Bjarmi - 01.11.1922, Síða 1
BJARMI
KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ
XVI. árg.
Reykjavík, 1.—15. nóv. 1922.
24. tbl.
»Frœð pu sueininn nm veginn, seni hann á að halda«. (Orðskv. 22, 5.).
„3arnalærdómskverin“
eru enn á dagskrá,— sem betur fer,
— og um þau deilt, sem eðlilegt er.
Barnakenslan hefir verið, og er lík-
lega enn víða hvar, í mesta ólagi, og
þá bafa »kverin« verið illa kend eins
og flest annað. — Þó er ekki ráðist
á aðrar kenslubækur á svipaðan hátt
og kverin, heldur er þar reynt að
bæta bækurnar og bæta kensluna.
Það er sagt, að kverin hafi tæmt
kirkjurnar, þó voru kverin miklu lak-
ari fyrir 100 árum — og fólkið miklu
kirkjuræknara en nú er — svo auð-
sætt er, að aðrar ástæður eru að
»tómum lcirkjum« en kverin okkar.
Nokkrir gamlir prestar segjast ekki
liafa sjeð verulegan árangur af ferm-
ingarundirbúningi hjá fjölmörgum
ungmennum, — og kenna það »kver-
inu«. En hvað segja þeir um áhrif af
ræðum sínum? Voru þau sýnileg að
jafnaði? — Hafa ekki allir samvizku-
samir kennarar þá sögu að segja, að
margir nemendur þeirra hafi tekið of
litlum frainförum? Hvað sýna próíin?
Unglingaskólar kvarta yfir, að fjöl-
margir, sem þangað koma úr barna-
skólum, sjeu ekki sendibrjefsfærir, og
margur »mentamaður« fer bæði með
ritvillur og málvillur alla æfi. Ætli
það reyndist meinabót í því efni að
banna að kenna ritreglur og málfræði?
Allir vita að ekki eru þær bækur
vinsælar hjá flestum börnum, svo is-
lenzku-kennurum yrði ekki eríitt að
fá þau til »að hrópa húrra« fyrir
því banni. — —
Mótspyrnan gegn kverkenslu er af
tveim rótum runnin. Sumir telja
kverin of þung börnum, þótt þeir
vilji, alveg eins og vjer, að kensla f
kristnum fræðum stefni að þvf að
gera nemendurna að sannkristnum
fjelagsmönnum í söfnuðum kirkju
vorrar. Við þá vill Bjarmi ekki deila.
Geti þeir komið með betri kver, en
þau, sem nú eru á boðstólum, þá er
það ágætt. En þangað til ættu allir
vinir lúterskrar kirkju að vera sam-
laka í að nota þau kver, sem fyrir
hendi eru, vel og skynsamlega. —
Væri t. d. ágætt, að prestar tækju
þau til meðferðar á samtalsfundum
æskumanna. — Síra Fr. Friðriksson
hefir reynt þá aðferð i Ií. F. U. M. í
Rvík og gefist prýðilega.
Aðalmótspyrnan er frá þeim kom-
in, sem eru leynt og ljóst að reyna
að grafa fætur undan öllum ákveðn-
um kristnum játningum, og efast
um margar sögulegar staðhafnir úr
æfisögu Ivrists sjálfs og þá sjerstak-
lega jóla- og páskasögurnar. Reir tala
um »að bera börnin út á kenninga-
klakann«, ef þeim sjeu kend lútersk
fræði, en vilja fá sjálfir fult frelsi til að
gera trúarbragðakenslu í opinberum
skólum að trúboðssamkomum fyrir
guðspeki, andatrú og allskonar ann-
arlegar trúarskoðanir.
Gagnvart þeim verða allir sannir
vinir kirkju vorrar að vera á verði,