Æskan - 01.03.1952, Síða 2
ÆSKAN
Riiverk
norsku stórskáldanna:
Alexander Kielland .... 12 bindi skinnb. kr. 405.00
Sig. Hoel 8 — — — 348.74
Sig. Christiansen 9 — — — 348.75
Amundsen 4 — — — 337.00
Norge Vort land 2 — — — 427.50
Sandel 6 — — — 295.00
Joh. Bojer 5 — — — 246.00
Asbjörnsen, ævintýr .... 2 — — — 126.50
Gabr. Scott 1 1 — — — 296.00
Sigr. Undset 10 ' — — 423.00
3 138.00
Sigbj. Obstfelder 3 — — — 136.25
Gulbrandsen 3 — — — 135.00
Det Norske folk 10 — — — 522.00
Dostojevsky 12 — — — 472.50
Arne Garborg 8 — — — 337.50
1 239.00
Björnson 5 — cherting — 140.70
Jonas Lie 5 — — — 140.70
Ibsen 5 140.70
Knut Hamsun 12 — — — 300.00
6 135.00
Bromfield 7 — — — 274.00
Oll þessi ritverk fást nú í Bókabúð Æskunnar, auk
ýmsra annarra. Sendum gegn póstkröfu.
Auk þess höfum við allmikið af einstökum norskum
bókum, þar á meðal hið svonefnda Heimilisbókasafn á
aðeins kr. 12.60 bókin í bandi.
Bókabúð ÆSKUNNAR, Kirkjuhvoli.
Frímerkjasafnarar!
Fyrirliggjandi:
Norsku Olympiufrímerkin ón. kr. 4.00 per. sett (3)
Finnsku íþróttamerkin 1945 — 6.00 — — (5)
ísland, flugfrímerki 1934, n. — 27.00 — — (6)
Island, Snorri Sturluson n. . — 11.00 — — (3)
Noregur, Snorri Sturluson n. — 2.80 — — (6)
— Alþjóðapóstsamband n. — 1.20 — — (3)
— Póstjubileum 300 ára n. — 2.50 — — (11)
— Osló 900 ára n.......... — 1.20 — — (3)
— Þjóðhjálpin 1946 n. . — 3.60 — — (4)
— pakki 100 tegundir . . — 12.00 — pakki
(Merki merkt ón. = ónotuð, merkt n. = notuð.)
Burðargjald reiknast að auki. Vörurnar sendast gegn
fyrirframgreiðslu eða póstkröfu. Fastir viðskiptamenn fá
þær með venjulegum kjörum.
Jón Agnars, Frímerkjaverzlun,
P. O. Box 356, Reykjavík.
Mér er minnisstæður siðastliðinn vetur. Hann er
að vísu minnisstæður fleirum en mér, vegna ó-
venjulegrar fannkomu hér á Suðurlandi. En þessi
vetur er mér sérstaklega minnisstæður vegna þess,
að ég lenti í smáævintýri, sem ég ætla að segja
ykkur frá.
Þetta var í siðastliðnum marzmánuði. Pabbi
hafði farið til útlanda, og nú var komið skeyti
frá lionum um það, að hann myndi koma á Iíefla-
víkurflugvöll á skírdagskvöld. En áður en pabbi
fór að heiman, lofaði hann oklcur bræðrum því,
að við mættum koma suður og taka á móti sér.
Undanfarnar vikur höfðu tiðum geisað stór-
viðri með fannkomu og vegir viða teppzt. Mömmu
var því um og ó að gefa okkur fararleyfi. Það varð
nú samt úr, að við fengum að fara, okkur til mikill-
ar ánægju. Ferðin suður geklc vel, þrátt fyrir þunga
færð. En við vorum nú samt svo lengi á leiðinni
suður, að flugvélin var lent á vellinum og pabbi
kominn inn í flugvallarhótelið. Litlu síðar skyldi
haldið heim. En þá kárnaði nú gamanið. Veður
hafði spillzt svo mjög á örskömmum tíma, að gjör-
ófært var fyrir bíla til Hafnarfjarðar. Við urðum
því að gista í flugvallarhótelinu um nóttina.
Daginn eftir var komið sæmilegt veður. Um
tíma leit út fyrir, að flugvél yrði send frá Reykja-
vík til að sækja strandaglópana og flytja þá til
Reykjavíkur frá Keflavíkurflugvelli. Við bræðurnir
vorum afar spenntir, því að við áttum auðvitað
að fá að fara með. En þetta fór öðruvísi, því miður.
Það varð sjóferð úr þessu. Rjörgunarskipið Sæ-
björg var statt undan Keflavík og var fengið tii
að flytja fólkið frá Keflavík til Hafnarfjarðar.
Okkur fannst ósköp mikill sjógangur, og við feng-
um óspart að kenna á honum, því að maginn
sagði fljótlega til sín. Heim komum við gulir og
grænir í framan af sjóveiki eftir þessa stuttu sjó-
ferð. Mikið vorum við fegnir, þegar við vorum
komnir upp á bryggju í Ilafnarfirði. Þella var sann-
arlega föstudagurinn langi.
22