Bjarmi

Volume

Bjarmi - 15.04.1922, Page 6

Bjarmi - 15.04.1922, Page 6
78 B JARMI hjer, er H. N. velkomið að leiðrjetta það.) II. Síðara erindið, sem flutt var með meira »fjöri« en hið fyrra, var mestalt tómur upplestur á því, sem H. N. hafði best fundið í ritum spiritista og lakast í gamla testament- inu og vildi hann með því rjettlæta fyrri ummæli sín um »ruslið«. Ofur- lítil olbogaskot gaf hann þar biskup, sr. Fr. Fr. og Árna Jóhannssyni, en öll fremur meinlítil. Að lokum ráðstafaði liann útför sinni, það er að segja las upp sálm- inn, sem ælti að syngja við útförina, kvaðst hann vilja að hún yrði kristi- leg, en lfk sitt skyldi brenna, ef kostur væri. — Sumir áheyrendurnir gjörðu sig seka í þeirri »smekkleysu« að klappa á eftir, þótt ræðulokin væru um útför fyrirlesarans. Þegar jeg gekk brott eftir siðara erindið, spurði jeg samferðamann minn, hvernig honum hefði líkað meðferð H. N. á gamla testamentinu. Hann sagði: »Það minli mig á gamla konu, sem spurði mig einu sinni: »Trúið þjer þvf, að biblían sje Guðsorð?« Jeg játaði því. »Jæja«, svaraði konan, »ekki skil jeg það. Það kvað standa f biblíunni að Salómon hafi átt 1000 hjákonur, og ekki treysti jeg mjer til þess.«(l!) Hún hjelt, vesalings konan, að þeir, sem segðu bibliuna Guðsorð ætluðust til að breytt væri eftir öllu, sem í henni stæði. — En guðfræðis- prófessor ætti að vita betur.« — í nýja testamentinu er frá því sagt, að Júdas hengdi sig; ekki hafa »víð- sýnu« mennirnir þó ennþá borið oss það á brýn, sem teljum það satt, að vjer hljótum að ætlast til að allir lærisveinar Krists breyti eftir því. Ritstjóri Bjarma. Trúmálahugieiðingar. Pað eru orðnar margar trúmálastefnur þjóðar vorrar, pó pjóðin sje ekki mann- mörg. Það kom í ljós á trúmálafundum þeim, sem haldnir voru hjer í Reykjavík, dag- ana 12.—19. mars s. 1., að skoðanir í trú- málunum voru mjög skiftar hjá þeim, sem þar tóku til máls. En hvort þær skoðanir hafa allar mikil áhrif út á við, skal jeg láta ósagt. Einna mest áhrif hygg jeg að spíri- tisminn hafi liaft á þjóðina, af liinum nýrri trúmálaskoðunum. Pó hann hafi el' til vill ekki haft mikil áhrif á þessutu fundum hjer í Reykjavik, þá hefir hann haft mikil áhrif með ræðurn og ritum forgöngumanna sinna. Markmið spíritismans er að leitast við að fá vísindalegar sannanir fyrir frani- haldi lífsins eftir dauðann. Og þær sann- anir álíta spíritislar, að þeir Jiafi fengið með því að fá frjettir frá framliðnum mönnum. Margir hafa trúað því, að það hafi áreiðanlega tekisf, og þótt það mikil gleðitíðindi. Út af þessu hafa risið miklar deilur i landinu. Sumir hafa mótmælt því, að það væri rjett, sem spiritistar halda fram, aðrir hafa talið það óleyfilegt, eftir kenn- ingu Guðs orðs, að leita frjetta framliðna. Svo hefir það oft og einatt reynst ósatt, sem haft hefir verið eftir öndunum og það hefir orðið til að vekja ótrú á mál- inu. (Sumir hafa orðið taugaveiklaðir, aðrir geðveikir út af því, að fást við andarannsóknir). Pó veit jeg til þess, að margir eru farnir að gera sjer háar vonir um spiri- tismann, og vænta mikils góðs afhonum. Jeg hef talað við menn, sem hafa sagt, að trúin hafi glæðst hjá þeim við áhrif spíritismans, og þeir hafi farið að fá löngun lil að lesa Guðs orð í ritningunni, þó þeir hefðu ekki áður hirt um að lesa í henni. En alt fyrir það er spíritisminn eng- inn ávinningur fyrir kristindóminn í mínum augum. Ef einhver fer að lesa í heilagri ritn- ingu fyrir það, sem spiritistar segja um hana, þá held jeg að það geti orðið til þess, að rangfæra og misskilja ýmislegt,

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.