Heima er bezt - 01.06.1951, Síða 17

Heima er bezt - 01.06.1951, Síða 17
112 Heima er bezt Nr. 4 Nr. 4 Heima er bezt 113 Bjargsig í PAPEY Eftir Ingólf Gíslason, lækni Á leið inrt i Arnarey i kláfferjunni. Hell- isbjarg og vitinn i baksýn. PAPEY liggur í suðurátt frá mynni Bernfjarðar, um 4 sjó- mílur undan landi. Næsta kaup- tún er Djúpivogur og er þang- að tæpl. klukkustundar ferð á vélbát. En þar má segja, að kunnugum sé bezt að bjóða, því á þeirri leið er mesti fjöldi skerja og boða, straumar harð- ir og þokur alltíðar, einkum framan af sumri, þótt ekki komist þær í námunda við bað, sem segir í einni kennslubók, en þar segir, að við Berufjörð séu allt að 240 þokudagar á ári: Sönnu nær að telja þá um 40. Norðan og vestan við Papey eru nokkrar smærri eyjar og heitir hin stærsta þeirra Arn- arey. Allar eru eyjar þessar mjög nálægt aðaleynni og eru fuglabjörg í þeim öllum, en lág. Papey sjálf er hólótt og dálítið klettótt, en mýrar á milli, og er mestur hluti hennar graslendi. Eins og að líkum lætur er þarna lítill ys og þys að vetrin- um, nema hvað stormasamt er og sjávarniður oft ærið þungur, en margir, sem hafa vanist hon- um, sakna hans, er þeir flytjast burt úr Papey. Það verða því talsverð við- brigði, þegar fugl fer að setjast að síðari hluta vetrar og á vor- in. Fer það nokkuð eftir tíðar- fari og æti í sjónum, hvenær sjó- fuglinn sezt að, en aldrei skeik- ar þá miklu um komutíma far- fugla. Ég man t. d. ekki eftir, að lundi sæist ekki um sumarmál, stundum aðeins sárafáir, stund- um fleiri. Um varptímann eru miklar annir hjá fuglinum. Lundinn þarf að hreinsa út gömlu hol- urnar og þeir, sem engar holur áttu árið áður — en það eru bæði aðkomulundar og þeir, sem nú eru í fyrsta sinn að stofna himili — þurfa að grafa sér nýj- ar holur. Ritan þarf að hressa við hreiður sín frá árinu áður eða jafnvel byggja sér ný. Efn- ið til hreiðurgerðarinnar sæk- ir hún í tjarnir; þar fær hún slý, og svo sinustrá, sem alls- staðar er nóg af. Hún er marga daga að þessu og fer margar ferðir á dag. Hreiður hennar er mjög vandvirknislega gert. Hún verpir 1—3 eggjum. Áður var sigið í rituegg þar sem auðveld- ast var að ná þeim, og verpti ritan þá aftur 1—2 eggjum. Egg hennar, sem eru á stærð við minnstu hænuegg, eru mjög ljúffeng. Annars tók faðir minn okkur vara fyrir að gera ónæði um varptímann, og er mér óhætt að segja, að við bræðurnir héld- um það boðorð furðu vel. Auð- vitað gat það samrýmst þessu boði að fylgjast með því, hvenær ungar bjargfuglanna tóku að skríða úr eggjunum, og svo með þroska þeirra, unz þeir urðu „tækir“, þ.e.a.s. nógu þroskaðir til að af þeim fengist gott fið- ur og ljúffengur matur. Þá var kominn tími til að síga í björg- in eftir ritu- unga, því ef það drægist nokkuð að ráði, gat svo farið, að fuglinn væri floginn úr hreiðrinu. Sigakaðallinn var nefndur sigafesti eða bara festi. Fest- in hafði verið notuð um vorið til að síga í Ingólfur Gíslason lœknir frá Papey, sonur Gísla bónda þar Þorvarðarsonar, fœddist í Pap- ey 3. október 1902. Hann tók stúdentspróf 1926, las siðan lœknisfrœði og lauk því námi. Hann fékk Berufjarðarlœknis- hérað árið 1935, en missti heils- una og varð að láta af embœtti árið 1944. Ingólfur ólst upp í Papey. Nú dvelur hann í Reykja- vík. svartfuglsegg, en hafði ann- ars verið geymd á góðum stað frá árinu áður, þar sem hún gat hvorki blotnað eða slagað. Festin var misjafnlega marg- þætt eftir gildleika þáttanna og þyngd sigamannsins, en var þó aldrei minna en tvíþætt, ef þættir voru nýir og sigamaður léttur og lipur drengur. Þetta var gert af öryggisástæðum, því ef sigamaður var ekki nógu að- gætinn, gat skeð, að festin dræg ist um egghvassar nibbur og skærist í sundur, en þá var minni hætta á að slys hlytist af, ef festin var margþætt, því ólík- legt var, að allir þættir skærust í sundur í einu. Sigtæki auk festar voru