Bjarmi - 15.10.1932, Page 8
160
BJARMI
þessi, bnk að vekja þá spurningu: Hvað mundi
Kristur segja við.mig, ef hann œtti tal við mig
í dag?'< Hvorttveggja er holt íhugunarrfni.
Tíinimt flytur 8. ]>. m. skammagrein alveg til-
efnislaust í minn garð, merkta x, en auðsjáan-
lega komna úr sömu »verksmiðjunni og noldrið
og ónotin, sem Tíminn hefir flutt við og við
í garð >Ashjónanna« síðan um síðasta landkjör.
Þessari grein býst jeg við að svara í Morg-
unblaðinu, en bendi lesendum Bjarma á aðal-
ósannindin í henni.
1. Þótt jeg og margir með. mjer sjái ^veldi
satans« í andastefnu þeirri, er smíðar níð og
tilefnislausar skammagreinar, þá er hitt ósatt,
eins og lesendur Bjarma vita, að »kjarni« trú-
málastefnu minnar sje »eilíf útskúfun« og »til-
bærilegar lýsingar á kvalastaðnum.«
2. Þaö er ósatt, að »danskir heimatrúboðs-
menn leggi mjer fje, fram á þenna dag.« Þeir
hættu því árið 1929.
3. Það er ósannanleg ágiskun, »að enginn söfn-
uður hafi viljað mig fyrir prest,« enda þótt
jeg hafi þrisvar orðið i minni hluta viö prests-
kosningar, þvi að oftar hefi jeg ekki verið í
kjöri við þær kosningar.
Jeg taldi það skyldu, mína, að bjóðast til að
verða prestur, en varð feginn, er því var hafnað,
sá betur og betur, að áhrif af störfum mín-
um yrðu meiri, ef jeg væri óháður leikmaður.
4. Það er ósatt, að jeg sje eða hafi verið »kosn-
ingasmali íhaldsins,« eða nokkurs stjórnmála-
flokks.
5. Það er ósatt, að heimatrúboðið hafi átt
nokkurn þátt í því, beinlínis eða óbeinlínis, að
sr. Knútur Arngrímsson sagði lausu Húsavíkur-
brauði og fluttist hingað suður. Allt sem Tíma-
greinin segir um það efni er ranghermi.
Húsvíkingar tóku okkur sr. Oktavíus Thor-
lákssyni ágætlega í fyrra sumar, er við töluð-
um þar í kirkjunni, og sama er að segja um
fyrsta »heimatrúboðsprestinn«, sem þangað kom
nýverið að minni tilhlutun. Sr. Sigurður Þor-
steinsson hjelt þar einar 3 samkomur og ljet
hið besta yfir viðtökunum.
>Sr. Slgurðui' Þorstelnsson er nýkominn til
Reykjavíkur úr nál. tveggja mánaða ferðalagi
á vegum Kristniboðssambandsins. Fór hann
fyrst um Vestfirði alla frá Bíldudal til ísa-
fjarðar. Var á prestafundinum í Bolungarvik.
- För frá ísafirði um Arngerðareyri til Hólma-
víkur, þaðan til Hvammstanga og Blönduóss.
Var þar á hjeraðsíundi. — Frá Blönduós fór
hann um Sauðárkrók að Hóluni í Hjaltadal og
þaöan um Hofsós, Barð, Haganesvík, Siglufjörð,
Daívík og' Hrísey til Akureyrar. Var nokkia d. ga
á Akureyri, fór til Húsavtkur og svo til baka
landveg suður, —- og hefii síðan farið til Grinda-
víkur og Keflavíkur o. v. hjer I grendinni.
Flesta sunnudaga hefir hann tvisvar messað
og.haldið auk þess 2 til 4 samkomur í fiestum
kauptúnuin, ]iar sem hann kom.
Prestar og márgir aðrir tóku honum prýði-
lega. Fluttu ýmsir pi-estar hann á hestum yfir
fjöll eös aðra langa vegu, sluðluðu að því, að
safnaðarfólk sa;kti samkomurnar og að förin
yiði yfirieitt hin besta.
Þökk sje þeim fyrir það frá öllum oss, sem
að baki stóðu, til stuðnings fyrsta feiðaprest-
inum, sem kristniboðsfjelögin ísl. .hafa sent í
heimatrúboösför.
Dngskrá sókiinriiefiidaíuiHlarins frá þvl sem
ráðgjört var í septemberblaðinu, og er nú orðin
á þessa leið:
Mánud. 17. október:
Kl. 2 e. h.: Guðsþjónusta í fríkirkjunni. Sr.
Garðar Þorsteinsson þjónar fyrir altari,
en sr. Eiríkur Brynjólfsson prjedikar.
4: Fundur settur í húsi K.F.U.M.
5- 7: Trúmálahorfur (S. A. Gíslason).
- 8j/2 : Sr. Siguröur Þorsteinsson, frá Bjark-
ey, flytur erindi í fríkirkjunni um æsku-
lýðsstarfsemi f Noregi.
Þriðjud. 18. október:
Kl. 9'4 árd.: Morgunbrenir.
- 10 —12: Starfið meðal sjómanna (Jóh. Sig-
urðsson.
3- 5 siðd.: Helgidagamálið (sr. Ingimar
Jónsson).
5 6 síðd.: Um altarisgöngur (sr. Bjarni
Jónsson).
6: Gengið til altaris.
8‘4: Erindi í frikirkjunni (sr. Bjarni
Jónsson).
Miðvikud. 19. október:
Kl. 9)4: Morgunbænir.
10 12: Kristniboð (sr. Sig. Þorsteinss.).
3 -6: Kristindómsfrœðslan (skólastjóri
Freysteinn Gunnarsson).
- 6 7: Önnur mál.
8: Kveðjusamsæti í húsi K.F.U.M.
Væntanlega fjölmenna kristindómsvinir i
Reykjavík. Málefnin eru mörg og stór og aldrei
fremur ilstœða en nú, til að tak höndum saman
um þau.
Útgefandi: S. Á. Gislason.
Prentsmiðja Jóns Helgasonar.