Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.09.1962, Qupperneq 8

Æskan - 01.09.1962, Qupperneq 8
0 Páll og Nancy hafa farið langt inn í skóginn til að finna Óskasteininn. Lesið nú um óskir þeirra. Þau sáu stórt rjóður. Það var þétt- vaxið grasi og blómum. Sólin skein í heiði, og börnunum fannst næstum hátíðlega kyrrt og fallegt. í miðju rjóðrinu var heljarmikill egglaga steinn. Hann hvíldi á öðrum miklu minni og leit út fyrir að vera ákaf- lega þungur. Þau voru viss um, að þetta var Óskasteinninn. Þau gengu hægt að steininum og Páll lagði hönd- ina varlega á hann, fremur til að strjúka hann en af því að hann ætlaði að hreyfa hann. En meira þurfti ekki til. Steinninn fór strax á hreyfingu. „Sjáðu, hann dettur!“ hrópaði Nancy. En steinninn datt ekki. Hann valt aftur í sama farið, reri svolítið og lá síðan aftur kyrr. „Og ég snerti hann varla,“ sagði Páll undrandi. „Hvað ef ég hefði nú ýtt fast við honum?“ „Hann hefði samt ekki oltið nið- ur,“ svaraði Nancy. „Ungfrú Grale sagði mér, að jafnvel fílefldir karl- menn gætu ekki velt honum niður — og því trúi ég vel — annars væri steinn- inn ábyggilega ekki á sínum stað leng- ur.“ Það var nokkuð til í því, fannst Páli, og hann undraðist hvernig steinninn var eiginlega þarna kominn. „Eigum við ekki að óska okkur einhvers?" spurði Nancy óþolinmóð. „Jú, hvernig förum við að því?“ „Við leggjum bæði hendurnar á steininn, þannig að hann rói dálítið, og segjum um leið óskir okkar.“ Þau voru í hátíðlegu skapi, þegar þau loks gerðu tilraunina. „Við óskum — við óskum . . .“ byrj- uðu bæði börnin í senn ... „að við finnum Chow ... og...“ 172 „ .. . og að Eiríkur komist fljótt á fætur,“ hélt Páll áfram. „ ... og að sumarfríið okkar verði skemmtilegt,“ botnaði Nancy. Þau þögnuðu bæði. Það var víst varla viðeigandi að óska sér meira. Og í sama vetfangi heyrðu þau greinilega hund gelta. ÓSK RÆTIST. Hvað var þetta? Börnin stóðu kyrr og lilustuðu. Skyldi þetta hafa verið Chow, eða var þetta einhver ókunnur hundur? „Hljóðið kom héðan frá vinstri," sagði Páll og tók á rás eftir mjóum stíg, sem lá inn í skóginn. „Bíddu eftir mér, ég vil ekki vera ein,“ hrópaði Nancy og hljóp á eftir bróður sínum. Það fór allt í einu um hana ónotalirollur. Hún minntist orða ungfrú Grale, er hún sagði, að steinn- inn hefði ef til vill verið fórnarstalhn' í fornöld. Þau hlupu nokkurn spöl, og nániu síðan staðar og lögðu við hlustir. Ju> nú heyrðist hundgáin aftur. „Þetta er Chow,“ sagði Páll. Hann var nú alveg viss um, að þau myndu finna litla pekinghundinn, og hann kærði sig ekki um, að þau færu langt inn í skóginn, sem þau rötuðu ekkert um. Þau stönzuðu oft til að hlusta og heyrðu annað slagið geltið, sem hvatti jjau áfram. Áður en varði stóðu þau fyrir frain- an lítið kot og þaðan barst hundgáin- Páll gekk djarflega fram og drap á dyr. Enginn gegndi, en inni íy111 heyrðist ákaft gelt. Nancy gægðist innum glugga. Síðan sneri hún sér að Páli og sagði von- svikin: „Páll, þetta er alls ekki Chow, held- ur lítill, svartur hundur. Ég veit ekki hverrar tegundar." Páll tók í snerilinn og hurðin opn- aðist. í sama vetfangi stökk lítill, svartur " '7 "" „Við óskum — við óskum ...“ byrjuðu bæði börnin í scnn.

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.