þessi: bjargstokkur, en það var ca. iy2 m. langt tré úr góðum viði, 10 —15 cm. í þvermál. Endarnir á 8—10 m. löngum, grönnum og sterkum kaðli voru festir á enda bjargstokksins. Bjargstokkur- inn var lagður á bjargbrún og var einhver liðléttingur látinn sitja í áðurnefndri kaðallykkju en festin drógst um bjargstokk- inn þegar sigið var niður og dregið upp. Annað ómissandi sigatæki var snöruprikið. Það var 3—4 m. langt, úr seigu og léttu efni. Bambusstengur voru bezta efnið í þær. Á mjórri enda hennar var snaran fest. Hún var gjörð úr taglhári og var það stímað, sem kallað er. Annar endinn var auðvitað fest- ur í snöruprikið en á hinn end- ann var gerð lykkja úr fjöður- staf af einhverjum stórum fugli, venjulegast úr máfsvæng (annars voru svana- eða arn- arfjaðrir miklu betri). Fjöður- stafurinn var klofinn þversum og skafið innan úr þeim fletin- um, sem upp vissi (á fugls- vængnum). Síðan var gerð lykkja af og fest við enda snöru- leggsins og honum smeygt tvö- földum gegnum lykkjuna, sem var um þumlungur á lengd, varð þá snaran álíka og meðalstór kaffikönnuhringur. Enn má nefna eitt sigatæki, en það var „sigataddan“. Var það stuttur og frekar viður poki og var hæfilega löngu snæri bundið í barma hans á tveim stöðum, þannig, að tödduopið nam við mittisstað þegar sigamaður brá lykkjunni á hægri öxl var „taddan“ á vinstri hlið hans. Fuglabjörg eru allvíða í Pap- ey, en aðalbjörgin eru umhverf- is vog vestan á eynni, sem Ár- höfn heitir. Norðan vogsins eru svonefndar skálmar. Eystri- og Vestri-Skálm. Var oftast byrjað að síga í Vestri-Skálm. Siga- maður þurfti helzt að vera létt- ur, lipur og vanur. Eftir að bræður mínir höfðu þroska til (um fermingaraldur) og vinnu- maður var aðeins einn, tóku þeir við sigamennskustarfinu, fyrst sá elzti en þvínæst sá næstelzti. Ég var sá þriðji í röð- inni eftir aldri, af okkur bræðr- unum, en það má segja, að hlaupið hafi verið yfir mig. En til að fyrirbyggja allan mis- skilning verð ég að geta þess, að sá okkar bræðra, sem var næst- ur á undan mér að aldri, var minni vexti og léttari en ég og þar sem hann var auk þess van- ur og sérlega lipur sigamaður, var auðvitað ekkert vit í að ég tæki við starfanum, meðan hann var heima. En þegar hann fór, var fjórði bróðirinn orðinn nógu gamall til að taka við starfanum, og þannig stóð á því að hlaupið var yfir mig. Ég tel það ekki til siga mennsku, þó að ég sigi einu sinni eftir kálfi, sem hrapað hafði fyrir 20 m bjarg ofan í Árhöfn! En við vorum komnir vestur á Skálm. Sigamað urinn er bund- inn. Fyrst er þykkum, mjúk- um poka vafið um mj aðmir hans til þess að festin særi ekki. Rita við hreiðnr sitt i Papey. Þvínæst er lykkju, sem gjörð er á festarendann, smeygt upp á annað læri sigamanns, þá er snúið upp á festina þannig, að lykkja myndast fyrir hinn fótinn, svo er enn tekin lykkja og snúið enn upp á festina og sigamaðurinn smeygir lýkkj - unni yfir höfuð sér og niður um mitti eða mjaðmir, eftir því sem honum þótti þægilegra. Þessar lykkjur eru svo allar lagaðar svo að þær falli slétt og fast að sigamanni. Svo eru læralykkj- urnar „fikaðar“ með snæri upp í mittislykkjuna til þess að lykkjurnar haldist í réttum skorðum. Því næst tók sigamaður „tödd- una“ um öxl sér eins og áður er lýst og snöruprikið í vinstri hönd og var hann þá búinn til sigs. Jafnframt hafði sigstjór- inn, sem ávallt var faðir minn, lagt bj argstokkinn á bjargbrún- ina þar sem síga skyldi og setzt, og varð hann að spyrna meira eða minna í bj argstokkinn bæði til þess að hann héldist í sömu skorðum og til að nota hann sem viðspyrnu, einkum þegar upp var dregið, „halað“, sem kallað var. En áður hafði bjarg- stokksmaður valið sér gott sæti og viðspyrnu, og smeygt bjarg- stokksreipum yfir mitti sér. Þeir, sem sátu undir festi, fest- arfólkið, röðuðu sér í beina línu

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.