Heima er bezt - 01.02.1954, Blaðsíða 9

Heima er bezt - 01.02.1954, Blaðsíða 9
Nr. 2 Heima er bezt 41 við inn á veitingastað á leiðinni og fengum okkur kaffi með kök- um, því að okkur var farið að svengja. Á fæðingardegi konungs 18. apríl var mikil hátíð í háskól- anum. Hátíðasalur skólans var mjög skrautlegur og allir veggir klæddir forkunnarfögrum og stórum málverkum af atburðum úr sögu Danmerkur. Þar var samankominn múgur og marg- menni. Ekki var konungur þar sjálfur, heldur krónprinsinn og eitthvað af fjölskyldu hans og sátu í sérstakri stúku. Fyrst sungu stúdentar hátíðasöngva og var hátíðinni einnig lokið á sama hátt. Söngurinn tókst á- gætlega og hafði ég mesta ánægju af honum. Þá sté rektor í ræðustól og talaði lengi. Var ræðan um stjörnuspekinginn Tycho Brahe. Að henni lokinni afhenti rektor sex stúdentum heiðurspeninga úr gulli fyrir rit- gerðir, er þeir höfðu samið. Einn þessara stúdenta var íslending- ur, Óláfur Dan Daníelsson. Stúd- entarnir voru kallaðir fram og gengu þeir til rektors hver af öðrum og tóku á móti verðlaun- unum. í leiðinni gengu þeir fram fyrir konungsstúkuna og hneigðu sig kurteislega, eins og siður mun við slík tækifæri. En einn af dönsku stúdentunum gerði hér undantekningu á. Hann strunsaði framhjá og leit hvorki til hægri né vinstri. Kvað hafa sagt, að hann gæfi ekki meira fyrir kóng en kotung. Sá hinn sami hafði samið ritgerð um Statsvidenskab (stjórnfræði) og hlaut peninginn að verðlaunum. Loks vil ég minnast hér á nokkra góðkunningja mína að heiman, sem ég hitti hér, en hef ekki getið um fyrr: Edwald Möller frá Eskifirði var einn þeirra. Hann hafði dvalið fimm eða sex ár í Kaupmanna- höfn og var því orðinn hagvan- ur. Kom ég oft heim til hans og var þar stundum gestkvæmt mjög, Danir, íslendingar, karlar og konur. Var þar oft glatt á hjalla og veitingar góðar, kaffi eða bjór. Þegar ég hitti Edwald einan heima, settumst við jafn- an að tafli, sem stundum stóð lengi, en endaði þó oftast með sigri Edwalds. Þá hitti ég oft Sigurð Eggerz frá Akureyjum. Hann hafði þá verið sex ár í Höfn og orðinn vel kunnugur. Kom það mér oft að góðu haldi, sem var nýkominn og ókunnugur. Ég þurfti að fá mér saumuð föt og leitaði lið- sinnis og ráða hjá Sigurði. Brá hann skjótt við og fór með mig til klæðskera Jensens í Köbmag- ergade, sem tók að sér að skinna mig upp. Fékk ég jakkaföt fyrir sextíu og fimm krónur og þurfti ekki að standa skil nema á helm- ingi þess til næsta árs. Þegar fötin komu heim til mín og frú Scheumann sá mig í þeim, var hún ekki ánægð með þau og hafði margt út á þau að setja. Bauðst hún til að fara með þau aftur til Jensens og fá um bætt. Kom þá upp úr kafinu, að frúin hafði lengi verið við saumaskap hjá honum áður en hún giftist. Fötin komu svo aftur eftir nokkra daga í nýrri og betri út- gáfu. Jón Stefánsson úr Sauðárkrók hitti ég mjög oft, ýmist heima hjá honum eða hjá mér. Hann var nýliði í hóp stúdenta í Höfn. Fórum við oft saman um bæinn til að kynnast sem flestu og læra að þekkja sem flest. Við komum á söfn, leikhús, aðra skemmti- staði og veitingahús. En allt fór það fram með stillingu og sið- prýði. Var Jón jafnan sama prúðmennið og ég hafði þekkt heima. Páskadaginn fór ég um hádegið upp á Garð og hitti Jón. Vorum við saman allan daginn eftir það. Var veður gott, logn og blíða, en samt ekki mikil um- ferð um bæinn. Fyrst fórum við á sýningu í Charlottenborg og skoðuðum þar meðal annars Úti- legumanninn, höggmynd Einars Jónssonar, og Þingvöll, málverk Þórarins Þorlákssonar. Lítið var þá enn farið að bóla á því, er síðar skyldi verða lífsstarf Jóns. Skömmu eftir að ég kom til Hafnar tók Sveinn Björnsson úr Reykjavík mig með sér upp á Sívalaturn og ætlaði að sýna mér Kaupmannahöfn þaðan og alla hennar dýrð. Varð ég fyrir vonbrigðum, því að veður var ekki vel bjart né tært loftið og sást því lítið útífrá. Nokkru síð- ar var það, að ég fór að heim- sækja Guðm. Finnbogason, en hann gat lítið sinnt mér, sem ekki var heldur von, því að hann var þá önnum kafinn að ljúka sinu lokaprófi og margs að gæta. En Sveinn, er bjó með Guð- mundi, var heima. Hermdi hann þá upp á mig fornt loforð að heiman eða áheit, ef ég næði sæmilegu embættisprófi. Reynd- ar mundi ég nú ekkert eftir þessu, en véfengdi ekki sann- sögli Sveins. Bauð ég honum nú með mér í Konunglega leikhús- ið einhvern næstu daga er hann sjálfur valdi. Við fengum þar ágæt sæti uppi á svölum (Bal- kon) í fremstu sætaröð fyrir miðju leiksviði. Allt í kringum okkur voru öll sæti upptekin af prúðbúnu fólki, er mér virtist vera stórmenni (Aristokrati) borgarinnar. Leikið var söng- leikurinn Lamía. Kom frægi söngvarinn Harold þar fram í gervi Zeus hins gríska og frú Brun í gyðjulíki. Að loknum leik fengum við okkur hressingu með matarbita, bjór og vindli og þóttist ég hafa greitt af hendi áheitið að fullu. Röltum við síð- an um „Strikið“ og utan við það langt fram yfir miðnætti. Þegar ég 10. ágúst fór burt af Fæðingarstofnuninni hafði ég einnig lokið erindi mínu til Hafnar. Tók ég mér næstu daga far, samskipa Ingólfi og Jónasi, til íslands, en Andrés varð eft- ir. Vorum við nú allir á öðru far- rými, því að pyngjurnar voru farnar að léttast. Heima biðu okkar héraðslæknisembætti, er við höfðum verið skipaðir í, Jónasar Fljótsdalshérað, Ingólfs Reykdælahérað, og mín Naut- eyrarhérað með einum 1300 króna ársalunum, en það er önnur saga. Sólveig og rithöfundurirm Sólveig litla var með móður sinni í heimsókn hjá rithöfundi einum. Hann var að skrifa þegar þær komu. „Af hverju skrifarðu svona mikið?“ spurði telpan. „Ég er að skrifa bók, góða mín“. „Af hverju ertu að skrifa bók, þegar þú þarft ekki annað en að fara til bóksalans og kaupa hana fyrir nokkrar krónur, svaraði Sólveig litla.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.