Bjarmi - 01.02.1923, Qupperneq 1
BJARMI
E KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ =
XVII. árg.
Reybjavík, 1. febrliar 1923.
3. tbl.
Höndlaðu eilift líf, sem pú erl kallaður til. (1. Tím., 6, 12 ).
Læknar og kristindómur,
Svenskur læknir, sem var á kristi-
legum læknafundi í Hróarskeldu í
Danmörku í haust sem leið, skrifaði
á eftir í »Svenska Morgonbladet« í
Stockhólmi á þessa leið meðal annars:
»Árið 1897 sneri dr. Krohn sjer til
nokkurra lækna, sem hann vissi að
voru trúaðir menn, til að vita, hvort
þeir vildu ekki stofna sjerstakt kristi-
legt læknafjelag. Árangurinn varð sá,
að fjelagið var stofnað haustið 1897.
Formenn þess hafa verið læknarnir:
Joh. Brodersen, N. Chr. Smidt og P.
D. Koch. Fjelagsmenn eru nú ekki
færri en 124, og auk þess er í »sam-
bandi« við það læknanemaflokkur með
143 fjelögum. Þessar tölur sýna hvað
kristindómur lætur mikið til sin taka
meðal Dana, þótt Daumörk sje ekki
hálfdrættingur móts við Svíþjóð að
íbúatölu.
Kristnu læknarnir dönsku tóku
þegar að hugsa um kristniboð. Síðan
fjelag þeirra var stofnað, hafa 25
læknar danskir gjörst kristniboðar, 7
konur og 18 karlmenn; af þeim
höfðu 8 numið læknisfræði í Eng-
landi og Ameríku, en hinir 17 við
háskólann í Kaupmannahöfn. Þessir
læknar hafa farið til Sýrlands, landa-
mæra Afganistan, Kina, Súdan og
Java. Auk þess hefir fjelagið látið
halda fjölda fyrirlestra heima fyrir,
til að vekja áhuga trúaðra manna á
læknatrúboði og stofnað kristilegt
fjelag læknisfræðinema.
Læknafundurinn var að þessu sinni
í gistihúsinu »Prinsinn« í Hróars-
keldu. Það var hátíðablær á öllu.
Þegar jeg kom þar inn í fundarsal-
inn, var þar einstaklega myndarlegur
hópur lækna og kvenna þeirra. Þar
sá jeg 4 svenska lækna: Rumars (Ty-
ringe), Lövenhjelm (Löth), Idar (Vest-
eraas) og Sardin (Krippefjeld). í
danska hópnum voru: Saugmann
prófessor (heilsuhælið við Vejle),
Ingerslev (Friðrikshavn), Schou (Dí-
analund), Götshe, Balslev, Vester-
gaard og margir aðrir, bæði gráhærð-
ir öldungar og nýútskrifaðir lækna-
gyðjubræður. Umræður um fjelags-
mál voru skemtilegar; rætt var og
um ýms stefnuskrármál. Læknarnir
kristnu ætla að ráðast gegn efnis-
hyggju samtímans, styðja bindindis-
mál og siðgæði í kynferðismálum, og
hafa áhrif á trúarstefnur starfsbræðra
sinna.
Stungið var upp á, að trúaðir
læknar svenskir skyldu fá að verða
áskrifendur að timariti fjelagsins;
nafni þess, »Meddelelser«, bæri að
breyta, og talið eðlilegast að það hjeli
»Nordisk krislelig Dagblad«. Tilætl-
unin var, að vekja jafnframt athygli
trúaðra lækna í Noregi á þessu blaði.
— Að öllum líkindum verður innan
skamms stofnað kristilegt læknafjelag
í Svíþjóð, er vafalaust verður bæði