Bjarmi

Volume

Bjarmi - 21.10.1952, Page 4

Bjarmi - 21.10.1952, Page 4
4 B J A R M I Eg minnist þess RÆTT VIÐ INGÓLF Lesendum Bjarma er kunnugt, að Ingólfur Guðmundsson, kristni- boðsnemi, dvaldist úti í Osló síð- astliðinn vetur. Stundaði hann núm þar við Háskólann og við Safnaðarprestaskólann. Ingólfur mun dvelja hér heima nú i vetur og sækja tíma við Háskóla lslands og reyna að kynnast íslenzkum kristniboðsvinum, eftir því sem frekast er kostur fyrir hann. Fór hann út til Noregs án þess að hafa kynnzt nokkuð að ráði því kristi- legu starfi, sem hann hyggst taka þátt í í framtíðinni. Vonast hann til þess, að eftir komandi vetur muni bót hafa verið ráðin á þvi. I síðasta tbl. Bjarma birtist stutt kveðja til kristniboðsvina frá Ingólfi, og á öðrum stað í þessu tölublaði birtist grein eftir hann. Oss fannst því hlýða að rahba ör- lítið við hann um dvöl hans í Osló síðastliðinn vetur, svo að kristni- boðsvinir kynntust að nokkru því, sem hann kynntist, og kynntust honum þá einnig nokkuð um leið. Það er ekkert hik á honum, er rætt er við hann. Væri það alll ritað niður, yrði það nokkuð löng grein, því að hann hefir af miklu að taka. Vér höldum oss því við einn þátt þess, sem hann hefir frá að segja: — Hvaða starfi kynntist þú helzt í Noregi? — Ég kynntist fyrst og fremst Kristilega stúdentafélaginu, sem starfar á Biblíulegum grundvelli,. Ég tók mikinn þátt í starfi félags- ins í Osló. — Starfaðir þú þar sjálfur? — Það var ekki mikið. Þó tal- aði ég nokkrum sinnum. Mest var það svo, að ég var beðinn að flytja kveðjur frá Islandi, og nokkrum sinnum hafði ég hugleiðingu á fundum. — Kynntist þú félagsstarfsem- inni aðeins í Osló? — Nei, ég fór eitt sinn fyrir þá til Drammen og talaði þar á af- mælisfundi félagsins. Þar er að vísu ekki stúdentafélag, heldur fé- lag Menntaskólanema. Stúdenta- hreyfingin heitir, eins og mörgum mun kunnugt, Kristilegt félag stúdenta og menntaskólanema Noregs á Biblíulegum grundvelli. — Var þetta fjölmennt félag, sem þú heimsóttir í Drammen? — Nei, það var það ekki. Það voru eitthvað 40 menntaskólanem- ar á fundinum. — Hvað segir þú svo frekar um starfið meðal stúdentanna í Osló? — Það er í sífelldum vexti. — Fundir félagsins hafa aldrei verið jafn vel sóttir og síðastliðinn vet- ur. Almennir fundir eru annan hvern þriðjudag, og er þá venju- lega flutt kristilegt erindi eða jafn- vel prédikun. Á þessum fundum voru venjulega nálægt 400 stúd- entar. — Auk þessara almennu stúdentafunda er mikil smáhópa starfsemi í félaginu. Þá viku, sem almennu fundirnir eru ekki, koma þessir hópar saman í heimahúsum, venjulega heima hjá einhverjum stúdentanna. Flestir eru flokkarnir Biblíulestrarflokkar, en aulc þess er kristniboðsflokkur. I liverjum flokki munu vera um 14 þátttak- endur, en verið getur, að það sé nokkuð misjafnt. Flokkarnir eru mjög margir. — Hvernig var með þann hóp, sem þú tókst þátt í? — Ég kynntist eiginlega tveim- ur. Fyrst var ég með í krislniboðs- flokknum. Þá kynntum við okkur sérstaklega Japan og horfur kristniboðsins þar. Við höfðum sérstaka bók um Japan og