Bjarmi - 01.07.1931, Blaðsíða 1
XXV. árg.
1. júlí 1931.
13. tbl.
Prestastefnan 1931.
Ritstjóri Bjarma var staddur norður á Akur-
eyri við brúðkaup sonar síns sama daginn og
sýnódus hófst og náði ekki að vera nema hálf-
an annan dag á prestafundinum á Laugarvatni.
Getur hann þvi ekkert skrifað um prestastefn-
una og biskupsvígsluna og fátt um fundinn af
eigin raun og heyrn, og tekur því hjer skýrslur
þær er fundarritarar sendu blöðunum, þó með
fáeinum úrfellingum.
Hún hófst 18. júní meó guósþjónustu í
dómkirkjunni, þar sem sr. Bjarni Jónsson
prjedikaói út af sálminum í 1. Pjet. 2, 4.
—5. En fundirnir fóru eins og- vant er
fram í húsi K. F. U. M.
Kl. 4 hófust fundahöldin. — Biskup
flutti bæn og bauö menn velkomna og
kjöri fundarskrifara sr. Eirík Albertsson
á Hesti. Voru þá alls mættir 32 prestar
og 3 prófastar, en síóar bættust nokkrir
við, svo aó tala synodusmanna mun hafa
orðió nálægt 40. En auk þeirra sátu fund-
inn nokkrir eldri andlegrar stjettar menn,
embættislausir og guófræóikandidatar. —
Biskup gaf yfirlit yfir helstu viðburði
næstlióins fardagaárs og byrjaói á að
minnast 1000 ára hátíóarinnar á liónu ari.
Þá mintist hann tveggja látinna uppgjafa-
presta, sra Guðlaugs Guðmundssonar frá
Stað í Steingrímsfirói og Kjartans próf.
Helgasonar frá Hruna og prestsekknanna
Jóhönnu Soffíu Jónsdóttur frá Viðvík
(ekkju sra Zóphóníasar próf. Halldórsson-
ar) og Guóríóar Pjetursdóttur frá Höfóa
(ekkju sra Gunnars Ólafssonar). — Af
prestsskap höfóu látió á árinu Jón Finns-
son á Djúpavogi, Magnús próf. Bjarnar-
son á Prestsbakka, Magnús Þorsteinsson
á Patreksfirói, Gunnar Benediktsson í
Saurbæ í Eyjafirói og Ölafur próf. Ste-
phensen í Bjarnanesi. En af prófastsstörf-
um hafói látiö sra Jón Pálsson á Höskulds-
stöðum. Þjónandi prestar væru alls 103,
en 10 prestaköll væru óveitt. Af 8 presta-
köllum, sem óveitt voru í fyrra (af því aó
þau, aó undirlagi stjórnarinnar, höfðu
ekki verió auglýst) höfðu 4 verið veitt á
fardagaárinu, en vió þau 4, sem þá voru
óveitt, hefóu bæst 6. Þessi 5 prestaköll
hefðu verió veitt á árinu: Reykholt (Ein-
ari Guðnasyni), Breiðibólsstaður í Vestur-
hópi (Stanley Melax),. Grenjaðarstaóur
(Þorgrími Siguróssyni, Stórinúpur (Jóni
Thorarensen) og' Bjarnanes (Eiríki Helga-
syni). En vígslu hefóu tekið: Einar Stur-
laugsson til aöstoóarprests í Eyrapresta-
kalli Sigurjón Guójónsson til aóstoöar-
prests í Saurbæ á Hvalfjaróarströnd og’
Þorgrímur Sigurósson til Grenjaóarstaóar.
Einnig hafói biskup, með leyfi stjórnar-
valda, veitt pres'tvígslu Jóni Auðuns, er
g-jöróist prestur utan-þjóókirkjusafnaðar í