Æskan

Árgangur

Æskan - 01.07.1905, Blaðsíða 4

Æskan - 01.07.1905, Blaðsíða 4
76 ÆSKAN. og í angist sinni og ofboði stökk hún niður i brunninn til að sækja spóluna. Var svo í fyrstu að hún vissi ekkert til sín, en er hún raknaði við og kom til sjálfrar sín, þá var hún stödd á unaðs- fögru engi. Var þar glaða sólskin og fult af allskon- ar blómum. Nú gekk hún eftir enginu af aug- um fram og kom að bakst- urofni; var brauð í honum og kallaði hrauðið: »Æ, dragðu mig út, annars sviðna eg; eg er full- bakað fyrir löngu«. Þá gekk stúlkan þar að með brauðskör una og náði út brauðinu. Síð- an gekk hún áleiðis og kom að tré, sem al- sett var eplum, og tréð kallaði: »Hristu mig, hristu mig! við eplin öll saman erum fullvaxta hvert með öðru«. Pá liristi hún tréð svo að eplunum rigndi niður og þangað til var hún að hrista, að ekki eitt einasta var eftir uppi i trénu; síðan lét hún þau öll í hrúgu og hélt svo áleiðis. Kom hún loksins að húsi nokkru litlu og gægðist út úr því gömul kona, en hún hafði tennur svo stórar að stúlkan skelfdist við og ætlaði að hlaupa burt. En gamla kon- an kallaði til hennar og sagði: »Hvað ertu að hræðast, barnið gott? vertu hjá mér, og ef þú gegnir öllum innanhúss- störfumhjámér með reglusemi, þá mun þér vel farnast, en þess verður þú að gæta, að búa vel um rúmið mitt og hrista sængurfötin vandlega svo að fiðriðfjúkivíðs- vegar; þá snjó ar í veröldinni; egerfrú Hulda«. Nú með því að gamla konan talaði svo góð- lega til stúlk- unnar, þá herti hún upp hug- ann, tók þeim kosti, sem boð- inn var, og vistaði sig lijá henni. Hún gerði og í alla staði svo að henni vel líkaði og hristi ávalt rúmföt hennar svo rösklega að fiðrið úr þeim fauk um kring eins og snædrífa; fyrir það sama átti hún líka beztu æfi hjá frúnni; aldrei var sagt við hana aukatekið orð og viðurgerningur var hinn bezti, bæði soðið og steikt á degi hverj-

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.