kristni- boðið þar til þess að styðjast við, en síðan skiptumst við á um það að lesa aðrar bækur til þess að afla okkur frekari fróðleiks um efnið, og ræddum það síðan á samveru- stundum okkar. Hinn flokkurinn, sem ég tók þátt í, var Biblíulestr- arflokkur. Þar ræddum við einnig um efnið, er búið var að skýra kaflann. — Hvernig tekst félaginu að ná til nýrra stúdenta við Háskólann? — Auðvitað eru starfsmennirn- ir alrei ánægðir með það. Kjarninn í félaginu og á fundum þess eru stúdentar, sem unnizt hafa meðan þeir voru í Menntaskóla. Starf fé- lagsins verður þeim mikils virði, er þeir hefja háskólanám og á það ekki sízt við um þá, sem koma til Oslóar utan al' landinu. Alltaf bæt- ist þó í hópinn. — Hve marga fasta starfsmenn hefir félagið? — Þeir eru að minnsta kosli (i — auk þess eru tvær skrifstofu- stúlkur. Þá hefir félagið nú í haust eignazt nýtt félagsheimili, þar sem nokkrir stúdentar geta fengið leigð herbergi og eignazt „heimili“ i Osló. I húsinu er einnig samkomu- salur, sem félagið getur notað til smærri funda. — Kynntist þú ekki öðrum þátt- um starfsins en þessum vikulegum f undum ? — Jú, ég kynntist einnig nokk- uð mótum þeim, sem félagið efnir til. Um áramótin sjálf hittast full- trúar frá öllum félögunum víðs- vegar um landið, svo og sambands- stjórnin, og ræða málefni starfsins. Mér var boðið að taka þátt í þess- ari ráðstefnu um síðastliðin ára- mót og fannst mér það bæði fróð- legt og uppbyggilegt. Þar var hægt að fá yfirsýn yfir aðstöðu og hag starfsins, sem hvergi fæst annars staðar. Þá hefir félagið og páskamót uiu bænadagana og er það með svjp- uðu sniði og sumarmótin, nema hvað það er fámennara. Sumar- mótin og fyrirkomulag þeirra eru svo kunn hér, að ekki þarf að fjöl- yrða um það. — Hvernig féll þér andrúms- loftið i félaginu? — Prýðilega. Mér fannst fara vel saman alvara og gleði. Þá dáð- ist ég og að því, hve verið var vak- Það er nú orðin föst venja, að einhver söfnuðurinn í nágrenni Osló hýður nemendum og kennur- um Safnaðarprestaskólans heim á hverjum vetri. Síðastliðinn vetur fengum við tvö slík heimhoð, sitt hvort misserið. Fyrir jól þágum við boð safnað- arins í Ski, skammt frá Osló. — Lagt var af stað að morgni sunnu- dagsins og gengið í kirkju fyrir hádegi og söng stúdentakórinn okkar við guðsþjónustuna. Siðan fengum við hádegismat í safnaðar- húsinu, og bauð sóknarpresturinn okkur velkomin og kynnti fyrir okkur prestakallið og starf safn- aðanna. Var það fróðlegt og á- nægjulegt. Ánægjan var þó ekki óblandin, því að stundum verður manni hugsað heim á Frón og þá...... Það vakti mikla athygli hversu margir útlendingar voru með í förinni. Haustmisserið 1951 stunduðu 9 útlendingar nám við Safnaðar- prestaskólann, frá Danmörku, Is- landi, Bandaríkjunum, Ungverja- landi og Madagaskar. andi gagnvart þeim vanda, sem alltaf fylgir stórum hópum, en það er, að einstaklingurinn hverfi um of í hópinn og geti engum kynnzt. Það verður alltaf erfitt viðfangs- efni í stórum félögum -— og einnig i smærri hópum. Gætum við áreið- anlega lært talsvert að því er það snertir. Hvað hafa þeir