Æskan

Árgangur

Æskan - 01.09.1962, Síða 5

Æskan - 01.09.1962, Síða 5
ÆSKAN hann til þess að vera duglegan að draga. Asnarnir tveir drógu líka a£ öllum kiöftuni, en þar sem þeir voru svip- aðir á stærð og álíka sterkir, hreyfð- ist vagninn ekki úr stað. „Hvað er nú að?“ spurði Mads og leit undrandi á Mikjál. „Nú dregur Gráni a£ öllum kröftum, en vagninn hreyfist ekki. hað hlýtur að vera vegna þess að hann Eyrnalangur hjálpar ekki til.“ „Þvert á móti,“ svaraði Mikjáll akveðinn. „Ég hef liorft á, hvernig Eyrnalangur leggur alla sína krafta í að draga vagninn, svo að vesalings dýrið er að springa. En athugaðu, hvort letinginn hann Gráni nenni 'iokkuð að hjálpa til.“ „Hvernig vogarðu þér að kalla hann Grána letingja?" hrópaði Mads. „Það er ekki til betri og iðnari asni á allri Mols.“ „Ertu kannski að halda því fram, ég skrökvi?" skrækti Mikjáll. »Gættu þín bara.“ »Já, gættu þín sjálfur,“ svaraði kfads og svo.......já, áður en tvær '"ínútur voru liðnar voru þessir fi°m!u vinir og nágrannar komnir í hörku áflog. En asnarnir tveir stóðu Þ°linmóðir og horfðu á sína skyn- s°mu húsbændur slá og skamma hvorn aOnan, þangað til fólk safnaðist að og þeir voru skildir að. „Það er Mikjáll sem er lygari og Svikari,“ skrækti Mads. „Hann Gráni Itl®n dregur af öllum kröftum, en Asnarnir tveir drógu af öllurn kröftum. vagninn er of þungur fyrir hann, en Eyrnalangur hjálpar ekki til — og hann er of latur til þess.“ „Nei, þetta er þveröfugt,“ hrópaði Mikjáll. „Hann Eyrnalangur minn erfiðaði sig nærri því í hel, en leting- inn hann Gráni nennti ekki að hreyfa sig.“ Þeir voru að því komnir að rjúka saman á nýjan leik. Áhorfendur skipt- ust í tvo hópa og hrópuðu liver upp í annan. Nokkrir héldu með Mads en aörir með Mikjáli, svo að allt útlit var fyrir, að út brytust almenn áflog. Þá kom til allrar hamingju ókunn- ur maður gangandi og hann spurði: „Hvað gengur á hér?“ 1 fyrstu heyrðist ekki mannsins mál og honum var ómögulegt að komast að, hvað um var að vera. Að lokum fékk liann þaggað niður í hin- um háværustu og fékk þá að lieyra íP1'll'HKBKBKBKHKBKB!BKBKHKBKBKBKBKHKBKBKBKBKBKBKBKBKBKHKBKH!HS-tt StærðfrœðingurÍTin tók blað og skrifaði á ]>að tölurnar 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7 og 9. „Segðu mér nú hverja af bessuin tölum ]iú skrifar verst,“ sagði hann. „Tvo,“ sagði ég, til að segja eitthvað. „Ágætt,“ sagði hann. „Marg- faldaðu 2 með 9, og síðan 12345679 með 18. Hvað kemur út?“ T • • O L U R Ég margfaldaði og útkoman var 222222222. „Kjóstu ]>ér hvaða tölustaf sem ]iú vilt af þcssum átta sem ég skrifaði i upphafi. Marg- faldaðu hann með 9 og marg- laldaðu síðan töiuna með öll- um tölustöfunum (12345679) ineð útkomunni. — og ])á muntu ajltaf fá út tölu ein- ungis með þeim tölustaf, sem þú kaust þér i upphafi.“ ’H’H:HKBKHCBKHKBKBKBKHKHKBKBKBKBKBKBKBKBKHKBKHKBKBKH>-ÖÖtKBKHKHS málavexti. Hann horfði á vagninn, sem asnarnir voru spenntir fyrir hvor á sínum enda, og hann hristi höfuðið og hló. „Þið hafið báðir rétt fyrir ykkur og á röngu að standa um leið,“ sagði liann. „Gráni togar af öllum kröft- um, en það gerir Eyrnalangur líka. Hvorugur þeirra er latur.“ „Já, en hvers vegna hreyfist vagn- inn þá ekki?“ spurðu Mikjáll og Mads í senn. „Af því að asnarnir toga hvor í sína áttina," sagði maðurinn og leysti Eyrnalang frá vagninum. Síðan spennti liann asnann fyrir við lilið Grána og sagði: „Reynið nú að aka áfram.“ Mads steig upp í vagninn og hott- aði á asnana. Öllum til mikillar undr- unar rann vagninn nú greitt a£ stað. Mikjáll liljóp á eftir. Hann vildi sitja við hlið nágranna síns, því nú voru allir farnir að hlæja að þeim. „Sjá þessa fjóra asna,“ sagði maður- inn og lagði af stað. „Það eru aðeins tveir asnar,“ sagði einn viðstaddra undrandi, „Gráni og Eyrnalangur.” „Tja, mér finnst Mikjáll og Mads vera öllu meiri asnar,“ sagði ókunni maðurinn og síðan hraðaði hann sér á brott. Endir. 169

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.