Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 15.04.1922, Qupperneq 2

Bjarmi - 15.04.1922, Qupperneq 2
74 BJARMÍ Hví eruð þjer hræddir?' Dauði, hvar er broddur þinn? Hel, hvar er sigur þinn? spyr Páll postuli sigri hrósandi er hann hefir skrifað um upprisu Krists i 15. kap. I. Korintubrjefs. Hann er ekki hræddur við dáuðann, veit, að það er »miklu betra að leysast hjeð- an og vera með Kristi«, — og það voru engin sjerrjettindi Páls fram yfir aðra lærisveina Krists. Kristur wfrels- aði alla þá, sem af ótta við dauð- ann voru undir þrælkun seldir alla sína æfi«, segir Hebreabrjefið, og þeir eru margir orðnir, sem frelsast hafa frá þeim ótta. Saga píslarvottanna kristnu segir frá ótal dæmum uin það, og fjölmargir aðrir lærisveinar, sem minna er talað um, heilsa dauð- anum brosandi. »En hvers vegna eru þá svo marg- ir hræddir við dauðann?« spyrja menn. Aðalorsök þess er vantraust á Guði; þegar ekki er um þann ótta að ræða, sem stafar beinlínis frá veikindum á sálu eða líkama. — Ef þjer þykir þetta »hörð ræða, þá íhugaðu með mjer fáein atriði. Pú játar því að Guð sje góður og honum sje ant um mennina, elski þá enn heitar en góður jarðneskur faðir börn sín; heldurðu ekki að hann hugsi jafnl um þá hvoru megin við gröfina, sem þeir sla-nda? »Jú«, svarar þú, »en allir vila, að fjölmargir þjást og kveljast á ýmsar lundir í þessum heimi, — og hver er trygging þess að Guð skifti sjer meira af böli manna í öðrum heimi en hann virðist gjöra oft hjer á jörðu? 1) Frekari spurninguin um þetta efni verður svarað í blaðinu jafnóðum og pær koma. > Jeg sje enga ástæðu til að ætla að maður verði sæll undir eins og hann deyr, þótt stundum heyrist slíkt í lík- ræðum«. — Jeg sje það ekki heldur. En trygg- ingin fyrir kærleika Guðs til mann- kynsins er Jesús Kristur. Jeg sje enga aðra örugga, þegar mjer berast ómar af angislarópum og harmastun- um ótal manna fjær og nær. — Ef þú vantreystir Kristi, þá kann jeg ekk- ert ráð við hræðslu þinni við dauð- ann. »Jeg vil ekki vantreysta Kristi«, svarar þú, »jeg trúi því að hann hati sagt satt um sjálfan sig og hlutverk sitt; en það er samt alt af hjá mjer einhver ótti við dauðann. Mjer finst jeg vera alveg óviðbúinn, ef jeg ætti að deyja í dag«. — Segðu mjer, nei talaðu heldur um það við Guð, hvort þessi ótti stafi ekki af því, að þig vanti alla trúar- vissu. Pú sjert alls ekki viss um, hvað sem játningu þinni líður, að hlutverk Krists hafi lánast að því er þig snertir, og þá er ekki undarlegt að þjer finnist dauðinn muni flytja þig allslausann í ókunnugt land, þar sem þú hvorki skilur tungumálið nje þekkir lífsskilyrðin, og hrollur fari um þig við þá hugsun. Lærisvein- arnir, sem finna þaö í hjarta sínu að þeim er fyrirgefið, ímynda sjer ekki, að þeir geti samið kenslubæk- ur í landafræði wannara heima« eins og sumir »dultrúar-spámenn«, en þeir eru vissir um að besti vinur þeirra hjer á jörðu bíði eftir þeim á strönd- inni hinum megin við dauða hafið, og þar sem hann sje konungur »ókunna landsins«, þá sje engin ástæða til að kvíða, þótt maður komi efnasnauður þangað. Kvíði og hræðsla í þessum efnum er nærri því móðgun við Drott- in, — þegar Kristur hefir fórnað sjálf- | um sjer til að frelsa oss.

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.