Bjarmi - 15.07.1933, Side 3
BJARMI
107
hádeg'i: Samband ytra og innra tríiboðs
(Steingr. Bened.) og Framtiðarstarfiö
(S. Á. G.) Urðu miklar umræður um bæði
erindin og hjeldu þær áfram eftir kl. 2.
Sýndu þær áhuga og samhug um að gjöra
allt, sem unnt væri til að efla vöxt Guðs-
ríkis, bæði heima og heiman.
Sr. Fr. Friðriksson, framkvæmdastjóri
K. F. U. M., kom um þetta leyti á fundinn,
þá nýkominn frá Danmörku, sagði hann
ýmsar frjettir og flutti kveðjur.
Lýst var framkomnum tillögum, og
síðan setst að kaffidrykkju. Voru þá marg-
ar ræður fluttar og mikið sungið.
Stjórnarkosning fór fram á eftir. Gengu
4 úr stjórn, og þessi kosin í þeirra stað:
Valgeir Skagfjörð kand. theol. (14), Hró-
bjartur Árnason kaupm. (11), Sigurjón
-Jónsson bóksali (11), allir í Reykjavík,
. og frú Helga Þorkelsdóttir, Hafnarfirði
(8), en í varastjórn sr. Sigurjón Árnason,
Vestm.eyjum, og frú Gíslína Friðriksdóttir,
Akureyri. — Kyrr sátu í aðalstjórn: Frk.
Halldóra Einarsdóttir, Hafnarfirði, frú
Rokstað, Bjarmalandi og Sigurbjörn Á.
Gíslason, og í varastjórn: Frú Bentína
Hallgrímsson, Reykjavík.
Þá voru ræddar tillögur og samþykktar
á þessa leið:
1. Sambandsþing Kristniboðsfjelaga l,s-
lands samþykkir að skora á fulltrúa sína
og- fjelaga í sambandinu að beita sjer af
alefli fyrir því, að trúað fólk bæði i kaup-
stöðum og sveitum landsins sameinist um
að útbreiða og styrkja þann kristilega
blaða- og bókakost, sem við þegar eigum
í landinu innan kii'kjunnar.
2. Sambandsþing Kristniboðsfjelaga Is-
lands telur nauðsynlegt, að stjórn sam-
bandsins gjöri allt sem unnt er til að halda
uppi sem tíðastri og reglubundnastri
ferðapredikunarstarfsemi í samvinnu vió
fjelögin, hvert á sínum stað.
3. Sambandsþing Kristniboðsfjelaga Is-
lands samþykkir að fela fulltrúum sínum
að gangast fyrir því, hver heima í sínu
fjelagi, að safnað verði undirskriftum
undir áskorun til Útvarpsráðs um að það
taki inn á dagskrá sína sem fastan lið
biblíufyrirlestra, sem stjórn sambands ís-
lenskra kristniboðsfjelaga sjái um. Til
þessa sje ætluð ein kl.st. á ákveðnum
degi á hálfs mánaðar fresti.
4. Sambandsþingið felur stjórn sinni
að semja við eiganda blaðsins »Bjarmi«
um fast og ákveðið rúm í blaðinu fyrir
áhugamál sambandsins og kristniboðsmál-
in yfirleitt.
Þinginu var slitið kl. 6 síðd. Um kvöldið
var sameiginleg altarisganga í dómkirkj-
unni.
Óhætt mun að segja, að eindrægni og
áhugi hafi haldist í hendur til að gjöra
þessa þingdaga veruleg'a ánægjulega.
------------
Barnasamkomur.
Síðustu árin fjölgar þeim hjerlendis,
sem langar til að hefja kristileg't starf
meðal barnanna. Þeim blöskrar hvað marg-
ar guðleysis- og spillingarraddir berast
til þeirra. En hvernig á maður að
byrja? Hver eru aðalskilyrðin til þess, að
jeg geti haldið kristilegar samkomur eða
sunnudagaskóla fyrir börn? spyrja þeir
oft.
Aðalskilyrðið er, að þú getir sagt börn-
unum frá kærleika Iírists af eigin reynslu
og sjert viss um að Drottinn vilji að þú
byrjir á slíku starfi, — og um það verður
þú að eiga við Guð og' samvisku þína í
einrúmi.
Næsta skilyrðið er, aö þú hafir lag á
að umgangast börn og þyki vænt um þau.
1 þriðja lagi útvegar þú þjer bækur og
blöð, með kristilegum smásögum, til að
hafa nóg að segja frá, og leitar frekari
leiðbeininga, munnlega eða brjeflega, hjá