Bjarmi - 01.07.1992, Blaðsíða 13
mikilli elsku sinni, sem hann gaf oss, hefur hann
endurlífgað oss með Kristi... Þetta er ekki yður
að þakka. Pað er Guðs gjöf. Ekki byggt á verk-
um, enginn skal geta miklast af því.“ Páll heldur
því fram að góðu verkin séu á vissan hátt til-
gangur lífsins fyrir trúaðan einstakling. „Vér
erum smíð Guðs, skapaðir í KristiJesú til góðra
verka, sem hann hefur áður fyrirbúið, til þess að
vér skyldum leggja stund á þau. “ (Ef. 2.)
Kristinn einstaklingur er endurleyst Guðs
bam, ný sköpun, skapaður til góðra verka, verka
er bíða hans fyrirbúin af Guði. Það er því
vandalaust að finna góð verkefni, góð verk að
vinna fyrir Drottin. Enginn getur sagt: „Það er
ekkert verk að vinna handa mér.“ Öll Guðs börn
hafa fengið góð verk að vinna í víngarði Drott-
ins sem sérstaklega eru ætluð þeim. Þessi góð
verk skulu öll vera náunganum til góðs. „Engin
góð verk eru til nema þau, sem Guð hefur boðið,
eins og engin synd er til nema sú, sem Guð hefur
bannað.“ (Lúther) Af þessu er ljóst að ekki þarf
að ríkja nein óvissa um það, hvað gera skal.
„Þótt ég sé öllum óháður, hef ég gjört sjálfan
mig að þræli allra, til þess að ávinna sem
flesta,“ skrifar Páll. (I. Kor. 9.19) Lúther skýrir
þetta þannig: „Kristinn maður er frjáls drottnari
allra hluta og engum undirgefinn. Kristinn
maður er ánauðugur þræll allra hluta og hverjum
manni undirgefinn.“ Frjáls í Jesú Kristi, rétt-
lættur frammi fyrir Guði. En þótt hann sé nú
frjáls ber honum að gerast þjónn af frjálsum og
fúsum vilja, þjónn náunga síns, breyta við hann
eins og Guð hefur breytt við hann sjálfan í
Kristi.
Hugarfar Krists
Köllun kristins manns er að ávinna sem flesta
og þjóna náunga sínum í kærleika. „Verið með
sama liugarfari sem Jesús Kristur var. Hann var
í Guðs mynd. En hannfór ekki með það sem feng
sinn að vera Guði líkur. Hann svipti sig öllu, tók
á sig þjóns mynd og varð mönnum líkur. Hann
kom fram sem maður, lægði sjálfan sig og varð
hlýðinn allt til dauða, já, dauðans á krossi. “
(Fil. 2.5-8)
Kristur lagði allt í sölurnar fyrir náungann.
Hann sem var sonur Guðs tók á sig þjóns mynd,
gjörðist þjónn allra, líka óvina sinna og leið
dauða á krossi til þess að bjarga sem flestum.
Hugarfar Krists eignast aðeins sá sem lifir í
daglegu samfélagi við hann, lætur orð hans búa
í hjarta sér og móta líf sitt og gjörðir. Sé lífinu
lifað í nærveru Krists sprettur fram kærleikurog
löngun til Guðs og vilji til að þjóna náunganum.
Eins og náunginn líður neyð og þarfnast hjálpar
okkar, eins höfum við liðið neyð fyrir Guði og
þurft á náð hans og miskunn að halda. Guð hefur
hjálpað okkur ókeypis fyrir Krist Jesú, eins ber
okkur að hjálpa náunga okkar ókeypis.
Náungi okkar
er hver sá sem
þarfá hjálp
okkar og að-
stoð að halda
nœr ogfjær.
Kristinn maður
á að vera fús til
að hjálpa og
þjóna bæði
með tíma sín-
um og eignum.