Æskan - 01.09.1962, Qupperneq 6
■lyf orguninn eftir: Brottfarardagur-
-f- inn runninn upp, fjórði ævin-
týradagurinn í Kaupmannahöfn, og
nú skyldi tíminn notaður til hins
ýtrasta, því að um kafíileytið mundi
„Faxinn“ hefja sig til flugs og stefna
til íslands stranda. Gísli nefndi það
við morgunmatinn, að hann ætti eft-
ir að kaupa fáeina hluti. Hann átti
eftir að kaupa gjafir og smáhluti
handa ættingjum sínum, pabba og
mömmu, ömmu og afa, og fleiri góð-
um vinum. Þeir voru að vísu kunn-
ugir verziununum á Strauinu eftir
gærdaginn, en svo var ákveðið að fara
í nýtt vöruhús, Anva, sem liggur við
Vesterbrogade. Anva var áður vel-
þekkt sem veitinga- og skemmtihús,
hét National Scala uppi, en niðri hét
það Holberg Haven. Allir íslending-
ar, sem til Hafnar komu fyrir stríð og
reyndar líka á fyrstu árunum eftir
stríð, komu á National Scala. Þarna
hittust landarnir, ræddu ýmislegt að
heiman, skemmtu sér o. s. frv. En
National Scala hætti, og nú er komið
þarna mesta fyrirmyndar kaupfélag,
sem heitir eins og fyrr var sagt Anva.
Eitt af því, sem Gísli átti eftir að
kaupa, var fótbolti. Hann hafði keypt
skóna daginn áður og hvaða vit var í
því að eiga skó og engan bolta. Fót-
boltarnir voru á vísum stað og það
gekk greiðlega að kaupa fótbolta núm-
er fimm. Eftir það keyptu Gísli og
félagar hans minjagripi, eftir því sem
þeim þótti ástæða til, og út úr Anva
170
fóru þeir klyfjaðir pinklum og böggl-
um. Eins og áður er sagt er Anva við
Vesterbrogade og á Vesterbrogade 6c
er Flugíelag íslands til húsa. Þeir
fóru með pakkana þangað og báðu
eina afgreiðslustúlkuna að geyma þá,
þangað til þeir kæmu með töskurnar
sínar neðan af hótel Calton. Síðan
var farið heim á gistihúsið. Allir
hlutirnir, sem keyptir höfðu verið í
borginni til minningar um þessa dá-
samlegu daga, voru settir niður í
töskur. Töskunum var síðan lokað og
einkennisklæddur burðarmaður gisti-
hússins tók þær og flutti niður í lyft-
unni og brátt stóðu þeir félagar í
fordyrinu. Starfsfólkið var kvatt með
mestu virktum og síðan héldu þeir á
GÍ SLI
Hér lýkur frásögn-
inni af hinni œvin-
týraríku ferð Gísla
til Danmerkur með
Flugfélagi Islands.
brott í leigubifreið, sem flutti þá upp
að skrifstofu Flugfélags íslands á
Vesterbrogade. Eftir nokkur uxnsvif
þar kvöddu þeir starfsfólkið, sem koiu-
ið var saman til að kveðja þá félaga og
óska þeim fararlxeilla. Birgir, Ove,
Áslaug, Gunnar og öll hin stóðu og
veifuðu, er þeir félagarnir fóru áleiðis
til móttökustöðvar flugíélaganna ‘l
neðstu hæð Royal Hótels þar skamnxt
frá. Royal Hotel, hið konunglega
gistihús, liggur í aðeins fárra metra
fjarlægð frá skrifstofu Flugfélags ís'
lands í Kaupmannahöfn. Þetta ei
liæzta gistihús Kaupmannahafnai-
borgar. Byggingu þess var lokið
snemma á síðastliðnu ári og margn
erlendir ferðamenn keppast um að fá
að búa }Dar. Neðsta hæðin er eins og
áður er sagt móttökustaður flugfal'
þega. Gengu skrautklæddir dyraveið-
ir í gráum frökkum með gráa pipu‘
hatta um sali, og var Gísla starsyn1
á þennan búnað. Eftir að hafa afhenf
töskur sínar og farseðla, var þeun
vísað út í stóra bifreið er síðan flutti
þá út á Kastrufi-flugvöll.
Það var afráðið áður en farið vai 1
þessa feið að Grímur yrði eftir 1
Kaupmannahöfn. Eins og komið hef
ur fi'am i frásögninni, var hann mj°g
kunnugur borginni, dvaldi þar lang'
dvölum sem barn og unglingur og a
þar fjölda vina og kunningja. Er þeir
komu til Kastiup-flugvaliar aíhentu
Jxeir Gísli og Sveinn fanniða sína,
kvöddu Grím með virktum og gengu
runninn upp.