Bjarmi - 15.02.1935, Page 2
26
BJARMI
landsins — gefið Gandhi þá alla til starfs-
ins fyrir Indland. En hún var í fallegum
Sarí. Ljósgrænn litur fór vel við dökka
andlitið og tindrandi, gáfuleg augu, sem
ljómuðu af áhuga og einbeittni, er hún
minntist á Indland og Gandhi.
Þetta var nú ofurlítill útúrdúr frá um-
talsefninu, og kem jeg nú að því aftur.
Sumstaðar, þar sem hinir stóru kvenna-
hópar komu saman, eru töluð mismunandi
tungumál eða roállýskur, en það veldur
engri truflun í heimi bænarinnar. Þar er
Guð ákallaður á ýmsum tungum, en faðir-
inn á himnum skilur bænaandvörp barna
sinna, hvar og hvenær sem er, og á hvaða
máli sem þau eru borin fram, og hann
endurgeldur þau með ríkulegri blessun
í sameiningu andlegs friðar og eindrægni.
Slíkum sambænarstundum er erfitt að
gleyma, þar sem fjöldi manna sameinar
ákall sitt við hástól hins ósýnilega Drott-
ins himnanna.
Víðsvegar hjer í álfu safnast konur til
bæna fyrsta föstudag í 7 vikna föstu.
Sumstaðar er dagsins minnst með morg-
unguðsþjónustu, sem er útvarpað á mörg-
um stöðum, til þess að gcfa sem flestum
kost á að fylgjast með bænadegi kvenn-
anna.
Bænadagurinn hefir alstaðar sama texc-
ann og sama bænaefnið.
I ár er textinn í 5. bók Móse 4. kap.,
þar sem svo segir: »Því að hvaða stórþjóð
er til, sem hafi guð, er henni sje eins ná-
lægur cins og Drottinn Guð vor er oss,
hvenær sem vjer áköllum hann.«
Ennfremur í Galatabrjefinu í 6. kap.:
»Berið hver annars byrðar og uppfyllið
þannig lögmál Krists.«
Bænaefni dagsins er þetta:
1) Bæn um næman skilning á andleg-
um efnum, og hvað það merkir að vera
útskúfaður af heiminum.
2) Bæn um hugrekki til þess að gera
rjettan mismun á rjettu og röngu.
3) Bæn um rjettlátt hugarfar og rjett-
láta breytni við alla menn.
4) Bæn um innbyrðis samúð og skiln-
ing.
5) Bæn um fórnarlurid.
Bænadagur kvenna er að þessu sinni
þ. 8. mars n. k.
Munu þá kristnar konur um gjörvöll
lönd ganga saman til bæna, í hinum ýmsu
söfnuðum og kirkjudeildum. Sömu kaflar
verða lesnir úr Ritningunni, sanra bæna-
efnið borið fram, íklætt ólíkum orðum og
tungum. Um heim allan sameinast hugir
kvenna í bæn.
Einnig vor á meðal hefir verið hugsað
fyrir sambæn kvenna þennan dag, til þess
að íslenskum konum gefist þess kostur aö
ganga í sambænarhringinn og tengjast
helgum böndum bænarinnar ásamt fjöl-
mennum hóp kristinna kvenna víða um
lönd.
Kristniboðsfjelag kvenna í Reykjavík
gengst fyrir almennri bænasamkomu
kvenna þ. 8. mars n. k.; er þangað hjart-
anlega velkomin sérhver kona, sem viður-
kennir kraft og blessun bænarinnar, og
þráir hjálp frá Drottni.
Guð gefi að þessi fyrsti bænadagur
kvenna á Islandi megi færa oss.blessunar-
daggir af hæðum, Guðs börnum til endur-
lífgunar og andlegrar hressingar í logn-
mollu trúardeyfðai'innar. Guð gefi, að hann
verði íslenskum konum hvöt til sambæna,
eins og hann hefir orðið kristnum konum
annarstaðar í heiminum.
Guðrún Lárusdóttir.
-----<• ♦> ->■--
Mót ((‘1,1)111' njal'li': Til Elliheimilisins 15 kr. frá
sra ó. Vigfússyni Fellsmúla, til kristniboðs: 15
kr. frá sama. Skagfirsk kona 20 kr. í jólakveðju-
sjóð 5 kr. frá systrum i Vigur«. í síðasta blaði
var röng tala í þeirri kvittun.