Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.05.1920, Side 4

Bjarmi - 01.05.1920, Side 4
76 BJARMI »Hvern baðstu annars fyrir barnið, Emma?« »Ó, vertu óhræddur um Ellu litlu«a svaraði hún brosandi, og hvatti hest sinn sporum. »Hún Manga gamla tók hana að sjer«. »Jeg er ekki hræddur um barnið, að það fari sjer að voða eða því um líkt«, svaraði hann. »En ætli henni leiðist ekki bjá Möngu gömlu, og salcni þín, hún er orðin svo dætna- laust hænd að þjer, anginn litli«. »Furðanlega, elsku barnið«, svar- aði frúin klökk. »Og hún fer að smá hænast að þjer líka, þótt hún hafi ver- ið feimin við þig svona fyrst. Hefirðu sjeð hvað hún horfir skrílilega á þig stundum? Eins og hún sje að velta fyrir sjer mjög erfiðu umhugsunar- efni. — — Jeg hefi reynt með öllu móti að láta hana gleyma móður- missinum, og jeg hjelt satt að segja að börn væru yfirleitt fremur fljót að gleyma, nema Ella, jeg held hún geti ekki gleymt. Mjer finst oft hún búa yfir huldum harmi, þessi litli aumingi! Og hugsaðu þjer! Eitt kvöld fyrir skemstu, jeg var búin að hátta hana í bólið sitt, og jeg hjelt hún væri sofnuð fyrir góðri stund, jeg læddist þá að rúminu hennar til þess að breiða betur ofan á hana, og veistu hvað: Hún lá þá vakandi og tárin fjellu niður eftir kinnum henn- ar, þótt hún reyndi að bæla ekkann niður. Jeg tók hana auðvilað í fang mjer og spurði hana af hverju hún væri að gráta, eftir langa mæðu kom svarið hægt og slitrótt — »af því að manna mín er dáin — og jeg finn pabba minn víst aldrei«. Ó, þá fann jeg sárt til þess að jeg var ekki móð- ir hennar, og þá hefði jeg viljað geta mikið til þess, að geta lagt hana í faðm föður síns«. »Þú hefir aldrei sagt mjer þetta fyr, Emma, þótt þú hafir margt að segja mjer um Ellu litlu«, sagði mað- ur hennar, þegar hún þagnaði. Nýjar bækur. Andvari, 1919 (44. árg.) er nykominn. Eru þar meðal annars mjög ihug- unarverðar greinar eftir Steingrím Arason kennara og Sigurð skóla- stjóra Þórólfsson. Grein Steingrims »Stjórnarbylting á skólasviðinu«, gæti orðið þarflegt ihugunar- og umræðu- efni á kennara- og foreldrafundum, hvar sem fólki er ant um barna- fræðslu. Sigarður skrifar um fram- þróunarkenninguna vel og greinilega og sýnir fram á hvað apakattavinir fari í bága við reynsluvísindin þegar þeir eru að rekja ættir manna til apakatta. Enginn »milliliður« milli apa og manna hefur fundist, en hitt »fundist« greinilega, að »frægir vis- indamenn« voru svo stækir efnis- hyggjumenn að þeir fóru með lyga- sögur um »mállausa, trúlausa, loðna mannapa« í Afríku, eins og Schafl- hausen, sem skrökvaði því að hann hefði sjeð þá, eða fölsuðu myndir af fósturþróun manns og dýra, eins og Hæchel þýski, átrúnaðargoð íslenskrar efnishyggju, sem skrifaði mörg alþýð- leg rit, sem sanna skyldu að maður- inn væri ekki annað en æðsta dýrið, en eru »full af ósannindum og blekk- ingum« eins og S. f*. segir. Lesendur Bjarma ættu að lesa þessa ritgjörð og sýna hana vind- belgingum þeim, sem eru svo sneydd- ir sannri þekkingu að þeir halda að nú sje »vísindalega sannað«, að »guðs- orð sje tál, og trú og sál sje tildur- smíð blekkinganna«. Frh. á bls. 80.

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.