Bjarmi - 15.02.1935, Side 8
32
BJARMI
hjer afveg' með rjett mál. — Mun hróður
Islendiniía síst vaxa, 'þegar þessi saga
Laxness kemst á erlend tungumál, þótt
rauóliðar út um heim hrósi H. K. L. fyrir
slíkar lýsingar á löndum hans.
(Sbr. Samtíðin 8. h. 1934 bls. 27).
-------------
Ný bók.
Fr. Friðriksson: Föstu-
rœður. — Bókaverslun
Jóns Helgasonar. tOSí.
Þessi litla bók lætur ekki mikið yfir
sjer, en þó má óhikað telja hana með
allra hestu bókum, kristilegs efnis, sem
út hafa komið á síðari árum hér á landi.
Þetta eru sjö fösturæður, sem höf. flutti
í dómkirkjunni árið 1930, og vöktu þær þá
mikla athygli, enda er það að vonum, því
að hjer er um alveg óvenjulegar prjedik-
anir að ræða. Hjer er sannleikurinn sagð-
ur afdráttarlaust, hver sem í hlut á, hvort
sem það eru þjónar kirkjunnar eða of-
sækjendur, háir eða lágir. Hvergi er sleg-
ið aftur af kröfum kristindómsins, og líf-
ið og mennirnir eru skoðaðir í Ijósi kross-
ins, þar sem eilíf alvara og ábyrgð lífs-
ins kemur skýrast fram. Dómur krossins
yfir mönnunum er boðaður hiklaust. Og
þó án þess, að dregið sje úr fagnaðarboð-
skapnum um kraft krossins til hjálpræðis,
enda fer þetta tvent ávalt saman í sönn-
urn boðskap kristindómsins.
Hvergi er það köld dómsýki, sem ræð-
ur orðum höf., er hann lýsir hinu alvar-
lega ástandi kirkjunnar og þjóðlífsins.
Það er kærleikur, sem stendur að baki
orðum hans, -— kærleikurinn til sannleik-
ans. Að vera sannleikanum trúr í kær-
leika, er ekki auðvelt, en það hefir sr.
Friðrik tekist. Þess vegna er mýktin og'
mildin svo mikil í hinum alvarlega boð-
skap hans.
Búningurinn er með afbrigðum góður,
í fullu samræmi við tign og' alvöru efnis-
ins, enda er það vitanlegt, að höf. er snill-
ingur bæði á bundið mál og óbundið.
Kirkjan og kristni landsins er með
þessari bók orðin einum dýrgrip ríkari, og
ætti það að vera mikið þakkarefni öllum
kristnum mönnum, ekki síst á þessum tím-
um andlegs tómleika og niðurrifs.
Valgeir Skagfjörð.
Hvaðanæva.
»Atliafliaineilii í prestsstöðu eru svo fáir, að
það má að skaðlausu þurka út helmíng prests-
embætta« er viðkvæði vantrúarmanna. Og því
miður eru margir athafnalitlir menn i prests-
stöðu hjerlendis, - - þótt það sanni allt annað en
að þess vegna sje æskilegt að prestaköll þeirra
vanrækt ef til vill langa hrið og skulu helst bæt-
ast sem fyrst við verkahring einhverra presta
dagleið í burtu 3 4 hluta árs.
En þvi fremur ber að benda á það sem vel
er gert, athafnir duglegra presta. í janúarbl.
Bjarma voru taldar upp 12 hátiðamessur í ísa-
fjarðarprestakalli. Síðan hefur blaðinu borist
messuskýrsla úr útskálaprestakalli. Par hefir sra
Eríkur Brynjólfsson flutt 13 guðsþjónustur um
jól og nýár s. 1. sem hjer segir: Geri aðrir
eins vel eða betur, og leyfi Bjarma að skýra frá
því:
Aðfangadagskvöld kl. 6% á útskálum.
» - 9 i Keflavík.
Jóladag — 1 á Hvalsnesi.
» 5 í Keflavík.
2 Jóladag — 1 á Útskálum.
» — 5 í Sandgeröi (Barnaskólanum).
» 8 á Hvalsnesi (Barnaguðsþjón- usta við jólatré).
Sd. milli jóla og nýjárs - 1 ' á útskál. (Bgþj.).
—» 5 i Sandg. (Bgþj.).
Gamlárskvöld - 6% á útskálum.
— 9 Keflavík
Nýársdag — 1 á útskálum.
— 5 í Keflavík.
Itltstjóri: S. A. Gíslason.
Brentsmiðja Jóns Helgasoncu.