Æskan

Árgangur

Æskan - 23.01.1901, Blaðsíða 4

Æskan - 23.01.1901, Blaðsíða 4
28 Bkranið, og látið hvað fyrir sig í sitt hólf, og ofan á hvert hólf hafði hann lagt pa]ip- írsmiða og skrifað á þá: „Góðar skrdf- ur“, „sterkir naglar“, „lyklar", „ýmislegt,“. „Ágætt“, sagði kaupmaðurinn, og þó vissi hann sjálfur fullvel, að það var hvergi nærri ómaksins vei't, að fást neitt við þetta rusl. En með sjálfum sér hugsaði hann: „Ef mér ekki skjöplast, hefi ég nú í dag fundið piltinn, sem ég hefi svo lengi leitað að.“ Það varð líka orð og að sönnu. Aug- lýsingin í glugganum sést ekki upp frá þessu. Herbergið hans Vilhjálms er uppi á loftinu, þar sem ruslakistan var áður. En nú er þar bjart og þokkalegt, eins og nærri má geta, því að hann má haga þar öllu eins og hann vill. Yfir rúminu hans eru þessi orð í ramma: „Sá sem er trúr yflr litlu, mun einntg verða trúr yfir því stærra. “ Þetta ef afmælisgjöf frá hús- bónda hans. Vilhjálmur er nú sem stendur erlendis að nema verzlunarfræði, og Petersen bíður heimkomu hans með óþolinmæði. Hann er tekinn að eldast og hugsar því til að fara að fá einhverjum yngri verzlunina í hend- ur, og eitthvað mun hann ætla sér með Vilhjálm. Hin opna gröf. Með mynd. í bænum Hannover á Þýzkalandi er gröf ein í einum kirkjugarði borgarinnar, sem fjöldi ferðamanna skoðar á ári hverju. Myndir af henni eru til sölu í flestum bóka- sölubúðum og pappírssölubúðum. Víðsveg- ar þekkist gröf þessi og er hún alment nefnd „hin opna gróf.“ Sagan af gröf þessari er hérum bil á þessa leið: Fyrir rúmri öld var kona nokkur gratin í gröf þessari, og voru höggvin á legsteininn þessi orð: „Þessi gröf á að geimast óhreifð til eilifðar og má aldrei opna hana. “ Myndin sýnir, að stórum björgum hefir verið hlaðið ofan á leiðið, og er efsti steinn- inn yflr 2000 pund að þyngd, og þar að auki eru steinar þessir tengðir saman með sterkum járngjörðum. En mennirnir ráða ekkert við kraft lífsins. Annaðhvort hefir fræ fallið í gröfina áður henni var lokað, eða eitthvert tré þar í nánd skotið frjóöng- um, og brotist inn í gröfina og svo leitað ljóssins og loftsins og brotist upp úr henni aftur. Hægt og hægt mjakaði tréð steinunum til hliðar og sleit járngjarðirnar. Allir þessir stóru steinar hafa smásaman rask- ast þó engin mannshönd hafi átt við þá, og blómlegt birkitré vex nú upp úr gröf þessari, sem átti að vera lokuð til eilífðar Tréð hefir flast út, þar sem það kémur út undan stærsta steininum, sem er ofan á leiðinu, og hylur tréð þar næstum alla hlið- ina á leiðinu en ofar verður tréð sívalt eins og vanaleg tré, og er stofn þess nálægt fimtán þumlungar að þykt. í sama kirkjugarðinum er önnur gröf, sem hefir verið opnuð af dálitlu akasíu-tré, en þar er ekkert íátað á legsteinana og engar járngjarðir kring um þá, og þess vegna er gröf þessari ekki veitt jafn-mikil eftirtekt. En úr því guð getur látið lítil frækorn opna grafir hinna dauðu, hlýtur þá ekki rödd hans að geta opnað grafir allra fram- liðinna á efsta degi. „Æ8KAN“ kemur út tvísvar í mánuði, og auk þess Jólablað (skrautprontað með myndum), 25 tölublöð alls. Kostar í Keykjavík 1 kr., úti um land kr. 1.20. Borgist í Apríl mánuði ár livert. Sölulaun 1 /5í gefin af minst 3 eint. POBYARÐUR PORVARÐSSON prentari, Pingholtsstrœti 4, annast útsendingu blaðsins og alla afgreiðslu, tekur á móti á móti borgun, kvitterar fyrir o. s. frv. Aldar-prentsmiðja. Pappírinn frá Jóni Olafssyni.

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.