Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.11.1935, Blaðsíða 1

Bjarmi - 01.11.1935, Blaðsíða 1
Mir presta oi sótoiieMa. Þess var getið í síðasta blaði að hinn almenni fundur presta og sóknarnefnda mundi enginn verða þetta haust, af þeim ástæðum, sem þar voru, taldar. Litlu síðar, 23.. okt., átti undirbúnings- nefndin fund um, málið. Frú G-uðrún Ein- arsdóttir Hafnarfirði, Ölafur Björnsson kaupm. Akranesi, Sig'hvatur Brynjólfsson tollþjónn, Sigurbjörn Á. Gíslason, Sigurbj. Þorkelsson kaupm., Sigurður Halldórsson trjesmíðameistari og præp. hon. sr. Þórður ölafsson, allir 5 úr Reykjavík. Tveir nefnd- armenn voru fjarverandi: Þessir sjö fyrtöldu urðu sammála um að ekki væri rjett, að svo komnu að leggja þessa fundi alveg niður, minnsta kcsti yrði fyrst að sjá hvernig fjórðungsfundirnir takast, sem ráðgjört er að halda á vorin annaðhvort ár. Var ákveðið að boða næsta. sóknar- nefnda og prestafund í Reykjavík í febr. n. k. — eithvað nálægt þingbyrjun, og að- almál hans skyldu, vera »innri málin« og sjerstaklega reynt að fá menn til að ræða um bænina, sakramentin og lestur guðs- orðs. Jafnframt var þó talið æskilegt aö talað yrði um hvort fært þætti að stofna kristilegt útvarpsnotendafjelag, og ef til vill fleiri »ytri mál«, ef afgreiðsla kirkju- mála á Alþingi færi í öfuga. átt við óskir fundamanna. Talað var um að semja dagskrá fund- arins í janúar n. k. þegar menn vissu bet- ur um málshefjendur og áætlanir skipa. Fyrsti almenni sóknarfundurinn var haldinn 4. og 5. nóv,. árið 1925. Sóknar- nefnd dómkirkjusafnaðarins í Rvík átti frum atkvæði að þeim fundi og sóttu hann 14 menn prestsvígðir og 49 sóknarnefnda menn og safnaðarfulltrúar úr hverri sókn Kjalarnesprófastsd. og þrem öðrum sókn- um — Arnarbælis, Akranes og Vestmanna- eyja. — Og auk þess fjöldi »gesta« úr Reykjavík. Fundirnir 9, sem síðan hafa verið háldn- irð hafa flestir verið betur sóttir. Árið 1928 t.. d. voru fulltrúar 70, prestar og pró- fastar 24, uppg’jafaprestar 8, guðfræðis- stúdentar 20 o. s. frv. Segir fundarskrifari að á þeim fundi hafi ræðumenn verið um 40 og ræður lluttar um 100. Á fundum þessum hafa verið flutt um 60 erindi af yfir 30 ræðumönnum, og nærri helmingur þeirra. leikmenn — svo það er ógnar fjarri sanni að kenna þá við nokkra »klíku«. Talsvert öldurót hafa þeir oft vakið, enda hafa þar mætst ólíkar trúarstefnur oft og einatt; en óhætt hygg jeg að full-

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.