Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.10.1932, Blaðsíða 5

Bjarmi - 15.10.1932, Blaðsíða 5
BJARMI 157 fullyrðingar? Eru þær ekki nokkuð rúss- neskar? Aldrei hafa fleiri sjálfboðaliðar flestra þjóða veraldar skipað sjer undir merki krossins, en á yorujm dögum, — ekki til þess að leita »umbunar vesalmenskunnar«, held.ur til fórnfúsra framkvæmda við ótal góð málefni. Vonandi er ekki þagað um það á alþýðuskólum vorum. Mentun er góð, en fylgi henni sjálfbyrg- ingsskapur og vantrú, skapar hún enga sanna menning, en fær »Starkaði gamla«, sem vel er ritað um í Ársritinu, hættuleg vopn. Ilitt er vel mælt, sem Þóroddur Guð- mundsson ritar í erindinu: »Norra;nt lýð- háskólamót«: »Það er þungamiðjan fyrir starf skólanna, að bjarga sálinni, marka línur milli þess lífs, sem heilbrigt er og göfugt og þess, er lætur einstaklingseðlið hverfa í hafið.« En þá bjargast sálir manna best og njóta einstaklingseðlis síns mest, er þeir ganga í æsku undir merki Krists og bregð- ast því aldrei. Gæfa va;ri landi og þjóð, ef unglingaskólakennararnir væru sam- hentir í þeim efnum. Hitt væri hættulegt átumein, ef vantrúin slekkur þar trúar- neístana, sem unglingarnir kunna að koma með að heiman. Spilling ljettúðar og óhlut- vendni fylgir henni, og þá er ógæfan vís en eng'in »himnesk Paradis á jörðu,« Sannkristinn æskulýður! Það ætti að vera takmark unglingskólanna, og þá væri bjart fram undan. Prestafjelagsritið, 14. árg. (208 bls.), flytur að vanda, mörg læsileg erindi. Efnis- yfirlitið er í 38 liðum og mái þar sjerstak- lega nefna: Starfshættir kirkjunnar, Blindir menn og Blindravinafjelag Islands, Prestafje- lag'ið, allt eftir ritstjórann, S. P. Sívert- sen. Nathan Södei'blom, Frá samvinnu- nefnd Prestafjelagsins, Barnaheimilisstarf þjóðkirkjunnar, allt eftir Ásmund Guð- mundsson, Kristindómur og' göðsagnir (Magnús Jónsson), Kirkjan og líknarstörf- in (Guðrún Lárusdóttir), Árni prófastur Björnsson (dr. J. Helgason), Kirkjan og' börnin (sr. Þórður Ölafsson), Kirkjan og kirkjusiðir í Borgarfirði fyrir 60 árum (Kristleifur Þorsteinsson), Otvarpið og kirkjan (sr. Jakob Jónsson), Bergkonan við Ásbyrgi (sr. Knútur Arngrímsson), Æskulýður nútímans og lífsskoðun Jesú Krists (sr. Öskar Þorláksson), Ecclesia orans (sr. Jón Auðuns), Tryggingar (sr. Ingimar Jónsson), Mælir Kristur gegn gleðinni (sr. Gunnai- Árnason), Veldur trú- in geðveiki? Trúarhæfileiki manna, Heili og sál, Langvinn sálsýki frá sjónarmiði trúarinnar, ’ allt eftir dr. med. Schou. Ennfremur 3 sálmar, 4 sálmalög' o. fl. Af öllu þessu má sitthvað læra, þótt ritstj. Bjarma sje því ekki öllu samþykk- ur; en ekki er rúm til að ræða það í þetta sinn. En benda má á, að greinarnar þýddu, eftir danska lækninn Schou, eru ágætar, og flytja um leið alveg- nýtt efni í ísl. trúmálahugleiðingum, eins og fyrirsagn- irnar benda til. Eftirtektarverð eru ummæli sr. Knúts Arngrímssonar um kirkjuræður og' kirkju- sókn. En hann hefir, eins og kunnugt er, slept prestsembætti á Húsavík og er orð- inn kennari í Rvík. Sr. Kn. A. skrifar svo, á bls. 131: »Lofgjörð kristinna manna er í litlum metum hjá miklum fjölda manna. Þess eru næsta mörg dæmi, að menn sýni kirkju sinni enga rækt, nema þar sje á boðstól- um eitthvað, sem ekki er trúarlegs eðlis. Prjedikanirnar í guðsþjónustum kirkn- anna, sem frá sjónarmiði trúhneigðra manna eru aðeins ein grein guðsþjónust- unnar, hafa færst í þá átt, að vera aðal- atriði hennar í meðvitund margra. En af því hefii' leitt, að þátttakan í lofgjörð og bæn kemur ekki til greina hjá miklum þorra kirkjufólks. Og' jafnhliða hinni ó- eðlilegui áherslu, sem lögð er á prjedikan-

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.