Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.01.1929, Síða 4

Bjarmi - 15.01.1929, Síða 4
r 16 B J A R M 1 baki við Kristi, sannar það ekkert um aðiar þjóðir. Fáir myndu telja það greindarmerki, að dæma um kirkjumál allra ídendinga vestan hafs i og austan eftir því einu hvernig trú- arhag Grímseyinga kann að vera farið, og væri það þó ekki eins fjarri lagi og hilt. Annars er meir en lítið tvísýnt hvort vantrúin hefir nokkra ástæðu til að láta mikið. Fað er ekki alveg víst, að þjóðin sje jafn trúlítil og vantrúin lætur. — í því sambandi má minnast á atburð frá liðnu ári, sem ýmsum verður minnistæður: Þegar togarinn »Jón forseti« strand- aði á Stafnnesrifi 27. febr. í fyrra og skipverjar hjengu á rám og reiða margar stundir uns þeir ýmist sukku í sæ eða björguðust í land, þá raul- uöu þeir sálma milli þess, sem hol- skeflurnar fóru yíir skipið. Þeir sungu t. d.: A hendur fel þú honum, . . . Ó, þá náð að eiga Jesúm, . . . og . . . Pegar geysar slormur striður þá stendur hjá oss friðarengill blíður og þegar ljósið dagsins dvin, oss drottins birta kringum skín. Það heíði ekki þótt bera vott um trúleysi, ef sá atburður hefði gerst með öðrum þjóðum, og þí hefði ómur þess söngs borist með blöðum stóiþjóðanna viða um heim. — Gott er þess að minnast, að þús- undir sungu jólasálma í kirkjum vor- um við nýliðnar jólaguðsþjónustur, en áhrifameira finst mjer að heyra um, að mennirnir, sem dauðinn blasir við, skuli syngja slíka sálma. Ekki er það annað, sem harm- þrungnum ástvinum nýlátinna manna, er Ijúfara að heyra, en það, sem bendir til, að þeir haíi kvatt í Jesú nafni og ahallað þreyttu hötði í Drottins skaut« í hinsta blund. — En hitt er satt, að oss, sem eftir lifuro, er ekki nóg að heyra um sigurför gleðiboðskaparins einhvers- staðar úli i löndum eða meðal ná- granna vorra, ef sigurfarar hans verð- ur ekki vart í lífi sjálfra vor. Áhætta hirðuleysisins um að opna hjarta sitt og heimili verður þeim mun meiri, því bjartar, sem Ijósið skín frá bæðum, — og þá ekki síst, er vjer hugsum um, að alt er það lánsfje, sem oss er veitl, árið liðna engu síður en annað, — og enginn kemst fram bjá reikningsskilum að lokum. — — Það er verið að leysa innsiglin af framtíðarbók nýja ársins, og við vit- um fátt af þvi, sem þar er skráð. — Ekki er það ólíklegt, að marga vor á meðal hendi ýmislegt óvænt; svo hefir það gengið að undanförnu. — Talaðu við sjúklingana hjer í bænum — þeir skifta hundruðum — og voru langflestir jafn frfskir og vjer, sem hjer erum, um síðustu áramót. — Ógróin ieiði skiíta hundruðum hjer i kirkjugarðinum, talaðu við þá, sem hafa verið að hlynna að þeim í veð- uiblíðunni liðin jól, og þúmuntbrátt komast að raun um, að þeir bjugg- ust fæstir við því í fyrra, að þeir æltu nokkurt eiindi í kirkjugarðinn með jólatrje um þessi jól. Sorg og gleði, beilsa og heilsuleysi, líf og dauði skiftast á. Það er svo alvanalegt, að við tökum ekki eftir því, er aðrir eiga hlut að máli; en sá veit best sem reynir, að erfitt er að verða fyrir þeim umskiftum óvið- búinn. Nei, við vilum fátt hvað í fram- tíðarbókinni stendur, en hitt vitum við. að hún er í höndum hans, sem leiddur var forðum »sem lamb til slatrunar«, er í höndum frelsarans, sem bað fyrir okkur, að oss væri lánað liðið ár, lánuð einnig þessi náðarstund við áramólin til að flýja

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.