Æskan - 01.04.1986, Blaðsíða 21
EFNI FRÁ LESENDUM
nef ■■-í"uuiiii rurpuraregn og sam-
t^ÍHninin P'°tU st°^ Prince UPP á stjörnu-
fyr ta Varð þó þannig og árið 1978 kom út
Tvö a. re‘öskífan sem ber heitið For You.
vins af henni komust víðast hvar inn á
Snftæ al'sta en það voru lögin For You og
°« and Wet.
l'ann ^essa tyrstu plötu sína var talað um
WonHSem undrabarn eða arftaka Stevie
einf i ?rs' korn svo ut P*ata sem hét
Y0llr te§a Pnnce og lagið I Wanna Be
la„ar ^0Ve varð eitt tuttugu vinsælustu
ko^031 Bandaríkjunum. Dirty Mind
fór e-Ut og var vel tekið en lagið Sister
prjn lttuvaö fyrir brjóstið á útvarpsfólki og
í u.6 Var gagnrýndur fyrir að vera of klúr
extagerð.
aða!ntr°VerSy’ sem kom út 1981, fékk svip-
fá ®agnrýni en Prince lét það ekkert á sig
hj0i rið kom út platan 1999 og þá fóru
Cor;n ntt a® snúast fyrir alvöru. Little Red
lögj ette ^onist á skrá yfir 10 vinsælustu
v'nna° a' novernóer 1983 byrjaði Prince að
l^ajn a° fyrstu kvikmynd sinni, Purple
ag ’ ^ern frumsýnd var fyrir ári. Má segja
hafj e° Þessari mynd og samnefndri plötu
inn f nnce st°kkið upp á stjörnu- himin-
verj.•, UrP*e Rain leikur hann aðalhlut-
um ^ °g fjallar myndin reyndar aðallega
the\yeSSU art k°m sv° nt platan Around
ejnn °rtct tn a Day. Núna er hann talinn
n'hj. atTastamesti tónlistarmaður Banda-
ár |lnna °g stefnir að því að slá öll met í
see artn hefur meira að segja heitið því að
bara 6tUr en hfichael Jackson. Og þá er
a° sjá hvernig fer.
4>'ÍS
Trítlurnar tvær
Þessi saga er um kettina okkar sem
báðar hétu Trítlur. Önnur var brún að
lit með ofurlitla doppu á einni lopp-
unni. Hin var hvít með svörtum flekkj-
um.
Nú hefst sagan um hvernig ég fékk
þær.
Ég fór niður í búð á Skagaströnd en
þar átti ég heima. Þá hitti ég Amý,
konu Hallbjörns kántrý, sem afgreiddi
þar. Bauð hún mér kettling mánaðar-
gamlan sem ætti að lóga. En þau hjón
áttu læðu sem nýlega hafði gotið.
Öllum heima leist vel á að fá kött og
var það því einróma samþykkt. Kisa
litla var látin heita Trítla. - Eftirlætis
svefnstaður hennar var rúmið hans
Óskars bróður og þar svaf hún oftast.
Hún borðaði fisk og ekkert annað.
Trítla hafði þann skrítna ávana að hún
lapti úr krananum og gerði það alltaf
þegarhún var þyrst.
Einu sinni fór hún í pössun á meðan
við vorum í burtu og var þá kettlinga-
full. Á meðan við vorum fjarverandi
átti kisa 3 kettlinga sem dóu allir
skömmu eftir fæðingu. — Um ári síðar
átti hún 6 kettlinga, þeir lifðu en hún
dó. Trítla var jörðuð í garðinum okkar
við mikla athöfn og fjölmenni. Allir
reyndu að skreyta leiði hennar eftir
bestu getu.
Einn af kettlingum Trítlu var látinn
lifa. Kisa ömmu minnar, Snotra, einn
besti köttur sem ég veit um, tók litla
kettlinginn að sér og fóstraði hann
upp. — Einn dag álpaðist Trítla 2. upp
í flutningabílinn hans pabba og dó dag-
inn eftir úr gaseitrun hálfs árs gömul.
Var hún jörðuð við hliðina á mömmu
sinni.
Ég fæ alltaf tár í augun er ég minnist
þeirra.
Valdimar Númi Hjaltason
Frásögnin barst Æskunni fyrir alllöngu
en hafði mislagst. Höfundur er beðinn vel-
virðingar.
Spánarferðin
Pabbi og mamma höfðu ákveðið að
fara til Spánar með okkur krakkana í
sumarfrí. Allir voru fullir eftirvænting-
ar því að þetta var í fyrsta sinn sem við
krakkarnir fórum utan.
Það var lagt af stað 5. júní sl. kl. 2
eftir hádegi. Allir voru í besta skapi og
sólin skein hátt á lofti. Þegar við vor-
um komin upp í flugvélina urðum við
dálítið hrædd því að við höfðum aldrei
stigið fæti upp í flugvél áður. En þegar
líða tók á flugið vöndumst við því að
vera svona hátt uppi og hættum að
vera hrædd.
Við lentum í Madrid um sex-leytið
og vorum orðin dálítið þreytt. En
þreytan var fljót að gleymast á leið til
hótelsins því að það var svo margt að
sjá.
Daginn eftir skoðuðum við okkur
um og keyptum nokkra hluti en síðar
um daginn fórum við á ströndina til að
baða okkur.
Dagarnir voru fljótir að líða og áður
en við vissum af vorum við lögð af stað
heim aftur. Dásamlegir dagar voru að
baki og foreldrar okkar lofuðu því að
þau færu til þessa staðar aftur að ári
liðnu.
Við erum strax byrjuð að hlakka til
næstu ferðar.
Erla Ósk
21