Æskan

Árgangur

Æskan - 15.08.1904, Blaðsíða 8

Æskan - 15.08.1904, Blaðsíða 8
ioó Varst þú það ? Það var eitt barn, sem daufheyrðist við öllum áminningum og hirti ekkert um vilja foreldra sinna. Varst þú það? Það var einhver, sem blótaði og ragnaði, þegar foreldrar hans voru ekki viðstödd. Varst það þú? Ég vona að það hafi verið einhver annar en þú, sem gerði sig sekan í einhverju af þessu. En ef það hafa skyldi vera þú sjálfur, þá máttu aldrei gera það framar, því þú verður minni maður fyrir það. Myndin á bls. 96, sýnir mann sem er að síga í bjargið, og félagi hans við „hand- vaðinn". Sigmaður hefir barefli i hönd- unum til þess að drepa fýlungann með — Það er víst ekki með öllu hættulaus at- vinna þessar fuglaveiðar í Vestmanneyjum. Smávcgis. Litla Stína: „Einn og einn eru ellefu Mam m an: „Nei, einn og einn eru tveir". Stína: „Já, en tvisvar einn í tölu eru þó ellefu". Mamman: „Já, þegar þeir standa hvor við hliðina á öðrum“. Stína: „Á? Nú þá hef ég ellefu fætur". Sj úklingurin n : „Ég hef sent boð eftir yður, hr. læknir, bara af þægð við vini mina, en ég læt yður vita að ég trúi alls ekki á þessar nýmóðins lækningar". L æ ku i r i n n ; „Gerir ekkert; asninn trúir heldur ekki á dýralæknirinn, og batn- ar honum samt“. Móðirin: „Sjáið þið, stúlkur mínar, þarna gengur skáldið. sem liggur heima í bóka hyllunni i grænu bandi oggylt 1 sniðum. Frúin: „Hvers vegna var þér sagt. upp vistinni, þar sem þú varst áður?“ Barnfóstran: „Af því að eg gleymdi að þvo börnunum". Börnin (í hóp): „Ó, mamma góða, taktu þessa fyrir barnfóstru!“ Vísindamaður einn fullyrðir, að heilinn verði því minni, þess eldri sem maður verð- ur. Ef til vill verður með þessu móti skilj- anlegt, hvers vegna sextán ára drengur þyk- ist ávalt vita alt betur en faðir sinn. „ Æ s k a n “ kemur út tvisvar í mánuði, og auk þess jólablað skrautpreutað með myndum), 25 blöð alls (100 bls.). Kostar 1 kr. og 20 aura árgangurinn. Borg- ist í Aprílmánuði ár bvert. Sölulaun '/51 gcfin af miust 8 eiutökum. Guðm. Gamalielsson bókbindari, Hafnar- strœti 16. Rcykjavík, annast útsendingu blaðsins og alla afgreiðslu, tekur móti borgun og kvittar fyrir o. s. frv. Prcntsmiðja Þorv. Þorvarðssonar.

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.