Bjarmi - 01.03.1932, Blaðsíða 10
42
BJARMI
til handa, en hann taldi standa öðrum til
boða.
Samband hans við föðurinn var miðils-
eining. Hann var miðill eða »miðlari«
(meditator).
UM HEILAGAN ANDA.
Persónulegur heilagur andi er ekki til
og ekkert þvílíkt.
UM SYND.
Syndafall hefir aldrei átt sjer stað.
Hvað sem er, er rjett. Ilt er ekki til. Þao
skiftir engu, hver leið manns er, hvort hún
er góð eða slæm; það er leið, sem Guð og'
forlögin hafa valið honum.
UM FRIÐÞÆGINGU.
Dauði Jesú Krists hefir ekkert friðþæg-
ingargildi.
Jesús var gyðinglegur trúarofstækismað-
ur og dó fyrir aldur fram.
UM SÁLUHJÁLP.
I andaheiminum breyta menn illa, eins
og þeir breyta hjer. Þeir uppskera eins og
þeir sá; en smám saman verða þeir hreinni
og sælli.
Maðurinn verður sinn eigin frelsari.
Sambandið við andana gjörir menn betri
í þessu lífi.
UM ENDURGJALD.
Helvíti er ekki til, og verður aldrei til.
öllum öndum spekinga, fræðara og
mannvina ber saman um það, að ekkert
helvíti sje til og enginn djofull.
Engin upprisa — enginn dómur.
III. Gudspekin.
UM GUÐDÖMINN.
Eilíf vera, ofar allri mannlegri skynjan,
alfullkomin, algild.
öpersónulegur kraftur ópersónuleg
hugsun, sem er í öllu og gegnum-streymir
alt.
Til að verða guðspekingur þarf maður
aðeins að tigna anda hinnar lifandi nátt-
úru og reyna að sameinast honum.
UM JESÚM KRIST.
Jesús flutti hciminum hrafl af gagn-
legri fræðslu, scm grundvöll heims-trúar-
bragða, og það gjörðu líka þeir Búdda,
Konfúsíus, Plató, Pyþagóras o. fl.
UM IiEILAGAN ANDA.
Hans er ekki getið.
(Nýrri skýring: »Lávarður menningar-
innar«).
UM SYND.
öll hugsun, hvort sem hún er góð eða
vond, setur sín einkenni á huglíkamann
og gjörir vart við sig í seinni jarðvistum
sem tilhneiging.
Undan þessu lögmáli orsaka og afleið-
inga fær enginn komist. Fortíðin myndar
framtíðina.
Andi mannsins skiftir um bústaði, og
góðverk hans og misverknaður kveður á
um það, hvers konar líkama hann fær 1
hverri jarðvist.
Eina vonin um að losna við syndina, er
að sökkva sjer niður í algle.ymis-hugskoðun.
UM FRIÐÞÆGINGU.
Hver venjuleg mannvera verður að end-
urholdgast hjer um bil átta hundrað sinn-
um, áður en hún fái fullkomnað hreinsun
sína af allri synd.
UM SÁLUHJALP.
Maðurinn er andleg vera, í insta eðli
sameinuð hinum mikla allsherjar-anda,
sem opinberast í allri tilverunni.
I þeim líkama, sem andinn hefir í hverri
jarðvist, vinnur hann að þroskun þess
hæfileika, er eyði undangengnum skað-
semdar-áhrifum; en með því að móta æ
nýjan og nýjan líkama, nær hann að lok-
um settu marki: mannlegri fullkomnun.
Skapgerð sú, er barnið flytur með sjer
inn í heiminn, er árangur fortíðar þess. I
fortíðinni sköpuðum vjer örlög vor, og 1
nútíð erum vjer að skapa framtíðar-örlög-
in. Þessar staðreyndir eru vísindalegur
grundvöllur alls siðgæðis og skapa viður-