Æskan

Árgangur

Æskan - 01.09.1962, Blaðsíða 25

Æskan - 01.09.1962, Blaðsíða 25
ÆSKAN 1. Hvort er Kyrrahafið cða Atlantshafið blárra? En saltara? 2. Hvaða málm hagnýtti maðurinn sér fyrstan allra málma? 3. Ifvaða tónskáld er kallað faðir sinfóníunnar? 4. Hvað heitir lengsta á i heimi? 5. Hver kom fyrstur fram með þá hugmynd að jörðin væri hnöttótt? 6. Hvort hefur nashyrningur- inn hófa eða klaufir? 7. Hvað er ein engjadagslátta margir hektarar? 8. Er ncfnarinn fyrir neðan eða ofan strik i hroti? 9. Getur fiðlutónn brotið gler? Svör er að finna á bls. 171. KBKHKHKBKBKBKBKBKBKHJ litla bjó sér til hjólavagn. Skipulag. Við lifum á timum gernýt- ingar og skipulagningar á öll- um sviðum. Skipulags- og ger- nýtingarsérfræðingar eru menn dagsins. Ekki eru þeir ])ó alls staðar jafnvel séðir. Einn slík- ur sérfræðingur kom í verk- smiðju. Tveir starfsmenn verk- smiðjunnar komu sér saman um, að þeir skyldu ekki anza l>essu nýmóðins filiti. Sérfræð- ingurinn kom til annars þeirra og spurði hann hvað hann gerði. „Ekki handtalt," svaraði mað- urinn. Sérfræðingurinn skrifaði það i vasabók sina. Svo spurði liann hinn manninn sömu spurning- ar. „Ekki handtak,“ svaraði liann líka. Aftur var skrifað í vasabók- ina. Um leið og sérfræðingur- inn fór, hristi liann liöfuðið og sagði: „Tveir menn, sem vinna sama verlcið! Þvi verður að hreyta.“ * Reikningsþraut. Sveinn ætlaði að kaupa nokkra kjúklinga al' Jóni og þegar hann spurði hvað þeir ættu að kosta, ])á sagði Jón: „Af því að við erum vinir, þá skulu þetta verða reyfarakaup. Þú horgar mér jafn margar krónur fyrir hvern unga og ungamir eru margir, sem þú kaupir.“ Það þótti Sveini allt of dýrt; hann vildi fá ungana cinni krónu ódýrari. Seinast kornu ]>eir sér saman um, að Sveinn skyldi fá hverja hænu einni krónu ódýrari, eu hvcrn liana einni krónu dýrari cn Jón vildi fyrst fá. Sveinn keypti helm- ingi fleiri hænur en hana og græddi á þessu þrjár krónur. Hve marga kjúklinga keypti liann? HEILABROT 1. Þrjár litlar telpur komu ])ar að, sem is var til sölu. „Eg ætla að fá ís,“ sagði Hanna og lagði 25 eyring á borð- ið. „Á það að vera 10 aura, 15 eða 25 aura ís,“ spurði afgreiðslustúlkan. „Ég ætla lika að fá ís,“ sagði Gyða og lagði 25 eyring á borðið. Afgreiðslustúlkan spurði aftur „hvort á það að vera 10, 15 eða 25 aura is.“ Karen var siðust að komast að afgreiðsluhorðinu, og hað um is. Hún fékk strax af- greiðslu, og stúlkan rétti lienni 25 aura ís, og spurði hana ekki eins og hún lvafði gert við ]iær Hönnu og Gyðu. Hvernig stóð á því? 2. Á skiðamóti fengu 6 þeir heztu peningaverðlaun, sem til samans voru að uppliæð kr. 285.00. En þó var upp- hæðinni sliipt þannig, að sá fyrsti fékk 5 kr. meira í lilut en sá næsti. Sá fékk aftur 5 kr. meira en hinn þriðji og þannig koll af kolli. Hvað voru fyrstu verðlaunin há? 3. I'erðamaður nokkur kom eitt sinn i borg, þar sem liann spurðist fyrir um fjölda ibúanna. Hann fékk þetta dularfulla svar: Ef það væru 1% fleiri hús en nú eru að frádregnum 80, væru húsin jafnmikið yfir 1000 og þau nú eru undir þeirri tölu. Hvað voru húsin mörg? 4. Þrír ákærðir stóðu fyrir dómaranum. „Játið þér sekt yðar,“ spurði dómarinn hinn fyrsta þeirra. „Nei,“ svaraði annar. „Þér verðið að bíða þar til röðin kemur að yður“ sagði dómarinn við hann. „Það geri ég líka,“ sagði sá þriðji. Hveraig gat staðið á ]>ví, að þetta gekk svona einkennilega fyrir sig? Svör er að finna á bls. 184. Með glöðu hjarta. Faðir liafði gefið syni sinum einn tveggjakrónupening og einn krónupening. Tveggja- krónupeninginn átti hann að láta í söfnunarbaukinn í kirkj- unni, en krónupeninginn mátti henn eiga sjálfur. Eftir mess- ' ra. spurði faðirinn soninn, ’ yort hann hefði látið tveggja- krónupeninginn í baukinn. „Nei, pal)bi,“ sagði snáðinn. „Ég lét krónupeninginn, ])vi að presturinn sagði, að við ættum alltaf að gefa af glöðu hjarto, og ég gaf krónupeninginn af miklu glaðara lijarta en tveggja- krónupeninginn." 189

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.