Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.09.1932, Page 4

Bjarmi - 01.09.1932, Page 4
126 BJARMI rækni, og hjeldu áfram gegn öllu and- viðri. Ríkissjóður og’ bæjarsjóður neituðu um styrk, — »sém betur fór,« getum við bætt við nú, því að þess vegna varð hreyf- ingin að styðjast alveg við fórnfýsi og framlög kirkjuvina um land, allt. Þessi hreyfing er orðin 40 ára nú og hefir reist yfir 30 kirkjur. Þó eru þessar mörgu byggingar ekki aðalatriðiði, heldur safnaðaidífið og sjálfboðastarfið, sem sprottið hefir um þær í borginni. Kirkju- .hreyfing þessi verður eflaust talin megin- atriði í kirkjusögu borgarinna síðasta mannsaldur. En hvernig er starfi háttað innan þess- arar hreyfingar? — Um það ætti jeg að geta borið, eftir 11 ára prestskap við eina kirkjuna. — Reynslan hefir sýnt, bæði í K.höfn og Stokkhólm, að það er ekki hentast að byrja starfið, þegar búið var að reisa kirkjuna. Hitt var miklu áhrifaríkara, að byrja í smáum stíl og vinna að safnaðar- málum, meðan kirkjan var »í smíðum.« Svo var þessu háttað í Friðrikshólmi, í suðurjaðri K.hafnar, þar sem jeg fjekk prestsstarf árið 1918. Við byrjuðum í timburskála, er tók 100 manns, en í sókn- inni voru 3 til 4 þúsund* og tvöfaldaðist þó íbúatalan næstu árin. — Segja mætti margar sögur um harðsnúna andstöðu og tortryggni gagnvart öllu kristilegu starfi, fyrst í stað, á mörgum heimilum safnað- arins. En smám saman lagaðist það allt. Fyrsta skarðið í múrvegg andstöðunnar kom meðal æskulýðsins. Við stofnuðum K.F.U.M. og K.F.U.K. í því skarði og kom- urnst gagnvegi þaðan. Eldra fólkið vildi ekkert sinna kirkjumálum sjálft, en átt- aði sig þó á', að við vildum styðja að gæfu barna og unglinga. Árum saman komu trúaðir piltar úr K.F.U.M. til bænafunda í kirkjunni hvern sunnudagsmorgun kl. 9. Guðsþjónustan hófst kl. 10 árd. — Svo komu fleiri skörð í múrvegginn. Hjúkrun- arfjelug var stofnað og »safnaðarsystir« gekk til sjúklinganna. Hún hóf starf sitt í »spönsku veikinni«, og þá opnuðust mörg heimili. Við gáfum út lítið sunnudags- blað og bárum það ókeypis á hvert heim- ili í söfnuðinum. Smám saman komst á fót safnaðarhjálp. Verkefnin voru nóg, því að magar fjölskyldur í sókninni bjuggu við mestu fátækt í smákofum í sumar- görðunum. Varð þetta allt til að breyta framkomu andstæðinganna. Þeir hættu alveg að kalla ókvæðisorðum á eftir sóknai'prestinum, þótt hann sæist í hempu úti á götu, og nú var honum vel fagnað í sumum hús- um, þar sem áður hafði verið hótað að hrinda honum niður stigann, er hann kom með sunnudagsblaðið. Árið 1920 var »kirkjan« stækkuð. »Safn- aðarsal« var bætt við hana. »Safnaðar- kjarninmí*) var fámennur,,en gat þó fórn- að 2000 kr. og lánað 3 til 4 þús. að auk til þessarar viðbótar. Fjórum árum síðar kom ný »viðbót«. Um það leyti hófst ný alda innan Kirkju- hreyfingarinnar. Um alla Danmörku hóf- ust öflug »hjálparsamskot«, til að reisa eða Ijúka við 20 nýjar kirkjur, sem höfuð- borgin þurfti. Hverju »amti« var ætlað sjerstakt hlutverk í því efni. Norður-Sjá- land »fjekk« kirkjuna okkar. Það þurfti 136 þús. kr. til að reisa sæmilega kirkju í Friðrikshólm, og á 5 árum komu í g'jöf- um frá Norður-Sjálandi 133 þúsundir kr., en alls söfnðust þessi 5 ár um allt land 1700000 kr., og vantaði þannig ekki mik- ið á, að mikla takmarkið næðist: »2 mil- jónir kr. til kirkjubygginga í Kaupmanna- höfn,« eða »50 aurar fyrir hvert nef.« Höfuðborgarbúar og allir aðrir, og ekki síst sveitafólkið,. hjálpuðust þar vel að. (»Börnin okkar fara í hópum til höfuð- Ahugafólk safnaðai'mála myndar títl sjer- stakan fjelagsskap innan safnaðar síns og er hann oftast nefndur á dönsku »Menighedssam- fund« eða »Menighedskreds«, en er í reyndinni kjarni safnaðarins.

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.