Bjarmi

Volume

Bjarmi - 15.04.1922, Page 3

Bjarmi - 15.04.1922, Page 3
BJARMI' 75 Komi trúarvissan — þá fer óttinn, — og hvergi er hentugra að leita hennar en við krossinn á Golgata. Teningunum kastað. IV. r>Sporin hrœða«. Já, vjer töldum upp fáein »spor« í siðasta blaði, sem flestir munu telja lítil meðmæli með nýguðfræði. Hægð- arleikur væri að bæta við. — En rúmið er lítið og fróðleikur lærdóms- manna vorra vonandi eins mikill og bjá Bjarma, og því er hjer að eins drepið á fáeinar staðreyndir frá »móð- urlandinu«, Þýskalandi. Kristilegt fje- lags- og safnaðarstarf er þar lang- mest í höndum ókirkjulegra leik- manna, nema þar sem íhaldssamir og áhugamiklir klerkar starfa. Út- streymi úr evangélisku kirkjunum er stórvaxið, (um 250 þúsundir árið 1919). Guðfræöingarnir í stjórnum kirknanna svo »frjálslyndir« eða öllu heldur skeytingarlausir, að þeir hika við árum saman að reka presta frá embætli, þótt þeir kenni að engin Guð og ekkerl eilífl lif sje til, eins og sr. Strasowski dr. theol., — sleppi ritningarlestri, bænagjörð og blessun við »guðsþjónustur« sinar, hafni skírn og kirkjulegu hjónabandi, en mæli með »samvisku samböndum«, og skrifi bók, er heitir: »Brott með kirkjuna«, eins og sr. Haydorn i Hamburg, — eða fari svívirðingar- orðum um kristindóm, kirkju og prestastjett eins og sr. Fiedler dr. theol. i Planitz1) — allir telja þeir 1) Dr. Fiedler var loks vikið frá i fyrra, Haydorn misti ekki embætti, en fjekk »10 ára hvíld«, kallar pó kirkjuár- bók Pjóðverja liann »guðlausan draum- óramaun*. sig nýguðfræðinga, að eins töluvert »frjálslyndari« en alment gjörist. — Hatursmenn kristindóms eru fjöl- mennir og færa sjer fullyrðingar slíkra manna trúlega í nyt, en al- menningur fer í stórhópum til all- misjafnra »dultrúar-spámanna« — »hjátrúin er ranghverfa vantrúarinn- ar með dulspekisblæ«, eins og Pjóð- verjar komast að orði. — Má nefna í þeim »spámanna«-hóp: L. Háuszer, sem kallar sig »hinn nýja Krist« og »alræðismann Evrópu«. »Furstinn frá Sela« (roskinn vefari). Kirberg, sem kallar sig »Jesúm frá Dössel- dorf«, og fleiri svipaðir. Þeir hafa haft »góða áheyrn«, þótt stundum hafi þeir lent í geðveikrahælum eða »í steininum«, og sjeu enn dýrseldari en vjer eigum að venjast. Bestu sæti 100 mörk við erindi Háuszers. Muller- Czerny, er kallar sig »Krist annan«, selur hverja ráðleggingu 50 mörk, og hefir mikla aðsókn! — Pað þætti dýrt hjá »dulspekingum« vorum. Vafalaust þarf ekki að skýra ný- guðfræðingum vorum nánar frá þess- um fjárglöggu »dulspekingum«, þvi að eftirlætisblað þeirra, »Christliche Welt«, gefur öllu slíku mikinn gaum (sbr. Kirkjuárbók Pýskalands 1921). — En naumast telja þeir »sporin« aðlaðandi, þótt einhverjum kunni að vera það huggun að víðar er hjátrú en í Reykjavík. Alstaðar sannast orðin í »Bibelfor- skaren« 1921 bls. 147: »Skynsemsku kristindómur (den rationaliserade kristendom), sem ætlað var að mundi laða nútíðar-manninn til að nálgast hið guðdómlega, reynist allia ófær- astur til þess að fullnægja þörf ein- mitt nútima-mannsins«. — Kunnugir vita að útg. þess tímarits, Stave Uppsala-prófessor, stendur ekki að baki prófessorum vorum i vísinda- mensku og víðsýni og bleypir hvorki

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.