Heima er bezt - 01.05.1954, Blaðsíða 14

Heima er bezt - 01.05.1954, Blaðsíða 14
142 Heima er bezt Nr. 5 og að stundum setti hann þá rauðan. Fyrstu dagana varð það ekki séð, að Teitur bóndi veitti því neina athygli, hve konu hans virtist kært að vera í nánd við Ingjald og hve mjög augu henn- ar leituðu þangað, sem hann var. En dag einn tóku menn eftir því, að hann horfði brúnaþungur og hvasseygur á húsfreyju og hinn unga formann, enda höfðu þeim báðum fallizt hendur við verk sín, og stóðu þau svo sem frá sér numin og horfðu hvort á annað. Allt í einu kvað við frá Teiti hár og að því er virtist gáskakennd- ur hlátur, en síðan vatt Teitur sér við og gekk þangað, sem tvær af griðkonum þeirra hjóna voru að hrýgja fiski, sem orðinn var hústækur. Þá er menn voru almennt gengnir til náða þetta kvöld, hittust þeir fyrir dyrum úti In- gjaldur og Þóroddur, sem var elztur af formönnum Teits og hafði þekk t hann, frá því að hann var barn að aldri. Þórodd- ur mælti: ..Vara þú þig nú, garpurinn ungi frá Lambamúla. Verr hugn- aðist mér hlátur Teits bónda heldur en þó að maður sá hefði hreytt í þig stóryrðum og rekið þig heim sem rakka.“ Ingjaldur svaraði engu til, en gekk til búðar sinnar. Upp úr þessu spilltist veður, og var þá lokið fjöruferðum kvennanna á þessu hausti. Þegar skip höfðu verið sett ,í naust, kallaði Teitur bóndi In- gjald á eintal og mælti: „Mér hefur líkað vel við þig í hvívetna, Ingjaldur. Þú reyndist í vor röskastur allra minna há- seta, og þér hefur sem formanni farnazt ágæta vel. Þú ert góður stjórnari, jafnt í landbrimi sem á útsævi, og síðari hluta þessar- ar vertíðar hefur þú aflað bezt allra þeirra, sem hér sækja sjó, að undanskildum sjálfum mér og aflaklónni Þórði í Alviðru. Þú ert og hirðusamur um segl og farvið, og við öll verk ert þú hvort tveggja 1 senn, hraðvirk- ur og velvirkur. Þá sá ég það líka, þegar Bergur braut bát sinn í lendingu og þú vannst með mér að viðgerðinni, að þú ert smiður góður. Fýsir mig nú að njóta frekar verka þinna“ Ingjaldur svaraði: „Ekki hef ég hugsað mér ann- að hlutskipti en formennsku hjá þér, meðan ég eignast ekki sjálf- ur skip, en gj arnan hefði ég vilj - að ráða stærra fari en Mána bín- um, svo að ekki þyrfti ég að láta menn mína hanka upp löngu áð- ur en aðrir hugsa til landferðar." Teit setti hljóðan, og þagði hann drykklanga stund. Síðan brosti hann og sagði mjög reif- ur í máli: „Gott er, að ungir menn séu stórhuga, en líða mundu einhver ár, unz þú hefur bolmagn til að eignast fleytu, sem þér líki til róðra af Skagamölum. Hins veg- ar mun ég þegar á vori komanda sjá þér fyrir stærra skipi og nýrra en Mána litla .. Mundu systur þínar verða 1 föðurgarði í vetur?“ Ingjaldur leit til Teits spurn- araugum, en svaraði þó án þess að hiks eða undrunar kenndi í röddinni: „Svo mun víst.“ „Hvort mundi þess þá ekki kostur, að þú ynnir með mér að bátasmíði?" mælti Teitur. „Ég þarf að gera að bátum mínum og smíða nýjan, mikið skip og vel viðað.“ Ingjaldur þagði um hríð og var hugsi, en síðan mælti hann: „Ljá mun ég máls á þessu, en ekki er ég þess viss, að þú gangir að þeim kostum, sem ég set“ Teitur brosti á ný: „Lát mig heyra.“ „Þú skalt fá mér vist í her- bergi því, sem er í lofti smíða- hússins, enda hafi ég leyfi til að nota tæki þín, þegar ég er ekki að starfi í þína þágu.“ „Velkomið er þér þetta hvort tveggja,“ svaraði Teitur. „Þá eru hinir aðrir kostir,“ mælti Ingjaldur ennfremur. „Still nú í hóf,“ sagði Teitur. „Þó að þú sért lagtækur, ert þú lítt vanur skipasmiður, og tak- mörk eru því sett, hverju gjaldi ég vil greiða vinnu þína.“ „Frjálst er þér að neita,“ svaraði Ingjaldur. „En smíðað hef ég margar smáar fleytur og gefið sveinum á Ingjaldssandi, og gert hef ég upp bát föður míns. Þá hef ég gert að báti með Jóni, bónda á Villingadal, en hann mun ekki síður kunna til slíkra hluta en þú.“ Teitur var nú alltvíræður á svip, en mælti þó eigi fálega: „Heyra má ég hina aðra kosti þína.“ Ingjaldur sagði einarðlega: „Fá vil ég viðurgjörning sér- lega góðan, því að ég ætla mér ærinn starfa. Vinnu mína í vet- ur skalt þú greiða með völdu efni í kjöl, stefni og bönd, sem hæfa mundu í sexæring, og loks skalt þú lána mér efni í byrð- ing, siglur, stýri og stjórnvöl á slíkan farkost. Skal þetta greið- ast af hlutum mínum á næsta vori og hausti.“ Teitur hlýddi hugsi á orð In- gjalds, en sagði því næst hressi- legur í máli og bjarteygur: „Valinn maður ert þú til þess, sem ég ætla þér. Geng ég fúslega að kostum þínum, og kaupum nú þessu.“ Þeir tókust síðan í hendur og staðfestu þannig samning sinn. Ingjaldur fór nú heim, en brátt kom hann aftur út að Fjallaskaga og tók þegar til starfa með Teiti bónda. Hann vann af kappi ihiklu og reyndist með afbrigðum handlaginn, og svo hafði hann glöggt smiðsauga að Teiti þótti það vart einleikið um svo ungan mann og lítt æfð- an. Þá varð hann og hissa á starfsþreki Ingjalds, því að hann vann sjálfum sér á síð- kvöldum og oft fram á rauða nótt, — og hamaðist þá ekki síð- ur en að deginum. Matur var honum borinn í smíðahúsið, og var hann bæði mikill og góður. Fór húsfreyja oft til hans með matinn, og pískruðu hjúin um það sín á milli, að furðu oft færði hún honum aukabita eftir nátt- mál. Sögðu þau henni dveljast svo lengi, að hún hlyti að vera hneigð fyrir smíðar, þó að ekki væri það verk talið við hæfi kvenna. Ekki varð þess vart, að Teiti bónda þættu tortryggileg- ar ferðir konu sinnar í smíða- húsið, heldur heyrði fólk, að hann sagði við hana: „Þess vænti ég af þér, hús- freyja, að þú látir ekki hjá Þ'ða að bera vini vorum, Ingjaldi, náttverð mikinn og kjarngóðan, því að hann hefur ærinn starfa fyrir okkur og sig “ Fyrir jólin skar Ólöf húsfreyja klæði úr vönduðu og mjög vand- lega lituðu vaðmáli, saumaði þau

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.