Æskan - 01.09.1962, Blaðsíða 23
SKRÝTLUR
— Pabbi minn, ósköp sé ég
oftir nð liafa linuplað eplunum
í gær.
— Nú, drengur minn, er sam-
vizkan ekki í góðu iagi hjá þér?
— Jú, hún er það, en ekki
maginn.
▼
— Siggi minn, réttu nú
frænku þinni liöndina. Og hvað
scgir maður svo, þegar elsku
frænka kveður?
— Guði sé lof að þessu er
lokið.
T
— Hvers vegna hleypurðu
svona, Siggi minn?
— Ég er að afstýra því, að
tvcir strákar fari að fljúgast á.
— Hverjir eru það?
— Hann Tommi og ég.
▼
Halldór litli var ákaflcga mál-
óður og faðir lians hrýndi fyr-
ir lionum að þegja, að minnsta
kosti meðan verið væri að
borða. Svo var það einu sinni
yfir horðum, að Halldór virtist
eiga hágt með að sitja á sér
að segja eitthvað, svo faöir
lians spurði liann livað væri að.
— Eru kálormar góður mat-
ur? spurði Halidór þá.
— Nei, þeir eru versta óæti,
drengur minn. Hvcrs vcgna
spyrðu að því?
— Af þvi að ég sá kálorm á
salatinu, sem þú varst að gleypa
núna.
▼
„Guði sé lof“
Ungur, taugaóstyrkur maður,
sem lengi haf.ði verið atvinnu-
laus, féklc loks vinnu í gler-
vöruverzlun. Hann hafði ekki
unnið þar nema nokkra daga
þegar honum varð það á að
Urjóta stóran vasa. Verzlunar-
stjórinn hoðaði hann á fund
sinn og sagði honum, að til-
tekin upphæð yrði dregin af
kaupi hans i hverri viku þang-
að til hann hefði að fullu greitt
Vasann.
,,Hvað kostaði hann?“ spurði
Pilturinn.
„Fimmtán þúsund krónur,“
sagði verzlunarstjórinn.
„Guði sé Iof,“ sagði pilturinn
„ég hef þá loltsins fengið fasta
atvinnu!“
Þessi litli snáði, Benjamin
Webb, 4 ára, hefur orðið efni
fyrir blöðin £ London, fyrir að
ríða litlum asna til barnaheim-
ilisins á hverjum morgni.
4
John Kennedy, 18 mánaða
sonur forseta Bandaríkjanna, er
oft kallaður krónprins Ame-
ríku. Hér stendur hann uppi í
vagninum sínum til að fagna
móður sinni.
ÚR
ÖLLUM
ÁTTIIM
Hér sjáið þið hvar fíllinn
„Boy“ hefur tekið sér sæti við
borðið á móti eigandanum, og
bíður eftir að honum sé borinn
drykkur á borð.
4
Hér er stærsta kona heims.
Hún er 2,32 m á hæð. Hér kem-
ur hún til Vínarborgar, en þar
tók minnsti borgari Austurríkis
á móti henni. Hann er 99 cm á
hæð.
►
Hér séstBrigitta Bardot með
nýjasta sumarhattinn og nýj-
ustu hárgreiðsluna, eftir því
sem erlend blöð herma.
Elvis I’resley var nýlega á
Ifawaii. Einn daginn brá ha
sér á fiskveiðar, og er
annað að sjá á myndinni, <
a.ð hann hafi staðið sig vel
þessu nýja hlutverki.
187