Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 15.10.1932, Side 1

Bjarmi - 15.10.1932, Side 1
SB' H Él M ILISB LA €> XXVI. árg. 15. október 1932. 20. tbl. Frámmi fyrir augliti Guðs. Fáir stjórnmálamenn, norskir, hafa get- ið sjer meira álits á síðari árum, en Lars Oftedal, ráðherrann, sem nú er dáinn fyr- ir nokkru. Mikið orð fór af honum, sem ritstjóra, enda mun blað hans (Stavangei- Aftenblad) hafa verið með á.hrifamestu blöðum landsins. í ráðherrastóli hlaut hann almannalof, en það er fátítt um menn, sem áræða sjer út í gerningaveður stjórn- málanna. Á dánarbeði snerist L. 0. til lifandi trúar. Tilgangur þessa greinarkorns er, að segja frá því, einhVerjum heima til vitnisburðar. Er hjer farið eftir frásögn sálusorgara hans. Hann var nógu mikið mikilmenni til þess, að auömýkja sig fyrir Ouði. Ilann varð fátækur í anda og tók leiðbeiningum biblíunnar í sáluhjálparefnum. Ilann trúði eins og barn, og honum var unun að hlýða á. frásagnir guðspjallanna einkanlega. Um manninn, sem skuldaði tíu þúsund talentu-r, en varpaði sjer fyrir fætur kon- ungsiins og hað um miskunn, af því að hann hafði ekkert til að borga með, sag'ði Oftedal: »Já, þetta á við mig, og jeg vil taka á móti allri þeirri miskunn, sem mjer er veitt.« Um þá„ sem boðið er að kaupa án endurgjalds, og rjettlætast sakir náð- ar, sag'ði hann: »Er mögulegt, að náðin sje svo takmarkalaus; gagnvart Guði er jeg fátækur og nakinn eins og nál.« Um kindina, sem smalinn týndi en fann aftur, sagði hann: »Þetta stend.ur þá svona, að hann fann hana og lagði hana á herð- ar sjer? Jæja, jeg ligg hjer og bíð ósjálf- bjarga eftir góða .hirðinum.« Og' er hann heyrði um þjónana, sem voru sendir út til að færa fátæka og vanheila og blinda og halta inn til brúðkaups konu-ngssonarins, sagði hann: »Já, þökk, Drottinn, að þú véitir mjer viðtöku eins og jeg er!« Hann kvartaði yfir að hann væri ekki nógu bænheitur. Honum var svarað: »Til hvers þarft þú að vera bænheitur? Þú þarft ekki að blíðka Guð, því hann er góð- ur. Þú þarft ekkert annað en að segja honum vandkvæði þín. Það þarf enga grát- beiðni, til að barninu geti liðið vel í móð- urörmum.« — »Þökk, að þú sagðir mjer þetta,« svaraði hann. »Svo er þá allt und- ir því komið, að jeg hvíli ósjálfbjarga í faðmi frelsarans, en ekki tárum mínum.x Einu sinni segir hann: »Það er stór- viðri í dag. Jeg vildi svo gjárna geta fal- ið frelsaranum mig og rnína, skilyrðis- laust, en er svo fjarska fátækur af gleði eða öryggi.« Honum var þá svarað: »Við höfðum einu sinni samkomui um borð á skipi úti á rúmsjó. Ræðumaðurinn komst

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.