Bjarmi - 15.01.1931, Síða 7
BJARMI
15
úr norsku eða dönsku. Má af því marka
að sænsk alþýóa á erfitt með aó skilja ná-
grannaþjóðir sínar.
Bók Hallesbys um samviskuna, »Sam-
vetet« var tafarlaust sænskuð (164 bls.,
3 kr.) og bók Ricards, »Jesu Kristi Liv«,
(leiðbeining við daglega íhugun), kom út
í 3. skiftið. Rektor Joh. Rinman, einn af
góðkunnustu trúmálamönnum Svía, vann
að hýðingunni.
Glimtar frán várt arbete i Zululand och
Rhodesia, eftir J. Sandström, 96 bls., 1 kr.
fíland Krigsfángar i Ryssland, Siberien
och Japan, eftir H. Neander. Átakanleg
bók meó myndum. 136 bls., 3,75.
Mittens Rike och Kristi Rike. Frásögur
frá Kína meó myndum. 104 bls., 2,50.
Abessiniens Historie, eftir N. Roden, m.
myndumi 148 bls., 3 kr.
Svíar hafa rekið kristniboð í Abessiniu
yfir 60 ár, og kristniboðar bessir hafa
starfaó jöfnum höndum að því að efla
starfandi kristindóm innan þjóðkirkjunnar
gömlu þar í landi og boóa heióingjum og
Múhameðstrúarmönnum kristindóm. Voru
þeir framan af illa sjeðir hjá valdhöfun-
um, en seinni árin hefir það gjörbreyst.
Árið 1924 var Taffari konungur Abessiníu,
sá er tók þar keisaratign liðið haust, í
Noróurálfuför og 20 furstar með honum.
Hann kom til Svíþjóðar í þeirri för, og
blaðamenn, sem litið höfðu niður á alt
kristniboð, urðu alveg forviða, er konuug-
ur tjáói þeim að aðalerindi sitt til Svíþjóð-
ar væri að þakka kristniboðsfjelögunum,
er sent hefóu ágæta trúboða til þjóðar
sinnar og aldrei gefist upp, þótt oft
hefðu þeir átt við ótal erfiðleika að etja.
Var það í fyrsta skifti, sem erlenciur
þjóðkonungur heimsótti kristniboðsskóla á
Norðurlöndum til að þakka fyrir starfið
heima hjá sjer. Konungur þessi eða keis-
ari, gefur kristniboði Svía stórfje árlega tii
sjúkrahúsa. Segir frá því öllu í þessari bók.
Skáldsögur frá Fosterlandsstiftelsen:
Skörd efter Sádd, av Axel Beck, 282 bls.
Veró kr. 4,75.
Hans Moders Portrátt av Harding Kell-
ey. 128 bls., 2 kr.
»Eder Fader vet«, sögur frá Indlandi
eftir V. Wigert kristniboða, 148 bls., 2,75
Pá Tndianstigen, eftir E. R. Joung, þvdd
á sænsku af Karl Fries. 168 bls., 2,50.
Kallspráng eftir Maríu Dinesen, úr
dönsku. 164 bls., 3 kr.
Björn Flygaren, eftir Fridtjov Birkeli,
þýdd úr norsku. 168 bls., 2,50 kr. - Ágæt
drengjasaga.
Pá Fördevágar, sögur eftir önnu öland-
er. 216 bls., 3,75.
Verð allra þessara bóka er talið 1 erlendum
krónum.
Kynfci'ðlsiiii'ilarltsmíðai' síðustu ára hafa keyit
svo úr hófi frani, að mörguni er farið að verða
óglatt. Hefir einn ritdömarinn, Jakoh Sinári,
kennari við mentaskólann, loksins rofið þögnina
um þœr á viðeigandi hátt, og sýnt öðrum hug-
deigari um leið, að vel má um þœr tala opin-
berlega án þess að ata sjálfan sig í óþverranum
og án þess að kitla forvitni óþroskaðra manna.
í ritdómi í Vísi 15. des. f. á. um nýja ljóða.
bók eftir Böðvar frá Hnífsdaþ segir Smári með-
al annars:
»Enginn skiiji orð mín svo, sem eg amist við
svonefndri »líkamlegri eða »holdlegri« ást. En
hún á að vera heilbrigð, og hví þá þetta sífelda
tal um »eitur«, »viltar nautnir«, villimensku eöa
hvað það nú heitir. Og síst er ástæða til að lýsa
hrossamarkaðs-ástafari f heilli bók, þótt meöal
manna sje, heldur en ástafari hænsnanna, sem
aldrei hefir þótt neitt sórlega glæsilegt«.........
»Og satt að segja, þetta »eitraða« nautna- og
kynferðisflatrím, sem nú veður uppi hjá æðri
sem lægri meðal skáldanna, ásamt billegum
ádeilum og sykursætri alþýðu-lofdýrð; — það
ergir mig og lætur mig shrökkva upp af stand-
inum«, eins og Pórbergur mundi segja«.........»En
þetta gengur I fólkið, og þessu er sungið lof og
dýrð. Menn langar í kynferðis-kítlið og óekta al-
þýðudekrið, langar til að »kanna dreggjanna
kost«, eins og Böðvar frá Hnffsdal segir, og kasta
sjer »hiklaust 1 kaf« — »að kanna þá augnabliks-