Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.05.1920, Blaðsíða 2

Bjarmi - 01.05.1920, Blaðsíða 2
74 B JARMI burðir koma í bága við kenningakerfi trúlitlar heimspeki, sem brotist liefir til valda hjá ýmsum kirkjumönnum. Kærleiks- og mannúðarprjedikun sem gengur fram hjá hjálpræði Krists brýtur hvorki herfjötra syndarinnar nje dreifir vonleysismyrkri dauðans, og veldur engu »lífi«. í*essar og þvílíkar skoðanir komu greinilega í ljós á trúmálafundinum mikla, sem getið var um í síðasta blaði: Lifandi og starfandi kristin- dóm elskum vjer, en höfum óbeit á dauðum rjetttrúnaði og nýjum sem gömlum fræðum, sem hafna hjálp- ræðisstaðhöfnum biblíunnar« sögðu menn, og því vildi meiri hluti fund- armanna ekki samþykkja tillögu frá biskup Hognestad, um að bæta traust- yfirlýsingu til presta eldri slefnunuar aftan við vantraustsyfirlýsingu, sem samþykt var í einu hljóði gegn ný- guðfræðisprestunum. »t*eir eru svo ólíkir, þótt þeir segist fylgja eldri stefnunni«, varhonum svarað, »sumir eru áhugasamir, einbeitlir, sannkristn- ir menn, og þeim mætir óskorað traust og bróðurást meðal trúaðra manna um endilangan Norveg, en sumir eru áhugalausir, eða hikandi gagnvarl nýguðfræði, og í þeirra garð gerum vjer engar yíirlýsingar«. Prófessor Hallesby var eindregið með leikmannastefnunni, og sagði meðal annars í ræðunni, sem mest- an fögnuð vakti: (Sbr. Kristil. Dag- blad 27/0- Nú veröur að láta til skarar skríða. Ekkert frjálst safnaðarstarf má vera bund- ið við prestinn af því að hann er prest- ur. Pað er harl aðgöngu en verður svo að vera. Nýguðl'ræðin fær við það alvar- legan hnekki. Og vjer verðum að hafa góð- ar gætur á nýguðfræðisprestunum. Þcir eru ekki komnir í embættin til að njóta sálgæzlu vorrar. Pað er einmitt þveröf- ugt. Peim er ætlað sálgæzlustarflð gagn- vart oss. Nýguðfræðisprestur þarf ckki að búast við að mæta trausti. Jeg segi nei, nei, nei, og aftur nei. (Þrumandi sam- fögnuður »Tordnende Bifald«). Sendi Guð manninn, en ekki kirkju- málaráðuneytið, skal hann mæta trausti. Samvizka manna er aðþrengd, það ætl- um vjer að segja svo hátt, að allir megi heyra. Pað skal heyrast: Vjer heimtum frelsi gagnvart nýguðfræðisprestunum. Verði oss ekki veitt það, tökum vjer það sjálfir. Pað er ekki úrelt enn þá, að fram- ar ber að hlýða Guði en mönnum. Jeg vona, að tómir kirkjustólar, sem þeim hefir spáð verið, verði nú virkileiki. Peir eru talandi vottur um áhrifin. Og vjer viljum ekki láta þessa menn skíra, ferma og jarða börn vor nje veita þeim kvöld- máltíð, — þessa menn, sem trúa elcki. Pað verður að taka fyrir sóttnæmis- uppsprettuna, guðfræðisdeild háskólans. Það minkar stúdentahópurinn daginn þann, sem það sannfrjettist að norska þjóðin kæri sig ekki um nýguðfræðispresta til kirkjulegra starfa. Norskir æskumenn hika við að ganga að starfinu þegar svo er komið. Fundurinn samþykti langar yfir- lýsingar og áskoranir til þjóðar og stjórnar. Var í þeirri fyrri meðal ann- ars farið fram á, að biblíutrúarmenn skyldu varast að nota nýguðfræðis- presta lil nokkurra kirkjulega athafna og gera þeim með því prestsstöðuna alveg óviðunandi, og sömuleiðis taka börn Sín úr þeim skólum, þar sem kristindómskenslan væri óviðunandi, en jafnframt mæla með trúuðum prestum og kennurum eftir föngum. í hinum var farið fram á, að söfn- uðir fengju áhrif á hrauðaveitingar, — prestskosningar þekkjast eklci í norsku þjóðkirkjunni, — að viss fjöldi safnaðarmanna fái að ráða sjer ann- an prest, en sóknarprestinn, þegar þeir vilji launa honum sjálfir. — Líkt og á sjer stað með kjörpresta í Dan- mörku. Ennfremur var því lýst yfir, að sjálfsagt væri að vera viðbúinn, ef j þessum kröfum yrði ekki sint en ný-

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.