Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.07.1992, Blaðsíða 6

Bjarmi - 01.07.1992, Blaðsíða 6
Uppbygging DR. SIGURBJÖRN EINARSSON, BISKUP: UM TRÚARLÍFI. Dr. Sigurbjörn Einarsson, biskup Jesús benti á það síðasta kvöldið sitt áður en hann gekk í dauð- ann, að nú væru orðin aldahvörf í sögu bænarinnar. Fyrstu lærisveinar eða nemendur Jesú Krists báðu hann einu sinni: Kenn þú oss að biðja (Lúk. 11). Þetta er eina skiptið sem frá því er sagt, að þeir hafi beinlínis beðið hann að kenna sér til- tekið atriði. Þeir báðu hann stundum að út- lista nánar eitthvað, sem hann hafði sagt. En í þetta eina sinn báðu þeir hann að kenna sér ákveðið efni. V ar þetta tilviljun? Auðsjáanlega ekki. Hann var að biðjast fyrir þegar þeir báru upp þessa ósk eða einn þeirra fyrir hönd þeirra allra. Feir tóku eftir því, hvernig hann var þeg- ar hann bað eða hafði verið á bæn. Hann bað með þeim reglulega á vissum stundum dagsins, það var föst venja Gyðinga. En Jesús þurfti auk þess oft að hverfa frá öðrum mönnum, vera einn á bæn. Stundum var hann heilar nætur á bæn. Það fór ekki framhjá vinum hans, að eitthvað mikið bjó undir þessu. Hann bar það með sér, það sást á svip hans, það fannst að hann hafði hlaðið sig heilagri orku, þegar hann hafði verið að biðja. Einu sinni tók hann þrjá vini sína með sér þegar hann fór upp á fjall að biðjast fyrir (Lúk. 9). Ogþá urðuþeir vitni aðþví, aðhann umbreyttist, það geislaði af honum, himinn- inn var opinn yfir honum (eins og þegar hann var að biðja nýskírður Lúk. 3,21). Þarna opinberaðist það, að Jesús var í sambandi við Guð í bæn sinni: Þessi er minn elskaði sonur, sagði Guð. Þegar hann lifði hér á jörð sýnilegur var hann í fullkomnu innra sambandi við Guð. Hann og Guð eru eitt frá eilífð. Hann kom, varð maður til að tengja rofinn þráð, hann lifði hér, leið og dó og reis upp frá dauðum til þess að koma föllnum manni í nýtt samband við föður sinn, Guð. Jesús fullnaði þetta skap- andi hjálpræðisverk. Síðan er tilveran önnur en hún áður var. Hún er önnur hverjum þeim, sem það vill sjá og skilja og þiggja. esús benti á það síðasta kvöldið sitt áður en hann gekk í dauðann, að nú væru orðin aldahvörf í sögu bænarinnar. Og saga bænar- innar er jafngömul sögu mannsins. Biðjið í mínu nafni, sagði Jesús, hingað til hafið þér einskis beðið í mínu nafni, biðjið og þér mun- uð öðlast, til þess að fögnuður yðar verði full- kominn (Jóh.16). Þetta eru mikil orð og íhugunarverð. Læri- sveinarnir höfðu vissulega beðið. Eins og hvert jarðarbarn um allan aldur. Engin mann- eskja hafði komist til vits án þess að biðja, ákalla einhver æðri völd, leita upp fyrir sjálft sig og mannheim að hjálp. Saga trúarbragð- anna er sagan um hinn biðjandi mann. Og það eðlisfar, sem sú saga birtir, losnar maðurinn

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.