Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.09.1962, Qupperneq 20

Æskan - 01.09.1962, Qupperneq 20
ÆSKAN staðar fyrir utan húsið okkar, flýtti ég mér niður úr vagninum og hljóp grátandi af gleði inn til þess að faðma móður mína að mér. En í yztu stofunni var engin lifandi manneskja nema ókunnug vinnukona. „Heyrðu Peggotty," sagði ég skelkaður. „Er hún mamma ekki komin heim?“ „Ójú, hún er komin, Davíð minn. . . . En bíddu við, ég ætla að segja þér nokkuð.“ Og síðan fór Peggotty hægt og hátíðlega með mig út í eldhúsið, og þar tyllti hún sér niður og setti mig í kjöltu sér. „Mamma er þó ekki dáin?“ spurði ég með augun fló- andi í tárum. „Nei, nei, væni minn, ... en ... ja, ég hefði átt að segja þér það fyrr, Davíð minn, en ég gat það ekki! ... Þú ert búinn að eignast nýjan föður!“ „Nýjan föður?“ Það fór titringur um mig allan. „Já, Davíð minn, „komdu nú og heilsaðu upp á hann.“ „Nei, ég kæri mig ekkert um að sjá hann.“ „En móður þína þá? Viltu ekki heilsa upp á mömmu?" Ég lét undan, og Peggotty opnaði dyrnar að viðhafnar- stofunni og ýtti mér inn fyrir. Þar sátu þau móðir mín og herra Murdstone við arin- inn. Móðir mín flýtti sér að standa upp til að fagna mér, en Murdstone aftraði henni. „Svona, Klara mín góð, vertu nú stillt! Mundu það, sem ég hef sagt þér, og vertu stillt! Jæja, hvernig líður þér, Davíð?" Ég rétti honum höndina, og er ég hafði staðnæmzt andartak, gekk ég til móður minnar og kyssti hana. Hún kyssti mig líka, og síðan settist hún aftur í stólinn sinn. Svona móttökur hafði ég aldrei fengið áður, og ég skildi vel, að móðir mín þorði ekki að sýna mér meiri ástúð en þetta. Undir eins og ég sá mér færi, læddist ég út úr stofunni og fór upp í svefnherbergið, en þar var þá allt orðið gerbreytt, og ég átti að sofa í öðru herbergi langt þaðan. Síðan fór ég aftur niður og labbaði nú um allt húsið til að sjá eitthvað, sem væri eins og það hafði verið áður. Mér virtist, að garðurinn bak við húsið væri það eina, sem var óbreytt. En þegar ég kom út í garðinn, kom ókunnur hundur þjótandi út úr hundabyrginu og ætlaði að bíta mig í fæturna. Hann var svo svartur og ófrýnn, að mér sýndist hann bara vera líkur honum nýja föðui' mínum! FJÓRÐI KAFLI. Ég fell í ónáð. Mér leið eins illa og nokkru barni getur liðið, og þeg- ar ég konr aftur upp í herbergið mitt, lagðist ég fyrir 1 rúminu og breiddi upp yfir höfuð. Ég lá lengi grátandi og grúfði andlitið í höndunum, en loks féll ég í svefn, og þá gleymdust allar áhyggjurnar. Seinna um daginn vaknaði ég við það, að togað var i ábreiðuna, og þegar ég opnaði augun, stóðu þær móðu mín og Peggotty við rúmið mitt. „Heyrðu, Davíð minn, hvað er að þér?“ spurði móðn' mín. Mér fannst þetta nú vera skrítin spurning, og uiö leið og ég sneri mér til veggjar, anzaði ég stuttur í spuna: „Ekkert!“ „Æ, Davíð, elsku litli drengurinn minn.“ Móðir mín tók mig og ætlaði að reisa mig upp, en ég ýtti höndunum á henni frá og faldi tárin í rekkju- voðinni. „Þetta er Jrér að kenna, Peggotty," sagði móðir mín grát- andi. „Það er ég viss um! Það ert Jrú, sem hefur æst hann upp á móti mér!“ Aumingja Peggotty fórnaði höndunum og sagði með titrandi röddu: „Guð fyrirgefi yður, frú Copperfield! Bara þér iðrist þess aldrei, sem þér eruð að segja núna.“ „Ó, ég held ég missi vitið," sagði móðir mín áköf- „Það er hræðilegt, að þið skuluð vera svona upp á móti mér og það meira að segja á hveitibrauðsdögunum mm- um. Davíð, ólukku strákurinn Jrinn, og þú Peggotty> skömmin þín!“ í þessum svifum kom Murdstone. „Heyrðu, elsku Klara mín. Hvað er nú á seyði? Ertu búin að gleyma því, sem ég sagði við þig? Svona, stillt nú, Klara. Vertu stillt!" KiiKHKBKBKHKBKBKHKHKBKHSlKBKHKHKBKHKBKHKHKBKBKHKHKHKHKHKHKHKlKHKBKHKBKHKHKBKBKBKHlBKBKHKtÚ* HEILABROT. Svör: 1. Karen lagði strax 2 tieyringa og cinn 5 eyring á borðið og bað um ís, en hinar voru báðar með 25 eyringa. 2. Fyrstu verðlaun voru 60 kr. 3. 780. 4. Dómariim var rangeygður. * — Er ekkert baðhús bér i bænum? — Ég veit það ekki. Ég hef ekki átt heima hér nema í átta mánuði. Nasreddin Vilji hans Nasreddiu átti stóran uxa, og var svo breitt í milli horna, að maður mátti sitja þar. Oft datt lionum i liug, að gaman væri að setjast á milli liorna uxans, en sá þó jafnfi'amt, að það gæti vcrið hættuspil. Einu sinni lá uxinn með aug- un aftur, jórtrandi í sólskininu. Nasreddin fannst sem ekki mundi bjóðast betra tækif®rl’ læddist að uxanum og settist milli horna bans. Uxinn spratj þegar á fætur, kastaði byrðim'1 af sér, og iá nú Nasreddin ]>ar’ meiddur og illa leikinn. KoHa bans hljóp grátaTidi til og hu{í<'il mann sinn dauðan. Þegar Nasreddin kom til sjálfs sin aftur, ieit hann upP og mælti: Hljóðaðu ekki sVona kona! Reyndar hef ég iuelt mig mikið, en ég hef konii' vilja mínum fram.“ 184

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.