Heima er bezt - 01.02.1954, Blaðsíða 15

Heima er bezt - 01.02.1954, Blaðsíða 15
Nr. 2 Heima er bezt 47 án hefur þegar kynnst þeirri til- finningu, sem grípur veiðimann- inn, þegar fyrsti laxinn spriklar á færinu og er dreginn á land. Ég á þetta eftir og kynnist því ekki fyrr en síðar og þá vestur í Dölum, en það er nú önnur saga. Hún er mjög ánægjuleg á svip- inn, frú Herdís, þegar hún virðir fyrir sér þennan fallega fisk, enda má hún una hlut sínum vel, þar sem þetta er eini fisk- urinn, sem á land kemur á þess- ari vöku. Eftir að hafa dvalið góða stund á Laxamýri, snúum við Kristján aftur til Húsavíkur, en veiði- mennirnir ganga til náða. Síðasti dagurinn á Húsavík. Hér hefur verið gott að búa. An- etta með ljósa lokka og bjartar brár, hefur gengið um beina, hýr og prúð alla daga. Er þess að vænta að veröldin verði henni svo góð, að barnslega brosið lifi sem lengst í björtum augunum, til þess að ylja þeim vegfarend- um, sem á leið hennar verða. Ég fæ ágætan bílstjóra til að flytja mig til Akureyrar. Sólin skín glatt og við förum rólega. Laxá fellur blátær með hvítum straumköstum milli grænna gróðursælla bakka. Rjúpnahóp- arnir eru eins og stórar fjár- hjarðir meðfram veginum og á veginum, svo bílstjórinn má hafa alla gát til að valda þeim ekki tjóni. Við stönzum í „vorsins græna ríki“ og teygum að okkur ilm skógarins, sem aldrei svíkur. Innan stundar erum við á Akur- eyri. Heima h]á Sigurði og frú Herdísi skrifa ég síðustu dag- bókarblöðin í þessari ferð. Og svo er þessum ferðaþáttum lokiö. Tuttugu yndislega sumar- daga hefi ég dvalið á áður ó- þekktum slóðum, meðal fólks, sem ég hafði lítil eða engin kynni af áður, þegar frá eru teknir nokkrir gamlir skólafé- lagar. Á þessum dögum hef ég eignazt margt skemmtilegt í myndasafn minninganna, margt, sem ég vildi ekki án vera og tel mig ríkari fyrir að hafa náð í. Ég hef séð reisuleg bændabýli, vel búin skip, iðjuver og verzl- unarhús, séð starfsfúsar hend- ur vinna við hin margþættu störf íslenzkra atvinnuhátta. En segja má að enginn þurfi að leggja leið sína vítt um til að sjá allt þetta, því sú saga skeður í svo að segja hverri byggð. Enda eru það ekki fyrst og fremst stórhýsin og skipaflotinn á hverjum stað, sem vakið hefur athygli mína, þó allt slíkt beri að vissu marki vott menningar- legrar framvindu. Það er fólk- ið sjálft, viðbrögð þess í leik og starfi, mat þess á mönnum og málefnum, viðhorf þess hvers til annars og tengsl við hina lif- andi náttúru. Þetta er í mínum augum það sem mestu máli skiptir. Því er það, að ég hef stundum sleppt að nefna ný- sköpunartogara eða stórhýsi, sem vissulega væri þess vert að tala um, en fremur látið hug- ann reika út í skóg, þar sem blærinn bærir bjarkarlaufið og æskufólkið skemmtir sér í grænum lundi, eða út að strönd- inni, þar sem aldan mynnist blítt við sandinn sumarfögur kvöld, og sá, sem einveru leitar finnur sinn frið. Ég hef líka staldrað við á reitnum og síldar- planinu, þar sem fólk hefur staðið að störfum. Og ég hef leit- að út að ánni þar sem sprett- harður lax glímir við stríða strauma og veiðimaðurinn full- ur áhuga rekur færið sitt til að handsama þennan gullfisk ís- lenzkra vatna. Upp í efstu byggðum íslenzkra fjalla hefi ég hlýtt á kirkju- söngva aldurhnigins bónda, sem í sínum fábreytta einfaldleik hafa djúp áhrif á vegfarandann sem á hlýðir. Þannig hefi ég eignast nokkrar svipmyndir úr þjóðlífinu, svipmyndir sem fram áttu að koma í þessum þáttum, en mér er ljóst að hvergi eru svo vel dregnar sem efni stóðu til. íslenzkri þjóð mun vel vegna um aldir fram, ef bóndinn trúir á mátt þeirrar moldar sem hann yrkir, sjómaðurinn á auðæfi hafsins sem um útnesin flæðir, iðjuhöldurinn á afl vatnanna sem af fjöllunum falla og síðast en ekki sízt, fólkið í landinu skynjar það og skilur að hinn óráðni draumur framtíðarinnar birtist í brosandi barnsaugum æskunnar í landinu. Úr gömlum bföðum Vestur-Skaftafellssýslu 2. nóv. — ... Aðfaranótt 26. f. m. fauk skip, 6-æringur, í Vík og brotn- aði í spón, enda var þann dag og næsta dag ofsastormur. í veðri þessu eyðiagðist enn að nýju nokkuð af Meðallandi af sandfoki. Slýjar og Eystri- Lyngar, þar sem prestur okkar (séra Jón Straumfjörð) er enn til heimilis, sukku í sand, svo að skríða verður út úr húsdyrun- um, og gluggum verður ekki uppi haldið, svo að dimmt er í hús- um um bjartan dag. Jafnóðum og sandurinn er mokaður frá, hrynur hann aftur að, og hve- nær sem gustur er, kemur sama moldviðrið. Hygginn hundur Bóndi nokkur í Danmörku átti stóran og ljómandi fallegan hund. Honúm þótti vænt um hundinn, enda var hann af- bragðs fjárhundur. Hvert ein- asta kvöld kom hann heim með allt féð, og aldrei vantaði eina kind hvað þá meira. Kvöld eitt um páskaleytið kom féð heim, en hundurinn sást hvergi. Lengi var beðið eftir hundinum, og bónd- inn var öðru hvoru að ganga út og kalla á hann. Hann bjóst við að slys hefði komið fyrir hundinn. Snemma næsta morg- uns gengu bóndinn og unglings- piltur til þess að leita hunds- ins. Jörð var hvít af hrími og mjög kalt í veðri. Þegar þeir komu þangað, sem fénu var haldið til beitar, sáu þeir hvar hundurinn lá á jörðinni og dillaði rófunni. Þegar þeir komu þangað, hljóp hundurinn til þeirra, og hvað haldið þið að þeir hafi séð? Nýfætt lamb, sem móðirin hafði dáið frá. Hund- urinn hafði legið þarna alla nóttina og haldið á því hita, svo að það gæti haldið lífi. Lambið var bráðlifandi. Maðurinn klappaði gáfaða hundinum sín- um og bar lambið heim til bæjar. (Eftir 14 ára dreng).

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.