Heima er bezt - 01.05.1954, Síða 2

Heima er bezt - 01.05.1954, Síða 2
130 Nr. 5 Heima er bezt <&? Ibwö HEIMA ER BEZT . Heimilisblað með myndum • Kcmur út mánaðar- lega . Áskriftajjjald kr. 67.00 . Útgefandi: Bókaútgáfan Norðri . Ábyrgðarmaður: Albert J. Finnbogason . Ritstjóri: Jón Björnsson . Heimilisfang blaðsins: Pósthólf 101 Reykjavík . Prentsm. Edda h.f. Efnisyfirlit Bls. 131 Söngvari og stórbóndi, eftir Kristmund Bjarnason. — 135 Gangnastjóri greinir frá. Rætt við Jón Guðmundsson. — 139 Jökulsprungan lokaðist, eftir Bjarna Sigurðsson. — 141 Gömul harmsaga, eftir Guðmund G. Hagalín. — 145 í föðurgarði fyrrum, þula eftir Guðrúnu Auðunsdóttur. — 146 Kirkjublettur og kirkjulaut, eftir Eyþór Erlendsson. — 147 Lærðu að læra, eftir Olaf Gunnarsson. — 150 Fyrstí íslenzki kvenlæknirinn, eftir Kristmund Bjarnason. — 154 Fjallabúar, framhaldssaga, eftir Kristian Kristiansen. — 160 Myndasagan: Óli segir rjálfur frá. Smælki og margt fleira. „Vorboðinn ljúfi” (Forsíðumyndin). Eitthvert mesta yndi barna og unglinga á fögr- um vordegi er að finna hreiður með eggjum eða ungum, ekki til að ræna það heldur til að gleðjast og fagna. En þegar leitað er að hreiðri skógarþrast- arins íslenzka, dugir ekki að einblína á jörðina eins og í leit að hreiðrum annarra fugla, heldur verður að skyggnast um lim skógarins, og sé vel að góð, getur verið, að maður komi auga á hreiður- körfu í haglegri kverk, helzt þar sem tvær eða þrjár greinar mynda gott sæti við stofninn, eða stofninn klofnar, eins og myndin á forsíðunni sýnir. Þessa dagana eru íslenzku skógarþrestirnir ein- mitt við hreiðurgerð. Og eggin í flestum þrastar- hreiðrum eru 5—7 — ekki komin nema þrjú í hreiðrið á myndinni — alldökk, grænmóleit. Skógarþrösturinn er farfugl en þaulsætinn hér og vill helzt ekkert fara, ef vetur leyfir, og hefur hér oft vetursetu. Þrösturinn sýnir sig líka öllum farfuglum fyrr á vorum, seinni hluta marz og snemma í apríl. — Á vorin, seinni hluta sumars og á haustin er þrösturinn tíður gestur heima við bæi. Hann er „vorboðinn ljúfi, fuglinn trúr“, sem Jónas sendi kveðju sína með til stúlkunnar sinnar heima á íslandi. í byrjun maí leitar þrösturinn inn í birkiskógana. Velja hver hjón sér ákveðna landareign, oftast all- stóra, og ver bóndinn land sitt af hörku fyrir öðr- um þröstum, rekur „bóndann af næsta bæ“ á flótta, reyni hann að nálgast, enda mun hann hræddur um konuna. Síðan setzt hann á háa trjágrein og syngur hástemmd sigurljóð. Hreiðrið er vandað og haglega gert. Ungarnir koma úr egginu í byrjun júní og eru fullvaxta í ágúst. Þegar kemur fram í september, koma þrestirnir oft heim að bæjum og verða jafnvel töluvert ágeng- ir, þegar sverfur að. Bændum þykir koma þrastanna heim að bæ síðla sumars illur fyrirboði, því að þá muni rigninga eða hrets að vænta. Viti þrestirnir á sig illviðri sitja þeir hnipnir í limi trjánna í húsa- görðum eða leita skjóls í veggjarskotum. Þröstur- inn er veðurglöggur í bezta lagi. Á seinni árum hafa þrestirnir borið við að verpa i trjágörðum við bæi og einnig inni í kaupstöðum, svo sem í Reykjavík, jafnvel hægt að fá þá til að verpa í hreiðurkassa. Þrastahjón eru góðir gestir í garði. Þeim fylgir líf og yndi, kátína og „kvikur þrastasöngur“. (Ljúsm.: Þorst. Jósepsson). Myndin hér að neðan sýnir æðarkollu á hreiðri sínu. Æðarfuglinn er mesti nytjafugl íslands. Hann er félagslyndur og verpir í samfelldum byggðum, oft undir verndarvænd mannanna. Á myndinni hef- ur varpbóndinn búið sem bezt í haginn fyrir koll- urnar, jafnvel reist skjólvegg við hreiðrin. koll- urnar kunna vel að meta þetta og hreyfa sig lítt, þótt verndari þeirra og velgerðarmaður komi í heim- sókn. — Myndin er úr varplandi á Skipeyri í Skut- ulsfirði. J

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.