Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.01.1935, Side 10

Bjarmi - 01.01.1935, Side 10
8 BJARMI til upprætingar sið'menningn og trú. Hvar er valdið voldugt Alþingis, sem var á lýðræðisins tímum blys á vegum fólks — til frelsis einstaklings og frægðarverka og dóma’ og lagahrings? Er Sturlunga aldar andinn apturgenginn með inndrátt þings að taka í feigðar strenginn? Sjest enn ei upp við höggvið hlaupa jarlinn að höggva niðingslega Sturlu fallinn? Að örlygsstaði’ er orðinn þingsins salur, að entum fundi, skyldi þar ei valur! Er gengið kirkju gleymt í fornum stólum? Er Guðbrandur í elli sinni á Hólum 1 hrumleikskör? Hann veit ei verið brenna! Hann vöku ei megnar! Liðsmennirnir renna, og Líkaböng er brostin, — má ei óma, þótt boðið sé um altarið til dóma! Við sjálfan himin hiti leikur hár, sem heiður eitt sinn var og sumarblár af mildi Guðs og miskunn yfir landi, þá máttugur að spám var þjóðarandi, þá kíf var ekki um kennimanna byrði, þá kirkja var í hverjum dal og firði, sem átti að vera, — og á við þjóðarháttu, menn unna Drottins húsi og þjóni hans knátta. Nú árs og friðar óska eg þér af hyggð og öllum þínum, — fólki voru og byggð. h. S., Chicago. ------*:* *:♦ ---- Fórn Eftir Ola Berg ritstjóra. Það var ekki marg't fólkið í Ytri-Vík; örfáir bæir lágu á víð og dreif urn víkina, lágreistii- en þokkalegir; það voru heimili fiskimannanna, kvenna þeirra og barna. Fiskurinn var lífsbjörgin í Ytri-Vík, því að iandkostir voru þar ekki. Hringinn í kringum víkina, alveg fram í sjó, gekk óslitið hamrabeltið, öllum öðrurn ófært en fuglinum fljúgandi. Aðeins á einum staö varð komist yfir það, gegnum Skarðið svo kallaða, til næstu byggðar, Innri-Víkur. En Skarðið var oft illt yfirferðar. Á veturna, þegar snjóbyljir og' frosthörkur höfðu hlaðið þar hverjum snjóskaflinum og svellbunkanum á fætur öðrum, var það því nær ófært og lífsháski búinn þar hverjum vegfaranda, eins og menn vissu af dýr- keyptri reynslu. Það var sjórinn, sem veitti íbúum Ytri- Víkur lífs-viðurværið; þótt oft væri erfitt að ná því, sjerstaklega þegar vindur stóð á landrþá var ill-mögulegt að setja út bát í Ytri-Vik. Þannig gat náttúran, þegar henni datt í hug, einangrað fólkið í Ytri- Vík algjörlega, innilukt það milli kald- ranalegra, brattra fjalla og' hvít-bi-ysts sjávar. En fólkið undi mæta-vel við lífskjör sín. Erfiðleikar gleymdust furðu fljótt, og liðn- ar mannraunir urðu oft áhrifamikið um- talsefni. Þegar vel úr þeim rættist, vildu menn ekki missa af þeim. Þegar sjórinn lá spegilsljettur á vorin og sumrum og í glampandi sólskini, svo langt sem augað eygði, fannst þeim Ytri-Víkin sín hljóta að yera besti staður undir sólinni. Ein hjónin í Ytri-Vík hjetu Eberg og Edvarda. Þau höfðu eignast fjóra sonu, en þrjá þeirra liafði sjórinn tekið, svo nú var aðeins sá yngsti eftir. Ilann hjet Árni. Þeir höfðu, bræðurnir þrír, róið til fiskjar haustdag nokkurn. IJr þeim róðri hafði enginn þeirra komið. Veðrið hafði verið sæmilegt, svo eitthvað hlaut að hafa komið fyrir; það var haldið, að þeir hefðu í koldimmu haustkveldsins villst og siglt á sker, og beint í dauðann. Hvorki bát- inn nje líkin höfðu rekið. Hafið er djúp gröf, og kærir sig' ekki ætíð um að^skila ránsfeng sínum. Þau hjónin voru lengi að ná sjer eftir þetta þunga áfall og blóðtöku. Þeim fannst sem hrifsað hefði verið út úr höndum sjer og hjörtum allt hið dýrmætasta, sem þau höfðu átt; þeim fannst eins og lífið væri þeim óbærilegt og einskis nýtt. En í sorg sinni og söknuði sneru þau sjer til Guðs og fengu hjá honum traust og trú á lífið aftur, og' í bæn og trúarvissu fengu þau kraft til að sigrast á sorginni. Líf þeirra varð eftir það allt annað, nýtt og fullkomn- ara en áður.

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.