Bjarmi - 01.11.1922, Blaðsíða 5
BJARMI
189
eðlilegt. Sumar konur kirða ekkert
um á hvern hátt maðurinn þeirra
aflar sjer fjár á meðan nóg er til að
bíta og brenna og ekki er skorlur á
fógrum húsbúuaði«, og hún skimaði
alt í kringum sig um leið og hún
lauk við setninguna.
Nýjar bækur.
Dalmæiii og dultrú, heitir ný bók
(192 bls.) eftir Sigurð Þórólfssou fyrv.
skólastjóra.
Höf. segir svo i formála bókar þess-
arar: »Bókin er einkum skrifuð handa
fróðleiksfúsum alþýðumönnum, þeim
til leiðbeiningar um helztu dulmættis-
atriði sálarlífsins, svo þeir frekar geli
skapað sjer sjálfstæða skoðun á ýms-
um dultrúarkenningum, sem oft ein-
hliða er haldið að þeiin. Það er lika
sannfæring mín, að það sje óþarfa-
verk, sem sumir hafa með höndum,
að vekja upp og útbreiða miðalda-
hjátrú og Austurlanda hugarburð og
hindurvitni. Þjóð vorri er það til
engrar blessunar, hvorki andlega eða
líkamlega«,
Bjarmi sjer ekki betur en þessi til-
gangur sje góður. Efasemdaslefnan
braut stór skörð í alt biblíutraust og
um leið lamaði hún virðingu og traust
á boðskap kristinnar kirkju, en bygði
ckkert i staðinn. Andatrú og guðspeki
fann því góðan jarðveg til að reisa
upp skýjaborgir allskonar hindur-
vitna. Álfatrú og draugatrú er komin
i besta blóma víða hvar þar sem »orð
krossins« þykir úrelt heimska. Bók
þessi er rækileg árás á þau hindur-
vitni. Og þótt Bjarmi mundi hafa
orðað sumt öðru vísi, t. d. ummælin
um áhrif bæna, á bls. 6, þá teljurn
vjer bókina yfirleitt góð orð í tíma
töluð og er vonandi að margir verði
dálílið aðgætnari gagnvart hindurvitna-
snörum, er þeir hafa lesið hana.
Jólakveðjan 1922 er nýkomin frá
Höfn og þegar farin frá Reykjavik út
um land. Margir prestar og barna-
kennarar láta þess getið að þeim sje
ljúft að úthluta henni, en sumir hafa
öll þessi ár aldrei látið þess getið,
hvort Jólakveðjan komi til skila, eða
hvað mörg eintök þeir þurfi, svo að
hún komist á hvert barnaheimili, eins
og henni er ætlað af gefendunum.
Meira að segja hefir það komið fyrir
að 4.prestar í Múlasýslum hafa látið
pósthúsin á Seyðisfirði og Eskifirði
endursenda Jólakveðjupakkana í stað
þess að gleðja börnin með ritunum, og
það lakasta er, að ritstjóri Bjarma
sem annast útsendinguna, er svo ó-
kunnugur i þeim prestaköllum flest-
um, að hann veit ekki með vissu
hverjum trúa má til að gefa börnum
ritið, þegar prestar taka því svo.
Annars leyfum vjer oss enn að
nýju að biðja lesendur þessa blaðs
hjerlendis að láta oss vita, ef Jóla-
kveðjan kemur ekki á barnaheimili í
nágrenni þeirra. — Að gefnu tilefni
skal þess getið að það er með öllu
óheimilt að selja þetta rit, nema menn
láti binda það, þá er ekki hægt að
banna að selja bandið.
í þetta sinn verða engar íslenskar
myndir sendar dönskum sunnudaga-
skólum, þvi að ekki er fullborgaður
enn kostnaðurinn við tvær síðustu
inyndirnar. En vonandi safnast svo
í vetur í Jólakveðjusjóð að unt verði
að senda mynd bjeðan fyrir jólin 1923.
50 fyrstu nýju kaupendurnir að næsla
árg. Bjarma fá pennan árg. ókeypis uni
leiö og peir borga 17. árg. með 5. kr. og
burðargjald undir 16. árg. 50 aurar hjerl.
og'l kr. erl,