að sækja í þenn- an „Svartaskóla“ ? Er ennþá nokk- ur kirkja, sem heldur fast við feðranna trú, hinn gamla boðskap ? Mér gleymist seint sú kveðja, sem annar Madagaskarbúinn flutti — þótt hann hefði talað sitt móð- urmál, hefði verið ómögulegt að komast hjá því að hrífast af því þakklæti, sem ljómaði úr svip hans og öllu látbragði þessa þeldökka hrokkinkolls. Svo mikið skildi ég af norsku hans, að hann var innilega þakk- látur Safnaðarprestaskólanum fyr- ir alla þá hjálp og blessun, sem þaðan hefir borizt i baráttunni við heiðnina í landi lians. Hann hafði sagt skilið við andatrú landa sinna og lært hið eina lausnarorð: Jesús. Og það orð liljómaði svo dýrlega í munni hans að mér mun seint gleymast. Einnig var flutt kveðja frá Bandaríkjunum við þessa máltíð. Síðan htuðumst við um í bæn- um, nema kórinn fór og söng á elliheimilinu. Um kvöldið var svo samkoma í safnaðarhúsinu. Pró- fessor Halleshy hélt aðalræðuna, og nokkrir stúdentanna komu með vitnisburð. Benedikt Arnkelsson flutti kveðjur. Ýmsir úr söfnuðinum kvöddu okkur með hvatningarorðum. — Að lokinni kvöldsamkomunni var haldið heimleiðis eftir góðan dag hjá góðu fólki. Ingólfur Guðmundsson. JJVWWIWWW Þakkarefni ER SANNGJARNT að koma með kröfu eins og þá, sem komið var með í næst síðasta tbl. IJjarma og þannig var: „Skarið fram úr í þakklátssemi“? Er það ekki augljóst, að kjör manna eru svo misjöfn í heimi þessum, að ósanngjarnt er að krefjast þess, að sérhver reyni að skara fram úr í þessari keppni? Sækja ekki raunir og vonbrigði suma sífellt heim, en lánið leikur við aðra frá vöggu til grafar? Sigla ekki sumir í sí- felldum barningi og ágjöf, en aðrir reika um rósumstráðar brautir? Vissulega er það svo, að gæfu vor mannanna virðist misskipt. Minnumst samt þess, að Guðsorð hefir ekki gleymt því, er það kom með þessa hvatningu. Það veit um örbirgð sumra og vellystingu ann- arra. Það þekkir sorgir og sársauka sumra og glaum og glaðværð ann- arra. Þrátt fyrir það hvetur það oss hvern og einn til þess að skara fram úr í þakklátssemi. Hvers vegna? Vegna þess, að þegar að er gáð, höfum vér hver og einn svo mikið fyrir að þakka, að þakklæti ætti að fylla hjarta vort. Hvað eigum vér þá að þakka fyrir? Páll postuli segir það á ein- um stað: „Þakkið jafnan Guði, föðurnum, fyrir alla hluti í nafni Drottins vors Jesú Krists.“ Biblíuleg trú segir: Allt er þakkarvert. Lífið, sem Guð gaf. Heim- ilið, sem vér hlutum í vöggugjöf. Umhyggjan, sem borin var fyrir oss. Vinirnir, sem Guð gaf oss síðar á lífsleiðinni. Gleðistundirnar, sem vér höfum átt með vinum vorum. Öll fegurðin, sem vér höfum fengið að líta augum, allt er þetta þakkarvert. Trúin sér þó fyrst og fremst það, sem yfirgnæfir allt annað: Náð Guðs í Jesú Kristi. Guð gaf oss öllum frelsara, soninn sinn einget- inn. Hann dó fyrir oss, svo að vér mættum lifa. í honum fáum vér fyrirgefningu allra synda vorra, samkvæmt fyrirheitum Drottins, og í vændum eigum vér eilíft líf með Drottni. Þetta sjáum vér í trúnni. Vissulegá höfum vér mikið fyrir að þakka.

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.