsta sunnudagskvöld hvers mán-
aðar er »fórnarfundur« haldinn á eftir.
Flytja þá ýmsir viðstaddir konur sem
karlar bæn úr sætum sínum í salnum,
og er þá sjerstaklega beðið fyrir starfi
fjelagsins, en á eftir leggja allfiestir við-
staddir gjöf sína í hússjóð fjelagsins. Er
eftirtektavert hvað fórnfýsi fjelagsfólks er
mikil og fögur, oftast skifta gjaíirnar
liundruðum króna, þótt fátt sje um auð-
menn innan fjelags, og enda þótt þessir
fundir sjeu ver sóttir á sumrin en ella
sem eðlilegt er, var á einum þessum
fundi í sumar sem leið gefnar 1111 kr.
37 aurar.
Gjaldkeri kristniboðssjóðsins hef-
ir beðið Bjarma að geta um þessar gjafir:
Gjöf frá J. R. 50 kr., frá konu 184 kr.,
ísfeld 5 kr., Sigríði H. 5 kr., Guðrúnu 10
kr., Maríu Jónsson 10 kr., N. N. 10 kr.,
frá fjelagskonu 100 kr., N. N. 3 kr., konu
í Grindavik 15 kr.
Ritstj. Bjarma hefir tekið við til
Hallgrimskirkju 10 kr. frá Sveinbirni
Bjarnasyni á lífstabæ i Skorradal. í Jóla-
kveðjusjóð 10 kr. frá sr. Jóh. Briem Mel-
stað og57 kr. 50 a. úrgísafjarðarprestakalli.
R|i't s tjj ó]r i [Bjajrjm|a er ófús til þess
að taka greinar frá þeim, sem láta ekki
nafns síns getið við blaðið, og þvi bíða
nokkrar greinar, sem ella mundu birtast.
Prontamiðjan Gutenberg.