Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 21.10.1952, Síða 1

Bjarmi - 21.10.1952, Síða 1
14.—15. tbl Reykjavík, 21. október 1952 46. árgangur Ákvöröun Hátt á annað hundrað ís- lenzkir kristniboðsvinir hitt- ust i Vatnaskógi dagana 23.— 2h. ágúst síðastliðinn, er auka- þing Sambands íslenzkra Icristniboðsfélaga var haldið þar. Hér skal engin tilraun gerð til þess að lýsa samveru þessari og störfum þingsins nákvæmlega. Það yrði of langt mál. Hitt er óhætt að fullyrða, að samveran einkenndist af eftirvæntingu, gleði og trausti til Drottins. Oss, sem þar vor- um samankomin, var það fylli- lega tjóst, að vér áttum að taka ákvarðanir í málum, sem mannlega séð eru ofviða hin- um litlu félaffssamtökum vor- um. Hitt var oss ekki síður Ijóst, að svo framarlega sem vér getum treyst vísbending- um og handleiðslu þess Drott- ins, sem vér viljum vinna fyr- ir, þá urðum vér að taka á- kvarðanir, krefjast meiri fórna og meiri trúar af oss á kom- andi dögum. Starfssvæði vor í Kína eru lokuð. Það er fyrsta staðreynd- in, sem vér stóðum gagnvart. Hin önnur spurning var þá sú, hvort vér eigum að leggja liendur í skaut og hugsa ekki til frekara kristniboðsstarfs. Svar vort getur ekki verið nema á einn veg: Vér getum ekki annað en unnið að kristniboði meðan vér trúum orðum Drottins Jesú Krists, og viljum hlýðnast þeim vilja hans, að fagnaðarerindið skuli boðað öllum þjóðum. Hin þriðja staðreynd, sem vér stóðum gagnvart, var það, að oss hafa borizt tilmæli um það að hefja kristniboðsstarf meðal Konsoþjóðflokksins í Etíópíu. Það fór ekki hjá því, að ein- \kennileg titfinning gpipi oss mörg, er vér stóðum gagnvart slíkri spurningu utan úr heið- ingjaheiminum. Viljið þér koma? „Komið fljótt og hjálp- kristnihoðsþingsins ið oss!“ Þannig voru skilaboð- in, sem vér fengum í fyrsta bréfi, sem oss barst frá Konsó. Hvernig gátum vér svarað þeirri spurningu? Var nokkurt val fyrir oss, sem lærisveina Drottins Jesú? Urðum vér ekki að segja já? Víst var svo. Vér gátum ekki svarað þess- um fyrstu, beinu tilmælum ut- an úr heiðingjaheiminum með bláköldu nei. Sambandsstjórnin lagði eft- irfarandi tillögu fyrir þingið: „Aukaþing Sambands ís- lenzkra kristniboðsfélaga hald- ið í Vatnaskógi 23.—24. ágúst 1952 samþykkir: 1. Að gefa stjórn Sambands- ins heimild til þess að verða við tilmælum, sem Samband- inu hafa borizt frá NLM um að hefja kristniboð meðal Konsó- þjóðflokksins í Etíópíu. 2. Með tilliti til þessa sam- þykkir þingið ,að heimilt skuli vera að nota fé það, sem nú er í Kristniboðsstöðvarsjáði til þess að reisa kristniboðsstöð í Bakaule, eða öðrum þeim stað í Konsó, sem hentugri kann að þykja að kunnugra manna ráði.“ Það var hátíðleg stund fyrir kristniboðsvini, er fulltrúarn- ir greiddu hver á fætur öðrum atkvæði sitt, og guldu tillög- unni já sitt hátt og ákveðið, að viðhöfðu nafnakalli. Var þar með réttileya samþykkt, samkvæmt lögum sambands- ins, að íslenzkir kristniboðs- vinir snúi sér að kristniboðs- starfi í Konsó eftir því, sem Guð gefur náð til. Að lokinni atkvæðagreiðslu fulltrúanna var leitað álits og atkvæða allra viðstaddra kristniboðsvina varðandi það, hvort þeir fyrir sitt leyti væru samþykkir þessari ákvörðun. Það var uppörvandi og hríf- andi sjón að sjá allar hendur réttar upp í einni svipan og svo jafnt, að engu var líkara en þaulæfður flokkur væri að verki. Síðan báðum vér um blessun Drottins yfir störf vor og ákvarðanir og framtíðar- starf íslenzkra kristniboðs- vina. Kristniboðsvinir sýndu hug sinn til starfsins með því að gefa í samskot í lok þessarar samkomu kr. 6115,37. Auk þess bárust kristniboðsstöðvarsjóði nokkrar gjafir. jSanibandsþinginu var stit- ið út við fánastöng, þar sem þjóðfáni Etíópíu var dreginn að hún, en þátttakendur sungu á meðan annað erindi úr söngnum „Jesú nafn um aldir alda.“ Síðan var hljóð bæn og að því loknu lýsti varaformað- ur sambandsins, síra Sigurjón í>. Árnason, drottinlegri bless- un. Lauk þar með störfum þessa aukaþings, sem tók svo mikilvæga ákvörðun varðandi íslenzkt kristniboðsstarf, að einstætt má teljast. Og nú reynir á trúfesti og trú yðar, íslenzkir kristniboðs- vinir, að þér séuð fúsir til þess að gjöra allt, sem þér frekast getið, til þess að vér getum staðið við þær skuldbindingar, sem vér höfum tekizt á hendur. Til þess hjálpi oss góður Guð af miskunn sinni. Koptisk kirkja í Etíópíu. SA atmvtv' Drottins kirkja stöðug stendur, þótt stormar geisi’ um jarðar lendur, á bjargi traustu byggð hún er. Guðsbörn engar hræðast hættur, þótt hamist fjenda stríðsóvættur og gegn þeim sæki heimsins her. Því Guð er vígi og vörn, hann verndar öll sín börn. Helgar hendur æ halda vörð um herrans hjörð svo hún er örugg hér á jörð. Dýrsta boðskap allra alda þú átt að flytja, kenna og halda, þú heilög kirkja Drottins dýr. Ljósið Guðs þú litið hefur, er lífi sanna blessun gefur, og í þér helgur andi býr. Þitt hlutverk hærra er en hugur manna sér. Lát því hljóma um lög og láð í lengd og bráð: „Guð býður frelsi, frið og náð“. Boðskapinn frá Guði góðum um gæzku’ og líkn hans heiðnum þjóðum þín skylda að flytja einnig er. Þokan svört í sæinn hnígur en sólin björt í heiðloft stígur og yfir mannheim birtu ber, þá Kristur orðinn er sá eini, er ríkir hér. Almenn kirkja í einni hjörð á allri jörð um helgan krossinn heldur vörð. Herrans kirkja er heilög móðir, og hún fær blessað allar þjóðir með líknarkrafti kærleikans. Sveit Guðsbarna sönn á jörðu, er sameinast í einni hjörðu und sigurtákni sannleikans. Lát lofsöng hljóma hátt um herrans náð og mátt. Hyll þinn konung það Kristur er, sem krossinn ber, og gaf sitt líf til lausnar þér. MAGNÚS GUÐMUNDSSON Ólafsvík.

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.