Heima er bezt - 01.06.1951, Side 22

Heima er bezt - 01.06.1951, Side 22
118 Hehvía er bbzt Nr. 4 að sigra hjarta hans. Hvernig gátu allir þessir hnettir orðið til? Hvernig gat mannleg hugs- un skýrt það, að þessi jörð og allir hnettir himingeimsins hefðu orðið til af engu. Og faðirinn kenndi syni sín- um að veiða á spón. Þegar þeirri kennslustund var lokið, gengu þeir hægt upp með ánni í átt til hestanna. Á leiðinni sagði fað- irinn eftirfarandi sögu: „Fyrir allmörgum árum var hér í héraðinu gömul kona, sem þjáðist mikið og beið dauða síns. Ég kom oft til hennar og reyndi að lina þjáningar hennar. ann- að var ekki hægt að gera. Ég sat hjá henni síðustu stundirnar og hélt í hönd hennar. Hún hafði áhyggjur af því, að enginn gæti borgað mér læknisverk mín, því að hún var fátæk kona. Ég full- vissaði hana um, að ég vildi enga borgun taka. Og til að sýna henni vinarþel mitt strauk ég enni hennar með lófa mínum. Nokkru áður en hún dó sagði hún við mig: „Ég ætla að reyna að borga þér það, sem þú hefur gert fyrir mig. Ég ætla að biðja guð minn að leyfa mér að láta þig vita, þegar þú mátt búast við dauða þínum. Það gæti verið gott fyrir þig og aðra.“ Ég þakk- aði henni, og hún var góð kona. Árin liðu, og ég hafði ekki gleymt gömlu konunni. Seint í sumar dreymdi mig hana. Hún kom til mín og sagðist vera komin til þess að efna loforð sitt. „Það verður í vetur,“ sagði hún. Ég bað hana um sanninda- merki. Þá brosti hún til mín og sagði: „Hvítir fálkar eru sjald - gæfir á íslandi." • í haust hefur oft hvítur fálki fylgt mér á ferðum mínum, og alveg sérstaklega ef leið mín hefur legið með Hvítá eða yfir hana. Grunar mig, að ég eigi eftir að ljúka æfi minni í faðmi hennar.“ Og þeir tóku hesta sína og riðu þögulir niður með ánni. Lítill klettur stendur við Hvítá, nær miðja vegu milli Langholtsvaðs og Svarthöfða. Hann er nú kallaður Hjásetu- klettur, en hvort það nafn er gamalt, skal eigi um sagt. Rétt fyrir ofan Hjásetuklett var stór og grösug vallendisgrund, náði hún upp á móti Hörðuhólum. Nú hefur Hvítá brotið landið svo mjög, að þessi stóra vallendis- grund er horfin að mestu. Þarna höfðu litlir drengir gætt að frá- færuám um nokkur sumur og kletturinn litli verið aðalaðset- ursstaður þeirra á daginn, þess- ar fáu vikur, sem fráfærurnar stóðu yfir. Þarna höfðu dreng- irnir leikið sér og átt sína ævin- týraheima, svo sem börnum er títt. Stundum átti lóa egg í mosató rétt við götuna. Óðins- hanar syntu á ánni. Spóinn átti egg úti í móanum. Einstaka sinnum sást silungur skjótast í ánni. Steinbrjótar og gullmura uxu á klettinum, hin prúða klettasóley átti þar og heima. í klettasprungum óx burkni, og svo voru steinarnir vaxnir margskonar mosa og skófum. Kletturinn var dálítið sprung- inn. í einni sprungunni óx ein- kennilega lagaður ljósgrænn mosi. Hann var eins og klukka í laginu. Þetta sögðu drengirnir að væri klukkan huldufólksins, og þeir gættu þess vel að skemma hana ekki. Huldufólk bjó náttúrlega í klettinum og dvergar í stöku steinum. Klett- urinn var drengjunum skjól í stormi og regni, og þeim þótti vænt um hann Þegar feðgarnir komu að klettinum, fór faðirinn af baki og sagði: „Hér skulum við staldra dálítið við.“ Svo spurði hann son sinn, hvort honum þætti vænt um þennan stað. Jú, honum þótti það. Þá sagði faðirinn: „Ég ætla að biðja þig bónar. Þegar ég er dáinn, bið ég þig að sjá um, að þessi jörð verði ekki séld. Afi þinn keypti hana, og ég vil ekki, að hún gangi úr okkar ætt.“ Með tárin í augunum lofaði sonurinn þessu. Svo héldu þeir heim, áður en 'kvöld kom. Nokkrum mánuðum síðar drukknaði faðirinn í Hvítá ásamt hesti sínum. Þeir voru einir á ferð. Fáum dögum síðar stóðu tveir af sonum hans við Hvítá og horfðu á vökina. Stormur stóð af suðri og hriðarfjúk. Hvítur fugl kom fljúgandi með miklum hraða. Þeir hugðu það hvítan fálka. Hann hvarf í bylinn." Athugasemd: Plast og plastvörur Herra ritstjóri! ÉG RAKST á grein í apríl hefti blaðs yðar „Heima er bezt“, undir nafninu „Undraefnið plast. Nýr iðnaður á Islandi", þar sem þar koma fram nokkrar meinleg- ai villur langar mig að biðja yður fyrir eftirfarandi athugasemd til birtingar t blaði yðar. Það er ekki rétt, að þetta sé nýr iðnað- ur á íslandi. Vorið 1946 var stofnað hér fyrirtæki að nafni Plastic h.f., er ég veiti forstöðu og starfað hefur síðan og aukið mjög drift sína. Fyrirtæki þetta framleiðir ýmsar vörur úr plasti og hefur gert það undanfarin fjögur ár. Áhugi heimilda- manns yðar, forstjóri hins nýja fyrirtækis „Plastvörur s.f.“, virðist vera kominn dá- Jítið fram úr sögu og fræðilegri þekkingu hans á plasti. Hann talar um þetta sem um eitt efni sé að ræða, en það er herfi- legur misskilningur. •— Plastic er samheiti á miklum fjölda efna sem eru mjög mis- munandi að útliti og eiginleikum. Hann segir að 10 ár séu liðin síðan far- ið var að framleiða efnið og 5 ár síðan vörur fóru að koma úr þvi á markaðinn. Þetta er einnig rangt. Celluloid (sem er eitt plast-efnið) var fyrst uppgötvað af John Westey í New York árið 1869. (Ann- ars eru Englendingar og Ameríkumenn ekki sammála um hver uppgötv hafi cello- loid, þeir fyrrnefndu telja að það hafi verið Alexander Parkes). Upp úr þessu var farið að framleiða hluti úr þessu efni, þó ekki væri í stórum stíl, en almennt er talið, að þar með hafi verið lagður hornsteinninn að plast-iðnaðinum. Árið 1909 uppgötvaði Dr. Leo H. Raekeland phenol-formaldehyde,. sem almennt er kallað „Bakelite“, en það er eitt af þekktustu efnum í plast-iðnað- inum nú til dags, og vörur úr þessu efni fóru að koma á markaðinn skömmu þar á eftir. Á einum stað í greininni segir hann, að þeir hyggist framleiða rafmagnsvörur, svo sem tengla, klær o. fl., en tekur það fram,. að þeir ætli ekki að framleiða þessar vörur úr plasti, heldur úr öðru harðara efni, er nefnist „Bakelite“. En eins og ég héf nefnt áður, þá er þetta eitt þekktasta plast-efnið og fæ ég ,ekki skilið hvers það á að gjalda hjá forstjóranum. Með þökk fyrir birtinguna. Jón Þórðarson.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.