Æskan

Årgang

Æskan - 01.09.1962, Side 17

Æskan - 01.09.1962, Side 17
ÆSKAN og yfir borðinu var lítill spegill í ramma úr ostruskelj- um. Kalkaðir veggirnir voru snjóhvítir, og litla rúmið var eins hreinlegt og snoturt og bezt varð á kosið. Það eina, sent mig furðaði á, var, að þarna var mjög sterkur þefur af fiski og hurnri, þó að við værum kipp- korn frá sjónum. Ég spurði Peggotty, hvernig á því stæði, og þá sagði hún mér, að bróðir sinn væri fiski- og humrakaupmaður og að hann geymdi fiskinn og humrana í klefa í bátnum. Þegar við höfðum litazt um í húsinu, var okkur boðið að borða, og við fengum soðnar lúrur með bræddu smjöri og kartöflum. Það var ágætis matur, og borðaði ég mig vel sáddan. Meðan við sátum að snæðingi, kom herra Peggotty heim. Hann var hár maður og nokkuð feitur, góðlegur og með mikið skegg. Hann rétti okkur höndina, kallaði Peggotty telpuna sína og sagði við mig: „Það gleður mig að sjá yður, og þér eruð velkominn hingað. Við erum skikkanlegt almúgafólk." Þegar hann hafði heilsað okkur, fór hann út úr herberg- inu til að þvo sér úr volgu vatni, því að liann sagðist aldrei ná af sér óhreinindunum, ef vatnið væri kalt. Litlu síðar kom hann aftur, og þá tók ég eftir því, að hann var blóðrauður á hörund, svo að ég hugsaði, að það væri eins með hann og humrana: Þeir voru svartir, þegar J)eir komu í heita vatnið, en rauðir Jjegar Jreir komu upp úr því. Þegar við höfðum drukkið teið og sátum svo notalega og viðkunnanlega þarna inni, fannst mér þessi litla stofa dýrlegasta dagstofa, sem hægt væri að liugsa sér. Emilía litla, sem hafði verið dálítið feimin til að byrja með, var nú orðin hin kumpánlegasta við mig og sat hjá mér á litlu setkistunni í skotinu við arininn. Peggotty sat og var að sauma, og bróðir hennar reykti pípu sína. Það Var svo skemmtilegt og vistlegt Jjarna, að mig fór að langa til að kynnast þessu ágæta fólki betur. „Herra Peggotty," sagði ég. „Já,“ anzaði liann, „hvað þóknast yður?“ „Hvers vegna hafið Joér látið hann son yðar heita Ham?“ „Ég hef alls ekki gefið honum þetta nafn!“ „Ekki Joað. . . ? Hver hefur þá gert það?“ „Það hefur hann faðir hans gert.“ „Eruð þér þá ekki faðir hans?“ „Nei, Joe, bróðir minn, er faðir hans.“ „Er hann dáinn?“ spurði ég eftir stutta stund. >,Drukknaður!“ anzaði Peggotty. „En hún Milla litla þarna. . .. Er hún ekki dóttir yðar, herra Peggotty?" „Nei, Tom, mágur minn, er faðir hennar." „Er hann líka dáinn?“ spurði ég liátíðlega. ÆSKAN er stærsta og ódýrasta barnablaðið. Flytur fjölbreytt efni við liæfi barna og unglinga, svo sem skemmtilegar framhalds- sögur, smásögur, fræðandi greinar og margs konar þætti og þrjár myndasögur sem eru: Ævintýri Litla og Stóna, Kalli og Palli og Bjössi bolla. Síðasti árgangur var 244 síður og þar birtust yfir 500 myndir. Allir þeir, sem gerast nýir kaupendur að Æskunni, og borga yfirstandandi árgang, 55 krónur, fá í kaupbæti HAPPA- SEÐIL ÆSKUNNAR, en vinningar lians verða 12. — Þeir eru: 1. Flugferð á leiðum Flugfélags íslands hér innanlands. 2. Tiu af útgáfubókum Æskunnar, eftir eigin vali. 3. Innskotsborð. 4. Tiu af útgáfubókuin Æskunnar, eftir eigin vali. 5. Pennasett, góð teg- und. 6. Ævintýrið um Albert Schweitzer. 7. Aflraunakerfi Atlas. 8. Eins árs áskrift «ð Æskunni. 9. Fimm af útgáfubókum Æskunu- ar, eftir eigin vali. 10. Ævintýrið um Edison. 11. Fimm af útgáfu- bókum Æskunnar, eftir eigin vali. 12. Eins árs áskrift að Æskunni. Ekkert barnaheimili getur verið án ÆSKUNNAR Ég undirrit......... óska að gerast áskrifandi að Æskunni og sendi hér með áskriftargjaldið, kr. 55.00. Nafn: ............................................................ Heimili: ......................................................... Póststöð: ............................................ 181

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.