Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.08.1932, Blaðsíða 14

Bjarmi - 01.08.1932, Blaðsíða 14
126 BJARMI Hvað á að kenna? Rceða efiir sr. Öfeig Vigfússon prófast i F ellsmMw. »Hvað á að kenna börnunum? 18 alda gamlan heilaspuna, eða þekkingu okkar tíma?« Þetta er fyrirsögn greinar í einu viku- blaði, sem hjer á landi er gefið út, keypt og lesið af mörgum, eða sent og lesið ó- keypis, ef ekki vill betur; og þessi fyrir- sögn og greinin undir henni, er ekki eldri en frá 5. júlí þ. á. Samkvæmt þessari grein og fyrirsögn hennar, og enda samkv. anda og stefnu þeirrar manntegundar, sem gefur slíkt út, er »18 alda gamli heilaspuninn«; Jesús Kristur sjálfur, trú hans, kenning og breytni; líf hans, dauði og upprisa. Alt er þetta »18 alda gamall heilaspuni.« En »þekking okkar tíma,« það er alt annað mál; hún er ný; og hún er ekki heilaspuni. Samkvæmt þessu, og í góðu samræmi við það,, er það nú líka, að þessi mannflokkur ætlar nú að fara, og er farinn að reyna, að safna börnum, fyrst sínum eigin, og síðan annara, helst sem flestum, undir merki sitt; og er mjög fjærri því, að vilja »leyfa börnunum að koma til Krists;« því að hann sjálfur og alt hans, er bara »18 alda gamall heilaspuni.« Jeg þykist vita og finna, að þetta og annað eins muni nú koma óþægilega við marga, og ekki eiga vel við hugarástand almennings meðal vor, og víðast annar- staðar, nú, þegar sumarið og lífsþarfirn- ar kalla á alla krafta allra, til lífsbjargar- starfa fyrir nútíð og' framtíð, og heimtar, að hver einn legg'i sitt til, eftir því sem best má og hollast er. Og þegar nú líka börnin öll, yngri og eldri, bæði til sveitar og sjávar, lifa sinn ljúfasta tíma, er sum- arsólin hellir yfir þau, sem aðra, hlýjum og' björtum geislum sínum, og framleiðir fyrir þau þúsundlitu, angandi blómin, til yndis og fræðslu og fegurðarsmekks, svo ■að þau', ósjálfrátt, lyftast upp og laðast í áttina til uppsprettu alls lífs, hans, sem »skrýðir og prýðir liljur vallarins,« meir og fegur en konungar kunna að skrýðast. Á þessum tíma, sjálfum sólar- og hásumar- tímanum, þegar náttúran öll kennir, og kallar til lífs og starfs, jafnt fyrir líkama og sál, þá er hún ekki þægileg, og' virðist ekki heldur vera eðlileg, þessi spurmng, »hvað eigi að kenna börnunum, hvort held- ur 18 alda gamlan heilaspuna, eða þekk- ingu okkar tíma.« En ef nú þetta, sem kallað er »18 alda gamall heilaspuni«, er ekki aðeins 18 alda, heldur allra alda, frá upphafi mannlífs á jörðu, allra alda kenning og trúboð sjálfrar náttúrunnar, einkum sumarnátt- úrunnar, og þar fyrir líka allra alda hug- boð, trú og kenning allra vitrustu og göf- ugustu manna, sem hafa getað sagt, og líka sagt, með skáldinu okkar: »Guð, allur heimur, eins í lágu og háu, er opin bók, um þig er fræðir mig; já^ hvert eitt blað á blómi jarðar smáu, er blað, sem margt er skrifað á um þig.« I og af þeirri opnu bók náttúrunnar hafa allir mestu og bestu menn allra alda, í öllum löndum, sem sög'- ur fara af, lesið og lært um skaparann himins og jarðar, og föðurinn allra, sem börn kallast, á himni og jörðu; og um skepnur hans, sjer í lagi nánustu börnin hans, oss menninai hver eftir sínum þroska og sínu hæfi; og einnig allur almenningur hefur fundið og farið líka leið, leið lífs- skoðunar og trúar, með því líka, að einnig þeim stóð þessi bók náttúrunnar opin. En enginn hefur þó nokkru sinni skoðað, les- ið og skilið þessa opnu, dýrðlegu bók, nje gjörþekt og kannað hana, eins fullkomlega og Jesús Kristur, sem gerði sjálfan sig að veði og fórn fyrir því, er hann las í henni, og staðfesti það alt með órengjanlegum hætti, frekar og fullkomlegar en nokkur annar hefur gert fyr eða síðar, svo sem kristnu fólki er kunnugt. Þessi, hin allra æðsta og sannasta skoð-

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.