Bjarmi - 15.07.1933, Page 4
108
BJARMI
þeim, sem meiri starfsreynslu eiga í þess-
um efnum.
I 4. lagi leitar þú fyrir þjer um sam-
vinnu eða aðstoð. Ef þú ert ósöngvinn,
þarftu að fá einhvern þar til hjálpar.
Söngur er lífsskilyrði í þessu starfi.
I 5. lagi er að fá sjer hentugt húsnæði.
Mun það oftast auðsótt, því að flestum
foreldrum þykir vænt um að börnunum
sje leiðbeint til Frelsarans. Víða er hægt
að fá kirkju eða eitthvert fundarhús ó-
keypis, ef vel er byrjað.
Svo er að byrja, 1 Jesú nafni, fullviss
þess, að hann sje með í verki. —
— En börnin sjálf, hvað segja þau um
þetta? Munduð þið ekki vilja koma þang-
að, sem ykkur væri sagt frá Jesú og ýms-
um lærisveinum hans, ungum og gömlum,
fyr og síðar, og þar sem þið lærðuð að
syngja fagra barnasálma? — Jeg vona,
að þið játið því og viljið vera í stóra hópn-
um, sem safnast saman hvern helgan dag
í öllum löndum, til að syngja Guði lof-
söngva.
Væri það ekki heillaráð, að prestar
helguðu börnunum alveg sjerstaklega ein-
hvern messudag í haust, áður en illviðrin
loka þau inni, — og hjeldu fund á eftir
messu með alvörugefnum foreldrum og
trúuðu fólki, ef nokkuð fyrirfinnst af því
í sókninni, til að ræða um hvað g'jöra má
fyrir börnin í þessum efnum?
Lesendur eru beðnir að athuga þetta og
tala um það við þá, sem þeir treysta til
kristilegs samstarfs. S. G.
— — Þar eð ætla má, að allverulegur hópur
söngmanna og ræðumanna fari landveg norður
til trúboðsþingsins á Akureyri næsta vor, líkl. um
miðjan júní, — þá væri æskilegt, að prestar og
aðrir vinir starfsins nálægt þeim þjóðvegi, gjöri
í tlma ráðstafanir til að hagnýta sem best þá
gestakomu til fundarhalda, og láti ritstjóra
Bjarma vita um óskir sínar í því efni komandi
vetur. S. ú,
K, B. F.
Allir munu vera sammála um það, að
nauðsyn beri til að gjöra eitthvað til að
stemma stigu fyrir því flóði af óþverra-
bókmenntum, sem flætt hefir yfir land
vort nú síðustu árin. Vjer getum ekki
treyst því opinbera, því að reynslan sýnir,
að þing og stjórn verðlapnar þá menn meo
mörgum þúsundum króna árlega, sem hafa
verið fremstir í flokki að byrla þetta þjóð-
fjelagseitur. Og ekki er hætt við, að því
opinbera blöskri, eða að það taki í taum-
ana, þótt guðlasti og svívirðingum um hin
helgustu mál trúaðra manna sje dreift út.
Blöð og bækur guðlastaranna eru ekki
gjörðar upptækar, nema þá því aðeins, að í
þeim sjeu pólitísk meiðyrði. Þá þykir á-
stæða til að skerpa eftirlitið.
Vegna þess, að ástandið meðal þjóðar
vorrar er þannig, þá verða þeir, sem sjá
alvöru þessa máls, að standa fast saman
um þá viðleitni, sem gjörð er til að vinna
á móti þessu.
K. B. F. merkir: Kristilegt bókmennta-
fjelag. Það var stofnað 16. febrúar 1932,
og komu fyrstu ársbækur þess út í nóvem-
ber s.l. Ársbækur þessa árs koma innan
skamms. Það er tilgangur fjelagsins að
vinna kristni lands vors gagn, með því að
gefa út góðar, kristilegar bækur.
En því markmiði verður því aðeins náð,
að allir, sem skilja nauðsyn málsins, sam-
einist undir merki fjelagsins. Árgjaldið er
aðeins tíu krónur, og fyrir þá peninga fá
menn ársbækur fjelagsins, auk þess, að
þeir hafa þá um leið styrkt nauðsynlegt
málefni.
Á aðalfundi fjelagsins í sumar var á-
kveðið, að nýir meðlimir skyldu fá síðustu
ársbækur fyrir hálfvirði — aðeins fimrn
krónur. Utanáskrift fjelagsins er: Kristi-
legt bókmenntafjelag, Pósthólf 12, Reykja-
vík.
Ef þú heíir komið auga á þá hættn,